Fréttablaðið - 20.11.2014, Qupperneq 42
FÓLK|TÍSKA
Hollywood Film Awards hefur ekki vakið sér-staklega mikla athygli í gegnum árin en nú varð nokkur breyting þar á. Einkum þar
sem sjónvarpsstöðvar sýndu verðlaunahátíðinni
athygli að þessu sinni. Hátíðin fór fram í Palladium
í Los Angeles og var glæsileg í alla staði. Rauði
dregillinn dregur alltaf að hóp ljósmyndara, enda
mæta þangað kvikmyndastjörnur í sínu fínasta
pússi. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi
kvikmyndagerð á árinu.
Að þessu sinni hlutu mörg þekkt nöfn verðlaun
og má þar nefna Michael Keaton, Morten Tyldum,
Julianne Moore, Robert Duvall, Keira Knightley,
Shailene Woodley, Eddie Redmayne, Jean-Marc
Vallee, Jack O‘Connell, Gillian Flynn, Janelle Monae
og Mike Myers svo einhverjir séu nefndir.
Tískuráðgjafar segja að svo virðist sem hvítir
eða ljósir kjólar séu mikið í tísku, en margar leik-
konur klæddust ljósu þetta kvöld. Undantekning
var þó Reese Witherspoon sem kom í tvílitum
kjól, svörtum og appelsínugulum. Keira Knightley
þótti í fallegasta kjólnum, hann kemur úr vortísku
franska tískuhönnuðarins Giambattista Valli fyrir
2015. Kjóllinn er úr silki og þykir einstaklega fal-
legur.
KEIRA KNIGHTLEY Í
FLOTTASTA KJÓLNUM
HÁTÍÐ Þær voru margar stjörnurnar sem stigu á svið þegar kvikmyndaverð-
launin The Hollywood Film Awards voru veitt á föstudag. Hátíðinni var í
fyrsta skipti sjónvarpað en hún hefur verið haldin frá árinu 1997.
HVÍTT OG BLEIKT Óskars-
verðlaunaleikkonan Hilary Swank
mætti í fallegum ljósum og
skreyttum kjól með bleikt veski.
GLÆSILEG Leikkonan Julianne
Moore þótti glæsileg í ljósum,
síðerma kjól.
Í SVÖRTU Leikkonan Felicity
Jones skar sig úr í síðum svört-
um kjól.
HIN UNGA Amanda Steele kom
töluvert öðruvísi til fara en eldri
leikkonurnar.
Í LJÓSU Leikkonan Shailene
Woodley í síðum ljósum, ein-
földum kjól.
ÖÐRUVÍSI Reese Witherspoon
skar sig rækilega úr hópnum í
tvílitum hnésíðum kjól.
FLOTTUST Keira Knightley þótti langglæsilegust á hátíðinni.
Save the Children á Íslandi