Fréttablaðið - 05.11.2014, Page 54
5. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 34
Í fyrsta sinn síðan í byrjun síðasta áratugar
er Spaugstofan ekki á dagskrá í sjónvarpi.
„Það voru gerðar heilmiklar breytingar
á Stöð 2, bæði áherslubreytingar og manna-
breytingar. Þetta var eitt af því sem kom
út úr því,“ segir Karl Ágúst Úlfsson, spurð-
ur út í stöðu mála hjá þeim félögum. „Þetta
kom okkur á óvart en þetta er ekkert sem við
nennum að vera ergilegir yfir.“
Alls eru 25 ár liðin síðan Spaugstofan byrj-
aði með fasta þætti í Ríkissjónvarpinu. Fyrir
fjórum árum söðluðu þeir félagar um og
fluttu sig yfir á Stöð 2 en núna er það tímabil
á enda runnið.
Á þessum 25 árum hefur Spaugstofan tví-
vegis tekið pásur frá sjónvarpsþáttagerð og
þannig er staðan einnig núna. „Við erum enn
að vinna saman og erum að skoða hvað við
gerum næst,“ segir Karl Ágúst.
Spurður hvort þeir séu í viðræðum við aðra
sjónvarpsstöð segir hann málið snúast um
hvað þeim sjálfum þyki mest spennandi.
„Við erum að skoða alla möguleika og alla
miðla, þannig séð. En við höfum alltaf verið
veikir fyrir leiksviðinu og erum að velta því
fyrir okkur kannski að skella okkur á svið.“ - fb
Spaugstofan hætt á Stöð 2 og komin í pásu
Grallararnir eru hættir á Stöð 2 eft ir fj ögurra ára starf og eru að íhuga næstu skref. Leikhús kemur til greina.
SPAUGSTOFAN Karl Ágúst Úlfsson, Örn Árnason,
Sigurður Sigurjónsson og Pálmi Gestsson hafa ekki
sungið sitt síðasta.
➜ Á næsta ári verða 30 ár liðin síðan
Spaugstofan var stofnuð.
„Sushi. Það er án vafa besti skyndi-
bitinn hjá öllum í fjölskyldunni.“
Guðrún Tinna Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri
Ígló & Indí.
BESTI SKYNDIBITINN
Farga varð fyrsta upplagi af
íslenskri útgáfu sjálfsævisögu
knattspyrnuhetjunnar Luis
Suarez úr Barselóna, eða þrjú
þúsund eintökum.
Þrátt fyrir það kemur bókin
út á Íslandi 6. nóvember, eins og
áætlað var í upphafi, á sama tíma
og í Englandi, Hollandi og föður-
landi kappans, Úrúgvæ.
Þýðandi bókarinnar, Arnar
Matthíasson, lagði nótt við nýtan
dag eftir að hann fékk handritið í
hendur nú í sumar og því tókst að
senda bókina í prentun á tilsett-
um tíma.
Í lok síðustu viku, eftir að
Prentsmiðjan Oddi hafði prent-
að og bundið stórt upplag af ævi-
sögunni, fékk Veröld, útgefandi
bókarinnar, hins vegar þau skila-
boð að Suarez vildi gera
ákveðnar breyting-
ar á verkinu. „Að
sjálfsögðu brugð-
um við skjótt við, hentum fyrsta
upplaginu og löguðum handrit-
ið eins og Suarez vildi. Í góðu
samstarfi við vini okkar í Odda
náum við síðan að koma bókinni
til íslenskra lesenda þann sjötta
nóvember, eins og til stóð,“ segir
Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá
Veröld.
Í bókinni fjallar Suarez til
dæmis ítarlega um hina drama-
tísku atburði sem gerðust á
heimsmeistaramótinu í Brasilíu
í sumar. - fb
Oddi fargaði þrjú
þúsund eintökum
Prentsmiðjan Oddi varð að prenta nýtt upplag af
ævisögu Luis Suarez því hann vildi laga handritið.
PÉTUR MÁR
ÓLAFSSON
Segist hafa fargað
fyrsta upplaginu í
góðu samstarfi við
prentsmiðjuna Odda.
Að sjálfsögðu
brugðum við skjótt við,
hentum fyrsta upplaginu
og löguðum handritið
eins og Suarez vildi.
Pétur Már Ólafsson
LUIS SUAREZ
Tíu ljósmyndir sem Ásta Kristjáns-
dóttir tók á Íslandi í sumar hafa
birst í indverskri útgáfu tímaritsins
heimsfræga, Vogue.
„Ég fór á fund með þeim í Mumbai
á Indlandi og bar upp þá hugmynd
um að mynda á Íslandi. Þeir skoðuðu
möppuna mína og lögðu þetta fyrir
ritstjórann og stjórnina og svo var
það samþykkt,“ segir Ásta,“ spurð
út í verkefnið.
Myndatakan stóð yfir í tvo daga
og fór m.a. fram við Jökulsárlón og
á Suðurnesjum. „Þetta var rosalega
mikil vinna. Undirbúningurinn sner-
ist um að finna rétta tökustaði, réttu
fyrirsætuna og svo mátti veðrið ekki
klikka. Svo finnst mér flott hjá Ice-
landair að styrkja verkefnið,“ segir
hún. „Þetta er ofsalega mikil land-
kynning fyrir Ísland. Vogue India
er lesið í milljónum eintaka og ég
reikna með að fólk eigi eftir að reka
upp stór augu þegar það sér lands-
lagið og vilji koma hingað.“
Ásta er fyrsti Íslendingurinn
sem á ljósmyndir í Vogue India og
viðurkennir að það sé mikill heið-
ur. „Maður er búinn að lesa Vogue
síðan maður var lítill. Þetta er bara
óskaplega gaman,“ segir hún og von-
ast til að myndirnar opni stærri dyr
fyrir hana að ljósmyndamarkaðnum
erlendis. „Þetta eru ekki best laun-
uðu verkefnin en þau opna kannski
dyr að öðrum verkefnum sem borga
meira.“
Ásta hefur á þessu ári haldið sýn-
ingu fyrir Amnesty International,
auk þess sem hún er að undirbúa
aðra fyrir Barnaheill. Hún segir
umhverfið vera að breytast fyrir
íslenskar konur í ljósmyndun. „Það
er ótrúlegt hvað það hafa verið fáar
konur í þessu en ég held að það sé
að breytast. Við erum að ryðja okkur
leiðina inn.“ freyr@frettabladid.is
Ljósmyndir frá Ástu í
hinu indverska Vogue
Tíu ljósmyndir sem Ásta Kristjánsdóttir tók á Íslandi í sumar hafa birst í Vogue
India. Hún vonast til að myndirnar opni dyr fyrir hana að enn stærri verkefnum.
AÐ STÖRFUM Ásta við tökur á myndinni
við Bláa lónið, sem birtist hér að ofan.
➜ Tólf manns tóku þátt í tök-
unum, þar á meðal Ísak Freyr,
fyrirsætan Angela Jonsson,
stílistinn Lorna McGee, Theó-
dóra Mjöll Skúladóttir Jack
og þau Jón Guðmundsson og
Ellen Inga.
M
YN
D
/ÁSTA KRISTJÁN
SD
Ó
TTIR
VIÐ BLÁA LÓNIÐ
Fyrirsætan Angela
Jonsson í nágrenni
Bláa lónsins á einni
af myndunum sem
birtust í Vogue India.