Fréttablaðið - 05.11.2014, Blaðsíða 34
| 10 5. nóvember 2014 | miðvikudagur
Framtíðin hverfist um fartæki
þegar kemur að greiðslumiðlun og
framtíð fjármálaþjónustu, að mati
Davids Rowan, ritstjóra Wired
Magazine í Bretlandi. Undir skil-
greininguna fartæki falla hvers
konar farsímar, spjaldtölvur og
önnur snjalltæki tengd neti eða fjar-
skiptakerfi .
Rowan hélt erindi á Fagráð-
stefnu Reiknistofu bankanna sem
haldin var fyrir helgi á Icelandair
Hótel Reykjavík Natura, sem sumir
þekkja líka undir nafninu Hótel
Loftleiðir. Yfi rskrift ráðstefnunnar
var „Framtíðin í upplýsingatækni
fjármála fyrirtækja 2.0“.
Erindi Rowans var spræklegt og
hann vann yfi rfullan ráðstefnusal-
inn þegar á sitt band þegar hann
hóf mál sitt með bjöguðu „gaman að
sjá ykkur“. Restin var svo reyndar
á ensku.
Til gamans og upplýsingar varp-
aði Rowan gjarnan á skjá mynd-
skeiðum og myndbrotum. Þar á
meðal var auglýsing frá Ford í
Bandaríkjunum frá árinu 1967
þar sem horft var fram í tímann
og reynt að spá fyrir um umhverfi
fólks og innkaupahegðan á því ári
framtíðarinnar, 1999.
Auglýsingin var vissulega skond-
in. Konan sat við innkaupaskjáinn
sinn og valdi varning. Heimilis-
faðirinn góðkenndi svo kaupin (eða
ekki) á fjársýsluskjá sínum.
En þótt þankagangur og þjóð-
félagsskipan þess tíma hafi verið
dálítið ráðandi í auglýsingunni var
framtíðarspáin ekki fjarri lagi.
„Þetta snýst um að einfalda og auð-
velda líf fólks,“ sagði Rowan og
benti á að grunnhugsunin væri ef til
vill ekki fjarri því sem fólk notaði
tæknina til núna, þótt ekki hafi tek-
ist eins vel upp að spá um útfærsl-
una. Þarna veifaði hann snjallsím-
anum til áhersluauka. Innkaupin,
eða hver önnur viðskipti, er nefni-
lega hægt að annast hvar og hvenær
sem er.
Fartækin; snjallsíma, spjald- og
fartölvur, segir Rowan tækni sem
breytir hegðunarmynstri fólks.
„Síminn og smáforrit hans eru svo
áhrifamikil breyting að meira að
segja er til app til þess að segja til
um hversu oft fólk notar öppin sín.“
Snjallsímavæðingin hafi ör áhrif
á hvernig fólk hagar lífi sínu og
útgjöldum. Þá sé krafan sú að tækn-
in virki og sé einföld. Fólk kæri sig
ekki um hraðahindranir sem endur-
speglist í aðgangsorðum, PIN-núm-
erum og textainnslætti til að stað-
festa að um alvörufólk sé að ræða.
Og þar sem slík ljón séu í vegin-
um velji fólk fremur aðrar leiðir,
bendir hann á og vísar til margvís-
legra lána- og fjármögnunarleiða
sem sprottið hafa upp á netinu.
Við þessa hluti sé fjármálakerfi
heimsins að keppa og megi hafa
sig allt við til að verða ekki undir.
Hjá „peer-to-peer“ lána- eða
fjármögnunarfyrirtækjum sé
gagnsæi allsráðandi. „Og gagnsæi
er mjög gott, þótt það sé ekki allaf
hefðbundnum fjármálafyrirtækj-
um að skapi.“ Tæknin hafi hins
vegar gert að verkum að þrösk-
uldurinn til að reka margvíslega
fjármálaþjónustu, sem og annan
rekstur, sé lægri. Þar sé Orchard-
lánaþjónustan eitt dæmi, AirBnb
annað (þar sem tekið hafi fjögur
ár að ná sama herbergjaframboði
og tók Hilton-hótelkeðjuna áratugi
að byggja upp). Þá mætti nefna
þjónustu á borð við TransferWise
sem bjóði fólki að senda peninga
á milli landa gegn lægra gjaldi en
bankar.
FLUTTI ERINDI David Rowan, ritstjóri Wired Magazine í Bretlandi, er heimsþekktur fyrirlesari sem sérhæfir sig í framtíðar-„trendum“ auk þess að
fjalla um nýsköpun og tækifæri í rafrænum viðskiptum. Auk þess að ritstýra Wired skrifar hann um tækni fyrir tímarit á borð við GQ og Condé
Nast Traveller. Þá hefur hann starfað fyrir The Guardian, Telegraph Magazine, Sunday Times Magazine og The Observer. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Hagræðið ræður tækniþróuninni
Fjármálafyrirtæki þurfa að keppa við upplýsingatæknifyrirtæki sem farin eru að láta til sín taka á sviði hefðbund-
innar fjármálaþjónustu. David Rowan, ritstjóri Wired Magazine UK, deildi framtíðarsýn sinni á ráðstefnu RB.
Stærsta verkefni Reiknistofu bankanna á næstu árum er
útskipting grunnkerfa í bankaþjónustu að mati Hreins
Jakobssonar, stjórnarformanns RB. „Jafnframt er ljóst að
staðlaðar lausnir munu taka við af sérsniðnum kerfum
sem við búum við í dag.“ Þetta kom fram í máli Hreins
við opnun ráðstefnu RB, Framtíðin í upplýsingatækni fjár-
málafyrirtækja 2.0, síðastliðinn föstudag.
Hluta ráðstefnunnar var varið í að fjalla um staðlaðar
lausnir og úrlausnarefni sem taka þyrfti á þegar þær
koma í stað sérsniðinna. Inn á þetta kom meðal annars,
Jean Yves Bruna, framkvæmdastjóri stefnumála og þróunar hjá Soipra Banking
Software, í erindi sínu á ráðstefnunni.
Eins fjölluðu Friðrik Þór Snorrason, forstjóri RB, og Þorsteinn Björnsson,
framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og ráðgjafar RB, um stöðu mála og hvernig
gengi í nýju tækniumhverfi. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, kynnti
framtíðarsýn Íslandsbanka og áherslur í upplýsingatæknimálum og Theódór
Gíslason, sérfræðingur í tölvuöryggismálum hjá Syndis, fjallaði um upplýsinga-
öryggi fjármálafyrirtækja. Þá flutti Ragnheiður Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri
Hugsmiðjunnar, erindi um skort á konum í upplýsingatækni og velti upp leiðum
til úrbóta, að ógleymdu erindi Davids Rowan sem fjallað er um hér að ofan.
Uppselt var á ráðstefnu RB og húsfyllir þar sem um 400 manns mættu.
HREINN JAKOBSSON
STAÐLAÐAR LAUSNIR Í STAÐ SÉRSNIÐINNA
Fram kom í erindi Davids Rowan á
ráðstefnu RB fyrir helgi að tækni-
framþróunin hafi gert fjölmörgum
fyrirtækjum kleift að ná undra-
verðum árangri á skömmum tíma.
Lykillinn að velgengni sé hins vegar
greinilega að reyna að færa not-
endum það sem þeir vilja. Dæmi
um það sé WhatsApp-smáforritið
í farsíma sem gefi fólki kost á að
senda skilaboð án tilkostnaðar sem
felist í SMS-sendingum. Og þótt
forritið hafi á skömmum tíma orðið
mjög vinsælt hafi höfundar þess
ætíð haldið sig fast við einfalda
virkni, enga leiki eða auglýsingar.
WhatsApp er með yfir 430 milljónir
virkra notenda í mánuði hverjum
og var í haust selt Facebook á 19
milljónir dollara, eða sem svarar 2,3
milljörðum króna.
GERA ÞAÐ GOTT
UPPLÝSINGATÆKNI
Óli Kristján Ármannsson | olikr@frettabladid.is
ELDKLÁR OG VANDAR TIL VERKA
„Ég kynntist Magnúsi Þór fyrst þegar hann tók sæti í
háskólaráði Háskólans í Reykjavík fyrir nokkrum árum og
svo enn betur þegar hann kom inn í stjórn Viðskiptaráðs
Íslands þegar ég var þar framkvæmdastjóri. Það sem er
auðsýnt, eftir okkar ágæta samstarf á þessum vettvangi,
er að hann sinnir verkefnum sem hann tekur að sér af
mikilli alvöru. Það sést kannski best á því að þrátt fyrir að
þurfa að sækja fundi um langan veg, komandi að austan,
þá mætir hann manna best, ávallt vel undirbúinn og afar
lunkinn við að greina aðalatriðin frá aukaatriðunum. Það kann að vera að við
fyrstu kynni virki hann aðeins alvörugefinn, en sú upplifun gufar fljótt upp,
enda stutt í glettnina.“
Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja.
„Magnús er gegnheill og drengur góður, sem er ekki
lítill kostur fyrir mann í hans starfi. Hann er þessi 100%
maður, sem ávinnur sér fljótt traust samstarfsmanna.
Hann mætir undirbúinn til leiks og vandar til allra verka.
Þá er hann eldklár, fróður um margt og virkilega skemmti-
legur í samstarfi. Það vill svo til að við erum gamlir
bekkjarfélagar úr grunnskólanum. Hann var hæglátur ef
ekki feiminn sem drengur, sagði ekki margt og hafði sig
lítið í frammi. En svo til dæmis átti Maggi það líka til að
mæta á skákmót í bekknum og beinlínis rústa andstæðingunum.“
Helga Guðrún Jónasdóttir, markaðs- og
upplýsingafulltrúi Fjarðabyggðar.
„Starfi ð krefst meiri yfi rsýnar og
vinnu, en ég er tilbúinn í verkið,“
segir Magnús Þór Ásmundsson,
sem tók við starfi forstjóra Alcoa
Fjarðaáls í lok síðustu viku.
Magnús hefur gegnt starfi for-
stjóra eignarhaldsfélags Fjarða-
áls, Alcoa á Íslandi, frá árinu
2012. Hann mun sinna því starfi
áfram ásamt því að bera ábyrgð
á rekstri álversins í Reyðarfi rði.
„Ég þarf nú að koma mér inn í
nýtt hlutverk og við erum nýkom-
in út úr mikilli stefnumótunar-
vinnu og verkefnið fram undan er
að fylgja eftir þeirri stefnumótun
og fá alla starfsmenn með í það
verkefni,“ segir Magnús.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Hamrahlíð
árið 1982. Eftir það lá leiðin í
rafmagnsverkfræði í Háskóla
Íslands og þaðan til Danmerkur
þar sem Magnús lauk meistara-
gráðu í greininni frá Danmarks
Tekniske Universitet (DTU).
„Eftir það vann ég meðal ann-
ars hjá Marel í 19 ár. Þar starf-
aði ég meðal annars sem fram-
kvæmdastjóri framleiðslu og
vann að uppbyggingu framleiðslu
Marels í Slóvakíu og samhæfi ngu
framleiðslunnar í Evrópu. Það var
skemmtilegur tími enda fyrirtæk-
ið í mikilli uppbyggingu þá.“
Magnús var ráðinn til Fjarða-
áls árið 2009. Hann fl utti þá ásamt
fjölskyldunni til Egilsstaða en
Magnús er kvæntur Soffíu G.
Brandsdóttur snyrtifræðingi og
þau eiga þrjú börn.
„Ég vildi vinna í alþjóðlegu
umhverfi og það vakti líka áhuga
minn hversu mikla áherslu fyrir-
tækið lagði á straumlínustjórnun
í sínum stjórnkerfum og þátt-
töku starfsfólksins. Straumlínu-
stjórnun er hugmyndafræði sem
á uppruna sinn hjá Toyota í Japan
og ég tel vera afar góða nálgun
við skipulag og starfsemi fyrir-
tækja.“
Vinnan er það fyrsta sem Magn-
ús nefnir þegar blaðamaður spyr
um áhugamál.
„En ég er fjölskyldumaður og
eyði miklum tíma með fjölskyld-
unni. Svo hef ég mikinn áhuga
á íþróttum. Ég fékk Liverpool-
treyju í fimmtugsafmælisgjöf
fyrir stuttu en ég hef nú þurft að
yfi rgefa drauminn um að leika
nokkurn tíma á Anfi eld bara því
Of slæmur í hnjánum fyrir Anfield
Magnús Þór Ásmundsson hefur tekið við starfi forstjóra Alcoa Fjarðaáls. Hann lærði rafmagnsverkfræði við DTU
og vann hjá Marel í 19 ár. Magnús stefnir að því að gera álverið í Reyðarfirði að hagkvæmasta álveri í heimi.
SVIPMYND
Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is
STÝRIR ÁLVERINU Í REYÐARFIRÐI Magnús situr einnig í stjórn Tækniskólans og Samáls.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ég er svo slæmur í hnjánum,“
segir Magnús og hlær. „Ég hef
þó meiri áhuga á körfubolta en
fótbolta í dag enda starfað mikið
fyrir körfuknattleiksdeild Hattar
á Egilsstöðum. Svo spila ég golf,
fer á skíði og les góðar bækur.“
Magnús segist stefna að því að
gera álverið í Reyðarfi rði að besta
og hagkvæmasta álveri í heimin-
um. „Þannig að það skili verðmæt-
um til allra hagsmunaaðila, sam-
félagsins, starfsmanna, eigenda
og viðskiptavina. Hér eru góðar
aðstæður og gott starfsfólk og við
erum kannski að sumu leyti enn að
slíta barnsskónum en framtíðin er
björt fyrir álið og Alcoa.“