Fréttablaðið - 20.11.2014, Síða 4
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
SJÁVARÚTVEGUR Festa á nýtingar-
rétt útgerðanna á fiskveiðiauð-
lindinni til rúmlega tuttugu ára í
frumvarpi sjávarútvegsráðherra
að nýju fiskveiðistjórnunarkerfi.
Horfið verður frá því að afla-
heimildum verði úthlutað árlega
og tekið upp leigusamningakerfi
milli útgerða og ríkisins.
Mun ráðherra, samkvæmt
frumvarpinu, halda eftir 5,3 pró-
sentum af heildarafla til félags-
legrar úthlutunar, líkt og verið
hefur. Frumvarp þetta er unnið
upp úr hugmyndum sáttanefnd-
ar um framtíðarskipan sjávar-
útvegsins. Frumvarpið á að gera
skýra grein fyrir því að ríkið eigi
veiðiréttinn og leigi hann út til
útgerðanna. Markmið lagabreyt-
ingarinnar er að styrkja rekstrar-
grundvöll sjávarútvegsfyrirtækja
þannig að þau geti fjárfest í grein-
inni og skilað ríflegum arði til
eiganda auðlindarinnar, þjóðar-
innar.
Ásmundur Friðriksson, Sjálf-
stæðisflokki, segir þau frum-
varpsdrög sem nú liggja fyrir
þingflokkunum, vera á þá leið að
breið sátt ætti að geta myndast
um frumvarpið.
„Það er margt mjög gott í frum-
varpsdrögunum og ég er mjög
ánægður með hvernig þetta lítur
út. Þetta er að miklu leyti byggt
á störfum sáttanefndarinnar.
Auðvitað eigum við eftir að rýna
betur í einstaka liði en á heild-
ina litið lítur þetta vel út og ég
tel að hægt sé að mynda almenna
sátt um málið á Alþingi,“ segir
Ásmundur.
Páll Jóhann Pálsson, Fram-
sóknarflokki, tekur í sama streng.
„Þetta er ákveðin sáttaleið sem
flestir hafa trú á að sé til þess
fallin að skapa sátt um kerfið
bæði á þingi og í samfélaginu.
Menn eru að gera sér vonir um
að þetta komi til móts við flest
sjónarmið. Í þessu frumvarpi fá
útgerðirnar tryggingu fyrir að
geta nýtt auðlindina svo hægt sé
að skipuleggja reksturinn til ein-
hvers tíma.“
Sú breiða sátt sem Páll Jóhann
og Ásmundur telja geta orðið um
frumvarpið, verður þó líklega tor-
sótt. Árni Páll Árnason, formaður
Samfylkingarinnar, er ekki jafn
kátur með frumvarpið. Hann gat
ekki tjáð sig um einstakar grein-
ar í frumvarpinu því hann væri
bundinn trúnaði þar til það kæmi
fyrir þingið.
„Ég get hins vegar sagt að það
sem við höfum verið að sjá í frétt-
um, þessir gríðarlega löngu samn-
ingar með lágmarksveiðigjaldi og
lítilli nýliðun í greininni, er ekki
í takt við áherslur Samfylkingar-
innar og ekki það sem landsmenn
vilja sjá og hefur margsinnis
komið fram í viðhorfskönnunum,“
segir Árni Páll.
Lilja Rafney Magnúsdóttir,
Vinstri grænum, er sama sinnis
og Árni Páll að því leyti að lík-
lega verði ekki mikið um sættir
um þetta frumvarp.
„Ég gef lítið fyrir það að þetta
eigi að heita sáttafrumvarpið
mikla. Ég get hins vegar trúað
því að svokallaðir hagsmunaað-
ilar, útgerðin og SFS, verði mjög
sátt við frumvarpið. Að mínu mati
sýnist mér búið að negla veiðirétt-
inn til framtíðar í höndum þeirra
og engin gulrót í átt að opnu kerfi.
Það verður lítil sátt um þetta því
hér er verið að binda hendur kom-
andi ríkisstjórna til langrar fram-
tíðar,“ segir Lilja Rafney Magnús-
dóttir. sveinn@frettabladid.is
Ég gef
lítið fyrir það
að þetta eigi
að heita
sáttafrum-
varpið mikla.
Lilja Rafney
Magnúsdóttir, Vinstri grænum.
65 milljarðar var andvirði innflutnings í september.
Innflutningur á fyrstu níu mánuðum
þessa árs er 2,7 prósentum hærri en
á sama tíma í fyrra.
Heimild: Hagstofa Íslands.
DÓMSMÁL Sigurjón Þ. Árnason,
fyrrverandi bankastjóri Lands-
bankans, var dæmdur í tólf mán-
aða fangelsi, þar af níu skilorðs-
bundna, í Héraðsdómi Reykjavíkur
í gær. Saksóknari hafði farið fram
á sex ára fangelsi fyrir brot hans.
Í sama máli voru Ívar Guðjóns-
son, fyrrverandi forstöðumaður
eigin fjárfestinga bankans (EFL),
og Júlíus Steinar Heiðarsson,
starfsmaður á sama sviði, dæmd-
ir í níu mánaða fangelsi, þar af eru
sex skilorðsbundnir. Sindri Sveins-
son, einnig starfsmaður EFL, var
sýknaður af öllum kröfum ákæru-
valdsins. Sigurður, Júlíus og Ívar
skulu bera málskostnað að hálfu
á móti ríkissjóði en kostnaður
Sindra fellur allur á ríkið.
Fjórmenningunum var gefið að
sök að hafa, á tímabilinu 1. nóvem-
ber 2007 til 3. október 2008, nýtt
EFL með skipulögðum og kerfis-
bundnum hætti til að stýra gengi
hlutabréfa bankans. Í upphafi til
að keyra verðið upp, síðar meir til
að styðja við það og að lokum til
að tefja fyrir falli þess. Sök þótti
sönnuð á síðustu fimm dögum
tímabilsins.
„Í mínum huga er þetta alröng
niðurstaða og ekki í samræmi við
það sem ákært var fyrir. Ákæran
var í raun of óljós til að hægt væri
að verjast henni,“ segir Sigurjón.
Hann hyggst áfrýja niðurstöðu
dómsins til Hæstaréttar.
-joe
Ákæran spannaði meint brot á 228 daga tímabili en sök þótti aðeins sönnuð síðustu fimm daga þess:
Sigurjón sakfelldur fyrir markaðsmisnotkun
SAKFELLDUR Sigurjón hyggst áfrýja
niðurstöðu dómsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í mínum huga er
þetta alröng niðurstaða.
KÓLUMBÍA, AP Ellefu ára stúlka
var í lífshættu á sjúkrahúsi eftir
að læknar fjarlægðu 104 hylki,
fyllt af kókaíni, úr maga henn-
ar. Faðir hennar hafði látið hana
gleypa hylkin til að hún gæti
smyglað þeim til Evrópu.
Föðurins er nú leitað, en hann
sást á öryggismyndavél flytja
hana í ofboði á neyðarmóttöku
sjúkrahúss. Stuttu síðar sást
hann yfirgefa sjúkrahúsið hinn
rólegasti.
Á heimili mannsins fannst far-
miði til Evrópu, skráður á nafn
dótturinnar. Um það bil hálft
kíló af kókaíni fannst í hylkjum í
maga hennar. - gb
Föður leitað í Kólumbíu:
Reyndi að láta
dóttur smygla
EFNAHAGSMÁL Einn nefndarmað-
ur greiddi atkvæði gegn tillögu
bankastjóra við síðustu vaxta-
ákvörðun og kaus að halda vöxt-
um óbreyttum. Þetta kemur fram
í fundargerð peningastefnunefnd-
ar, en eins og kunnugt er voru
vextir lækkaðir um 25 punkta.
Sá sem greiddi atkvæði gegn
lækkun taldi að þótt gert væri
ráð fyrir því að verðbólga hjaðn-
aði enn frekar á næstunni væri,
litið lengra fram á veginn, búist
við að hún þokaðist aftur upp
vegna verðbólguþrýstings frá
vinnumarkaði og minnkandi
slaka í þjóðarbúskapnum. - jhh
Ósammála seðlabankastjóra:
Vildi ekki
vaxtalækkun
VAXTAÁKVÖRÐUN Þeir Már Guð-
mundsson og Þórarinn G. Pétursson eru
báðir í peningastefnunefnd.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ekki sátt um kvótafrumvarp
frá sjávarútvegsráðherra
Nýtt frumvarp sjávarútvegsráðherra um framtíðarskipan fiskveiða mætir andstöðu stjórnarandstöðuþing-
manna. Stjórnarmeðlimir í atvinnuveganefnd þingsins vonast þó eftir að breið sátt geti myndast í þinginu.
AFLI
Ólík sjónar-
mið eru á
Alþingi um
efni nýs
frumvarps
sjávarútvegs-
ráðherra.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Snjólaug Ólafsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
LÉTTSKÝJAÐ N-LANDS næstu daga en víða súld eða rigning annars. Strekkingur eða
allhvass V-til í dag og á morgun. Milt í veðri áfram, hiti 3-10 stig í dag og á morgun en
kólnar heldur um helgina.
8°
9
m/s
7°
11
m/s
8°
9
m/s
9°
12
m/s
5-15 m/s,
hvassast
SV- og
V-til
5-13 m/s,
hvassast A
og SA-til
Gildistími korta er um hádegi
6°
20°
3°
9°
14°
5°
9°
7°
7°
22°
11°
23°
20°
18°
11°
6°
7°
8°
7°
4
m/s
7°
5
m/s
6°
5
m/s
6°
3
m/s
7°
5
m/s
7°
11
m/s
3°
12
m/s
8°
7°
7°
5°
8°
7°
6°
6°
5°
5°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
LAUGARDAGUR
Á MORGUN