Fréttablaðið - 05.11.2014, Qupperneq 38
USD 122,48
GBP 195,99
DKK 20,607
EUR 153,4
NOK 17,99
SEK 16,57
CHF 127,26
JPY 1,08
Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Gengi gjaldmiðla FTSE
6.453,97 +34,00
(0,52%)
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskipti
STJÓRNAR -
MAÐURINN
@stjornarmadur
Þær fréttir bárust nú fyrir helgi að
Qlik hefði keypt Datamarket fyrir
ríflega 1,4 milljarða króna. Það er
gaman að sjá hversu mikil verð-
mæti hugmyndaríkt og drífandi
fólk getur skapað. Datamarket var
stofnað í lítilli skrifstofu í Skipholt-
inu árið 2008 og gerir það árangur-
inn sérstaklega eftirtektarverðan.
Í KJÖLFARIÐ þakkaði Hjálmar
Gíslason, forstjóri Datamarket,
ráðgjöfum og samstarfsaðilum
sérstaklega fyrir þagmælskuna.
Hátt í 100 manns vissu af þessum
yfirvofandi viðskiptum svo mán-
uðum skipti, en héldu upplýsingun-
um fyrir sig þangað til samningar
voru undirritaðir á föstudaginn.
EKKI ER ÓALGENGT að viðskipti
sem þessi eigi sér langan aðdrag-
anda. Trúnaður innherja meðan á
ferlinu stendur er gríðarlega mikil-
vægur, enda getur orðrómur um
viðskiptin skapað óvissu hjá starfs-
fólki og viðskiptavinum. Auk þess
er Qlik skráð félag á NASDAQ. Á
skilvirkum markaði sitja allir við
sama borð og hafa jafnan aðgang
að upplýsingum. Óraunhæft er að
gera markaðnum grein fyrir svo
stórum og flóknum viðskiptum
í rauntíma og því mikilvægt að
um þau gildi fullkominn trúnaður
þangað til þau ganga í gegn. Þann-
ig var komið í veg fyrir óeðlilega
verðmyndun á bréfum Qlik.
ALMENNT SÉÐ ættu stjórnendur
skráðra félaga þó að temja sér
gagnsæi við markaðinn, eftir því
sem frekast er kostur. Það hefðu
stjórnendur Marels mátt hafa í
huga er þeir birtu ársfjórðungs-
uppgjör sitt á dögunum. Bréf í
Marel hækkuðu um rúmlega 14%
þann daginn í viðskiptum sem
námu meira en fjórföldum dagsvið-
skiptum. Tveimur dögum síðar var
hækkunin orðin tæp 20%. Enda
uppgjörið óvenju gott.
Stjórnarmanninum þykir óeðli-
legt að upplýsingaflæði frá einu
stærsta fyrirtæki markaðarins sé
svo ábótavant að verðmæti bréfa
í fyrirtækinu geti sveiflast jafn-
ákaflega og raun ber vitni. Marel
hafði ekki sent út tilkynningu til
fjárfesta síðan 23. júlí, en þá birti
félagið einmitt afkomutölur fyrir
annan ársfjórðung.
STARFSHÆTTIR á mörkuðum ytra
eru með öðru móti. Stjórnendur
skráðra fyrirtækja halda síma-
fundi með sérfræðingum greining-
ardeilda og öðrum sem áhuga hafa,
þar sem farið er yfir það helsta
sem snýr að tekju- og afkomuhlið
fyrirtækjanna. Slík upplýsingagjöf
dregur úr óvæntum verðsveiflum
sem geta rýrt traust, fækkað þátt-
takendum og dregið úr viðskiptum.
Við megum ekki við því að
umgjörð íslensks hlutabréfamark-
aðar sé ófullnægjandi. Nú þegar
greiningardeildir eru skugginn
af sjálfum sér myndi aukin upp-
lýsingagjöf fyrirtækja vera stórt
skref í átt að skilvirkari markaði.
Trúnaður
og gagnsæi Íslensk gjöf
fyrir sælkera
Falleg gjafakarfa með úrvali af bragðgóðum
íslenskum ostum er tilvalin jólagjöf handa
starfsfólki og viðskiptavinum.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
65
10
9
Körfurnar eru afhentar í sellófani með fallegri slaufu. Einnig bjóðum við fallega
ostakassa til að senda til viðskiptavina og starfsfólks innanlands.
Pantaðu ostakörfu á www.ms.is. Einfalt, fljótlegt og þægilegt.
www.ms.is
1.11.14
„Ég vil reyna að komast upp úr
þeirri umræðu sem hefur einkennst
af neikvæðni. Við viljum draga að
greininni ungt fólk og nýta endalausa
möguleika sem felast í íslenskum
sjávarútvegi.“
Jens Garðar Helgason,
formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
1.711 MILLJÓNA FRAMLEGÐ
Vodafone birtir uppgjör þriðja fjórðungs
Vodafone á Íslandi birtir uppgjör sitt
í dag og mun halda kynningarfund í
fyrramálið. Í afkomuspá gerir IFS ráð
fyrir að framlegð af rekstri félagsins
verði 1.711 milljónir króna sem er
vöxtur um 4,8 prósent.
Þá er gert ráð fyrir að
EBITDA-hlutfall fyrir
ársfjórðunginn verði 27
prósent samanborið við 28,9 prósent á þriðja ársfjórðungi 2014.
8 MILLJÓNA GRÓÐI
Uppgjör ALDA sjóða
Hagnaður rekstrarfélags ALDA sjóða hf. nam 8,4
milljónum króna á síðasta ári samkvæmt árs-
reikningi. Eigið fé félagsins í árslok nam 143
milljónum króna og eiginfjárhlutfall var 46,4
prósent. Lágmarkshlutfallið er átta prósent. Félagið
rekur tvo verðbréfasjóði, tvo fagfjárfestasjóði og
einn fjárfestingasjóð. Hrein eign þeirra nam 1.227
milljónum króna í lok síðasta árs. Stærsti eigandi
ALDA sjóða er Alecia ehf., sem er í eigu Þórarins
Sveinssonar.