Fréttablaðið - 05.11.2014, Page 48
5. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 28
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur
Iceland Airwaves-tónleikahá-
tíðin gengur í garð á morgun
og verður því mikið um að vera
í bænum. Passar á hátíðina
seldust upp í byrjun október en
tónlistaráhugamenn sem nældu
sér ekki í passa í tæka tíð þurfa
ekki að örvænta þar sem hægt
verður að sjá 675 utandag-
skrár-tónleika víðs vegar um
borgina, þar sem ekkert kost-
ar inn. (Þess skal þó getið að
hægt verður að kaupa miða á
lokatónleika hátíðarinnar með
Flaming Lips og War on Drugs
í takmörkuðu upplagi.) Frétta-
blaðið tók saman nokkra áhuga-
verða utandagskrár-viðburði
fyrir þá sem voru svo óheppnir
að missa af miðum.
Hvað er hægt að sjá
frítt á Airwaves?
Heill hellingur af „off -venue“-viðburðum er í boði á tónlistarhátíðinni Iceland
Airwaves sem hefst í dag. Samanlagt getur fólk valið úr 675 tónleikum.
EKKI MISSA AF
ÚTVARPSSTÖÐIN KEXP frá Seattle
í Bandaríkjunum verður með beina
útsendingu og tónleika á Kexi Hosteli
frá miðvikudegi til laugardags. Útvarps-
stöðin hefur sýnt hátíðinni mikinn
áhuga undanfarin ár. Í dag verður hægt
að sjá Kiasmos, Sóleyju, Una Stefson,
Oyama og Mugison troða upp.
HÓPURINN STELPUR ROKKA! sem
hefur haldið úti rokksumarbúðum
fyrir stelpur verður með sérstaka utan
dagskrár tónleika á Lofti Hosteli á
fimmtudaginn. Þar koma fram Kælan
mikla, Rachel Sermanni frá Skotlandi,
Adda, Margrét Arnar og Boogie Trouble.
NORDIC PLAYLIST er vinsæl síða sem
fær fræga norræna tónlistarmenn til að
gera lagalista með skandinavískri tónlist.
Frá föstudegi til sunnudags verður síðan
með sérstakan „pop-up“-bar að Lauga-
vegi 91. Þar verður meðal annars hægt að
sjá tónlistarmennina Jakko Eino Kalevi frá
Finnlandi, Kasper Björke frá Danmörku
og sveitina BYRTA frá Færeyjum.
SÝNINGIN HORFÐU Í LJÓSIÐ: Augna-
blik frá Iceland Airwaves verður opin
á Kexi Hosteli yfir hátíðina. Sýningin
samanstendur af ljósmyndum af mögn-
uðum Airwaves-augnablikum eftir
helstu tónleikaljósmyndara Reykjavíkur.
BLANDAÐ Icelandic
Airwaves/föstudagur og
laugardagur/Arnþór/Sinead
O’Connor og fleiri.
AIRWAVES 2011 STEMMINGSMYNDIR
8, 10:30(P)
6, 8
10:10
5:50, 10:10
5:50
-V.J.V, SVARTHOFDI.IS -G.D.Ó, MBL
GRAFIR OG BEIN KL. 8 - 10.15
FURY KL. 9
HEMMA KL. 5.45
BORGRÍKI KL. 8 - 10.10
GONE GIRL KL. 5.45 - 9
BOYHOOD KL. 5.30
PARÍS NORÐURSINS KL. 5.45
GRAFIR OG BEIN KL. 5.30 - 8 - 10.15
GRAFIR OG BEIN LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.15
FURY KL 5 - 8 - 10.45
BORGRÍKI KL 8 - 10.10
GONE GIRL KL. 8
THE MAZE RUNNER KL. 5.30
KASSATRÖLLIN ÍSL TAL 2D KL. 3.30 - 5.45
SMÁHEIMAR 2D KL. 3.30
Kvikmyndafyrirtækið Royal
Road Entertainment hefur keypt
réttindin að hinni týndu kvik-
mynd Orson
Welles, The
Other Side of
the Wind, sem
hefur verið
kölluð „fræg-
asta óútgefna
mynd allra
tíma“. Myndin
verður frumsýnd á næsta ári.
Welles lést árið 1985 og náði
því ekki að klára myndina sem
hann hafði unnið að í langan
tíma en það voru aðallega fjár-
hagsleg vandamál sem komu í
veg fyrir það. Royal Road mun
klippa myndina úr upprunalegu
filmunni.
Svo skemmtilega vill til að
myndin fjallar einmitt um leik-
stjóra sem berst við að klára
meistaraverkið sitt á meðan
kerfið í Hollywood þrengir að.
- þij
Týnd mynd
verður útgefi n
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
„BESTA SVEPPAMYNDIN TIL ÞESSA“
H.J. FRÉTTATÍMINN
T.V. - BÍÓVEFURINN.IS
Aldrei fór ég niður á Austurvöll og barði í pott eftir hrunið. Kveikti ekki í jólatré
og braut enga rúðu. Ég var áhorfandi,
fylgdist með búsáhaldabyltingunni úr fjar-
lægð og geymdi pottana inni í skáp. Ekki
það að ég hafi verið svo yfir mig ánægð
með stjórnina sem ríkti þá og taumlausa
græðgina sem keyrði okkur öll á kaf,
alls ekki. Ég fann fyrir skellinum. En
ég fann mig ekki í látunum, gat ekki
sleppt fram af mér beislinu og öskrað
mig hása með hinum. Horfði á frétt-
irnar af bálköstum og barsmíðum
með fiðring í maganum, það var eitt-
hvað merkilegt að gerast, en ég gerði
ekkert. Ég er meðaljón, miðstéttar-
plebbi með verðtryggð lán.
ÉG fjasaði þó heil ósköp yfir
ástandinu, maður minn hvað
ég gat fjasað. Var mikið niðri
fyrir, heitt í hamsi og tuðaði
upp á hvern dag yfir kaffiboll-
um og í heitum pottum. Þetta
náði ekki nokkurri átt, svo
ósanngjarnt, hvers átti fólk að
gjalda? Sérstaklega meðaljónar
eins og ég!
SVO dvínaði reiðin, það verður að viður-
kennast, enda er reiði óskaplega lýjandi
ástand. Hversdagslegt amstur tók yfir
og það fennti yfir hasarinn, enda liðu ár.
Ég hætti að tuða. Missti móðinn og mall-
aði þetta áfram í öðrum gír. Lífið komst
í ákveðið jafnvægi eða kannski stakk ég
bara höfðinu í sandinn.
SVO fór að aftur tók að draga til tíðinda,
þessir endemis ráðamenn. Ég fann fyrir
ólgunni, því verður ekki neitað. Sam-
skiptamiðlarnir hafa logað frá því fyrir
kosningar og allt í einu virtist ætla að
sjóða upp úr. Ég þreif upp skápana og
fálmaði eftir skaftpottinum, stálpotti sem
glymur í …
ÉG fór ekkert niður á Austurvöll. Barði
ekki í pott né öskraði mig hása með hinum.
Ekki það að ég sé yfir mig ánægð með
ríkjandi stjórn, aldeilis ekki. En ég er
meðaljón, finn mig ekki í látunum, mið-
stéttarplebbinn með verðtryggðu lánin og
innsenda umsókn um leiðréttingu.
HÖFÐINU stakk ég í sandinn og pottin-
um inn í skáp.
Miðstéttarplebbi með verðtryggð lán