Fréttablaðið - 20.11.2014, Qupperneq 46
FÓLK|TÍSKA
Þetta var frumraun má segja en ég sýndi vörur eftir mig á sýningu Handverks og hönnunar í Ráð-
húsinu. Ég lauk námi í textílhönnun frá
Myndlistaskólanum í Reykjavík nú í vor,“
segir Guðný Katrín Einarsdóttir textíl-
hönnuður, en hún sýndi handgerðar tösk-
ur, púða og lítil veski undir heitinu Basalt.
Vörurnar hlutu góðar viðtökur á sýn-
ingunni en Guðný litar, þrykkir og saumar
sjálf.
„Í lokaverkefni mínu í skólanum gerði
ég tilraunir með að lita með ryði og tann-
íni og fékk þannig náttúrulega áferð í
litunina. Ég ýmist þrykki eða lita á bómull
og hör en er líka með hefðbundið silki-
þrykk. Vörurnar eru allar meira og minna
handunnar. Munstrin eru sótt í skófir og
stuðlaberg og einnig í form nútímabygg-
inga. Nafnið Basalt kom einmitt til því
ég var svo mikið að skoða steina,“ segir
Guðný Katrín.
„Það var mjög gaman að taka þátt í
sýningunni og sjá hvaða vörur hittu
í mark. Ég fékk góða hugmynd um
hvað ég ætti að þróa áfram. Ég held
að silkiþrykk veki áhuga fólks, það
hefur gaman af hlutum sem eru ein-
stakir en ekki fjöldaframleiddir.
Ég hef aðeins prófað mig áfram með
munstur á barnaboli en hef þó hug á
að einbeita mér að töskum og heimilis-
vörum.“
Guðný Katrín hefur komið sér upp
vinnustofu ásamt þremur öðrum
textílhönnuðum að Lindargötu 66.
Þar verður opið hús á laugardaginn
klukkan 11-16.
„Við erum fjórar sem útskrifuðumst
á sama tíma úr textíldeildinni en ger-
um allar ólíka hluti. Fólk er velkomið
að kíkja til okkar.“
LITAR MEÐ RYÐI
ÍSLENSK HÖNNUN Guðný Katrín Einarsdóttir lauk námi í textílhönnun frá
Myndlistaskóla Reykjavíkur í vor. Hún hannar töskur og púða undir heitinu
Basalt. Opið hús verður á vinnustofu Guðnýjar á laugardaginn.
HEIMILISLÍNA Guðný leggur fyrst og fremst áherslu á töskur, veski og heimilisvörur. TÖSKUR Vörur Guðnýjar eru fáanlegar í
safnbúð Þjóðminjasafnsins.
TEXTÍLHÖNNÐUR
Guðný Katrín Einars-
dóttir sýndi sína fyrstu
vörulínu á nýliðinni
sýningu Handverks og
hönnunar. Opið hús
verður á vinnustofu
hennar að Lindargötu 66
á laugardaginn.
MYND/ERNIR
Bókin „Íslenskt prjón, 25 tilbrigði við hefðbundið
handverk“ eftir Hélène Magnússon sækir innblástur
í prjónamuni sem varðveittir eru á Heimilisiðnaðar-
safninu á Blönduósi. Bókin gefur mynd af prjónahefð
Íslendinga á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar.
Forlagið gefur bókina út og verður útgáfu hennar
fagnað í dag í Eymundsson á Skólavörðustíg 11 milli
klukkan 17 og 18.
Boðið verður upp á léttar veitingar og flíkur úr
bókinni sýndar.
Bókin kom út fyrst á ensku árið 2013 í Bandaríkj-
unum og er þegar í 4. útgáfu. Bókin kom einnig út á
frönsku snemma á árinu.
ÚTGÁFU HANNYRÐA-
BÓKAR FAGNAÐ
Hóf í tilefni af útgáfu bókarinnar
Íslenskt prjón eftir Hélène Magnússon
verður haldið í dag í Eymundsson á
Skólavörðustíg milli klukkan 17 og 18.
ÍSLENSKT
PRJÓN Hélène
Magnússon
er höfundur
bókarinnar.
MYND/VALLI
Opið virka daga kl.
11–18.
Opið laugardaga k
l. 10–16.
Kí
kið
á
m
yn
di
r o
g
ve
rð
á
Fa
ce
bo
ok
Laugavegi 178 | Sími 555 1516
Stærð 36 - 46.
Verð 11.900 kr.
3 litir: grátt, blátt, svart
Rennilás neðst á skálm
.
Nýtt kortatímabil.
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
TU
N
.IS
Virkar lausnir frá OptiBac
Bifidobacteria & Fibre
Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide.
Nitric Oxide hefur áhrif á og bætir: Blóðþrýsting, kólesteról, hjarta- æða-
og taugakerfi, þvagblöðru, lifur, nýru, ofnæmiskerfi, astma, lungnaþembu.
Nitric Oxide stjórnar blóðflæði líkamanns.
Blóðrásin flytur súrefni
og næringarefni
til frumna líkamans
Betra blóðflæði betri heilsa
Fæst í Apótekum og heilsubúðum Umboð: vitex ehf
Mígreni.is
Hausverkur Ekki þjást MigreLief
MigreLief fyrirbyggjandi fæðubótarefni
www.SUPERBEETS.is
www.vitex.is - Fæst í 14 og 28 daga skömmtum. Útsölustaðir apótek og heilsu búðir.
Au k a k í l ó i n b u r t
Aptiless Thylakoids Spínat
Hvers vegna Aptiless?
googlaðu
thylakoids spinach
Ábendingahnappinn
má finna á
www.barnaheill.is