Fréttablaðið - 05.11.2014, Page 20
| 2 5. nóvember 2014 | miðvikudagur
Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á
Dagatal viðskiptalífsins
dagatal viðskiptalífsins
STJÓRNARFORMAÐUR Fjármálaeftir-
litsins (FME) hyggst ekki sækjast
eftir endurskipun. Fjölskylda stjórn-
arformannsins varð fyrir ónæði af
hálfu fjölmiðlamanna eftir að opin-
skátt varð að stjórnarformaðurinn
hafði hagnast gríðarlega á hluta-
fjáreign í Skeljungi, sem geymd var
á bak við nokkur lög eignarhalds-
félaga. Ekki vill stjórnarformaður-
inn kannast við að hafa átt önnur
samskipti eða viðskipti við Skeljung
en að kaupa þar eldsneyti, rétt eins
og hver annar bíleigandi.
NÚ ER ekkert að því að hlutabréfa-
eign sé í eignarhaldsfélögum og
heldur ekki að búin séu til nokk-
ur lög eignarhaldsfélaga. Fyrir
því geta verið ýmsar ástæður og
fl estar lögmætar.
ÖLLU máli skiptir hins vegar að
aldrei leiki vafi á því hver hinn
endanlegi eigandi er (e. benefi cial
owner). Þetta þekkja bankastarfs-
menn sem séð hafa um fjárfesting-
ar fyrir viðskiptavini bankanna.
Strangar reglur gilda um að ávallt
verði að kanna uppruna fjármuna
sem varið er til fjárfestinga. Til-
gangurinn með slíkum reglum er að
koma í veg fyrir peningaþvætti, sem
yfi rleitt er stundað í þrenns konar
tilgangi; að komast undan skatt-
greiðslum, skjóta sér undan reglum
hlutabréfamarkaða t.d. um yfi rtöku-
skyldu og loks til að hreinsa illa
fengið fé.
ÞAÐ ERU fjármálaeftirlitin sem
fylgjast með því að bankar fari eftir
þessum reglum. Þess vegna er sér-
lega óheppilegt þegar lítur út fyrir
að stjórnarformaður FME reyni
að fela eignarhald sitt á verðmætri
hlutabréfaeign. Einnig er óheppilegt
að um er að ræða hlutabréf í fyrir-
tæki sem Íslandsbanki, fyrrverandi
vinnuveitandi stjórnarformanns-
ins, leysti til sín og ráðstafaði. Fyrr-
verandi starfsmenn bankans virðast
sumir hafa hagnast vel á þeirri ráð-
stöfun.
FRAM hefur komið að bankinn kærði
stjórnarformanninn til FME og Sér-
staks saksóknara við starfslok fyrir
að taka upplýsingar í óleyfi út úr
bankanum. Ekki virðist sú kæra hafa
vakið sama áhuga og verkgleði á
þeim bæjum og kærur á hendur fyrr-
verandi eigendum og stjórnendum
íslenskra fjármálafyrirtækja sem
féllu í hruninu.
FME er ætlað að hafa eftirlit með því
að farið sé að reglum á íslenskum
fjármálamarkaði en hefur allt frá
hruni einbeitt sér að starfsemi fjár-
málafyrirtækja fyrir hrun en ekki
þeirra sem starfa á íslenskum fjár-
málamarkaði í dag. Frá hruni hafa
mörg helstu fyrirtæki landsins verið
yfi rtekin af bönkum og ráðstafað til
nýrra eigenda. Bankastarfsmenn
hafa dúkkað upp sem auðmenn í kjöl-
far endurskipulagningar og ráðstöf-
unar á þessum fyrirtækjum. Öðrum
virðist hafa verið ráðstafað til hand-
valinna vildarvina bankanna.
FME á að fylgjast með því að farið sé
að leikreglum í þessum stórræðum.
En hver fylgist með FME?
Hver vaktar vörðinn?
Keyrðu upp
af köstin
frábærum
vinnufélögum
með
Tölva: 144.990 kr.
Skjár: 38.990 kr.
OPTIPLEX 9020SF#04P2314H
advania.is/vinnufelagar
Hafðu samband í síma 440 9010 eða í tölvupósti á sala@advania.is
*Sérverð, gildir meðan birgðir endast.
Sk
jó
ða
n
SKJÓÐAN er frekju- og leiðindaskjóða, sem
lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi.
MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER
Seðlabankinn - Vaxtaákvörðun og útgáfa
Peningamála
Þjóðskrá - Fasteignamarkaðurinn í mán-
uðinum eftir landshlutum
Fjarskipti hf. - Uppgjör þriðja ársfjórðungs
BankNordik P/F - Níu mánaða uppgjör
FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER
Hagstofan - Gistinætur á hótelum í sept-
ember 2014
Landsbankinn hf. - Uppgjör þriðja árs-
fjórðungs
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER
Seðlabankinn - Helstu liðir í efnahags-
reikningi SÍ og gjaldeyrisforði
Moody’s - Lánshæfismat ríkissjóðs
MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER
Hagstofan - Efnahagslegar skamm-
tímatölur í nóvember 2014
Þjóðskrá - Fjöldi þinglýstra leigu-
samninga um íbúðarhúsnæði eftir
landshlutum
„Við stefnum að því að auka
framleiðsluna um 36 prósent á
næstu tveimur árum og opna hér
bjórspa og lítinn veitingastað,“
segir Agnes Anna Sigurðardótt-
ir, framkvæmdastjóri og einn
eigenda Bruggsmiðjunnar Kalda
á Árskógssandi í Eyjafi rði.
Agnes segir framkvæmdir
vegna framleiðsluaukningarinn-
ar þegar hafnar. Þeim eigi að ljúka
árið 2016.
„Við erum að stækka örlítið núna
og erum að byggja 50 fermetra hús
og láta smíða fyrir okkur
þrjá nýja fjögur þúsund
lítra tanka. Við sjáum svo
fyrir okkur að geta bætt
aðstöðuna fyrir átöppun
og róbóta og farið í örlitla
stækkun í tönkum á næsta
ári. Við ætlum svo að
klára þessu stækkun árið
2016 og þá vil ég fara í
bjórspa-ið,“ segir Agnes.
Bruggsmiðjan framleiðir nú um
550 þúsund lítra af bjórnum Kalda
á ári. Framleiðslugetan eykst um
200 þúsund lítra með stækkuninni.
„Við teljum að það sé
markaður fyrir það. Síð-
asta sumar var allt að
þriggja vikna biðlisti eftir
því að fá Kalda á veitinga-
staði.“
Bjórspö eru að sögn
Agnesar vel þekkt í Tékk-
landi. Hugmynd eigenda
Bruggsmiðjunnar gengur
út á að sjór og Kaldi séu hitaðir í
þar til gerðu kari.
„Bjórinn er svo gríðarlega holl-
ur fyrir húðina, og brugghúsið er
við sjóinn, þannig að við munum
nota hreinsaðan sjó og Kalda til
að búa til spa-paradís.“ Agnes
tekur fram að fyrirtækið hafi
alltaf verið byggt upp í smáum
skrefum og að skynsemin verði
áfram höfð að leiðarljósi. Brugg-
smiðjan var stofnuð í desemb-
er 2005 og hagnaður af rekstri
hennar nam tæpum 40 milljónum
króna á síðasta ári.
„Við fáum hingað gríðarlega
mikið af gestum en það vantar
meiri afþreyingu á staðinn og því
ætlum við að fara í þessar fram-
kvæmdir.“
Ætla að opna bjórspa
og brugga 36% meira
Eigendur Bruggsmiðjunnar Kalda ætla að opna bjórspa og veit-
ingastað í Eyjafirði. Framleiðsla brugghússins verður aukin um 36
prósent en fyrirtækið framleiðir um 550 þúsund lítra af bjór á ári.
BJÓRINN Bruggsmiðjan hefur framleitt Kalda frá árinu 2006.
AGNES ANNA
SIGURÐARDÓTTIR
FERÐAÞJÓNUSTA
Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is
Á UPPLEIÐ
Félög sem hækkuðu
í verði
Á NIÐURLEIÐ
Félög sem lækkuðu
í verði
STÓÐU Í STAÐ
Félög sem stóðu
í stað
MESTA HÆKKUN
NÝHERJI
57,5% frá áramótum
TM
4,9% í síðustu viku
MESTA LÆKKUN
VÍS
-24,0% frá áramótum
REGINN
-2,3% í síðustu viku
4
5
5
Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq OMX Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Bank Nordic (DKK) 109,00 -16,2% 0,0%
Eimskipafélag Íslands 223,00 -14,9% -0,7%
Fjarskipti (Vodafone) 31,55 15,8% -0,8%
Hagar 42,05 9,5% -0,4%
Icelandair Group 18,50 1,6% 0,8%
Marel 122,50 -7,9% -2,0%
N1 19,50 3,2% 2,9%
Nýherji 5,75 57,5% 0,0%
Reginn 14,41 -7,3% -2,3%
Tryggingamiðstöðin 24,50 -23,6% 4,9%
Vátryggingafélag Íslands 8,20 -24,0% 0,0%
Össur 360,00 57,2% 0,0%
HB Grandi* 29,90 7,9% 0,0%
Sjóvá* 12,00 -11,2% 2,4%
Úrvalsvísitalan OMXI8 1199,65 -4,8% 0,3%
First North Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Century Aluminum 2.500,00 117,4% 0,0%
Hampiðjan 20,20 52,5% 1,0%
Sláturfélag Suðurlands 1,33 9,0% 0,0%
*upphafsverð m.v. útboð í apríl
Gengi félaga í Kauphöll Íslands