Fréttablaðið - 04.12.2014, Page 4
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
50,1 milljarður er verð-mæti útflutnings
Íslands í síðasta mánuði.
Vöruskipti í nóvember, reiknuð á
FOB-verðmæti, voru hagstæð um 7,1
milljarð króna. Heimild: Hagstofa Íslands
SVEITARSTJÓRNARMÁL Reykjavíkur-
borg hefur sent frá sér umsögn um
fyrirhugaðar breytingar á lögum
um lágmarksútsvar sveitarfélaga.
Bendir Reykjavíkurborg á að hluti
af útsvari reykvískra skattborgara
fari í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
sem áfram renni til sveitarfélaga
á landsbyggðinni til reksturs skóla.
„Minni sveitarfélög fá sum meira
en helming tekna sinna á þennan
hátt frá skatt- og útsvarsgreiðend-
um í öðrum sveitarfélögum til að
standa undir nauðsynlegri grunn-
þjónustu.“ Einnig segir í umsögn-
inni að „þar með væri jafnframt
rofin hin sæmilega sátt sem ríkt
hefur um að íbúar stærri sveitar-
félaga greiði útsvar til hinna minni
til að þau geti veitt grunnþjónustu.“
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
gagnrýnir þá hugmynd að afnema
lágmarksútsvar sveitarfélaga og
telur hugmyndir þess efnis var-
hugaverðar.
„Lágmarksútsvar er haft til að
búa ekki til þá freistingu fyrir sveit-
arfélög að vera með litla þjónustu
og lága skatta og treysta því svo að
íbúar flytji til stærri sveitar félaga
þegar þeir þurfa á þjónustu að
halda. Hugmyndir oddvita Skorra-
dalshrepps, sem er með 58 íbúa og
nær enga þjónustu, í frétt Frétta-
blaðsins eru ágætt dæmi um slíka
hugsun. Honum finnst spennandi
að laða að sér efnameira fólk sem
þarf ekkert frá sveitarfélaginu, og
veita því afslátt af sköttum. Væntan-
lega í trausti þess að það flytji svo
lögheimilið aftur ef þörf á þjónustu
breytist,“ segir Dagur.
Hjalti Jóhannesson, landfræðing-
ur hjá rannsóknarmiðstöð Háskól-
ans á Akureyri, telur varhugavert
að lítil sveitarfélög sem búa við
góðar tekjur vegna stóriðju og virkj-
ana geti lækkað útsvar niður úr hófi
og þannig veitt íbúum skattaafslátt.
„Fljótsdalshreppur er gott dæmi um
slíkt sveitarfélag sem býr við þau
skilyrði að fá gríðarlegar tekjur
af stóriðju. Kárahnjúkavirkjun er
í þeirra landi og því getur sveitar-
félag eins og þetta gripið til þess að
lækka útsvar. Þetta getur ýtt undir
falda búsetu í sveitarfélaginu, að
menn flytji lögheimili í sveitarfé-
lagið en búi ekki þar að staðaldri.“
Hjalti telur það heppilegra ef
sveitarfélög á stærra svæði njóti
góðs af svona stórum virkjunum og
stöðvarhúsum. „Þá eru meiri líkur
á að peningum sé vel varið og nýt-
ist til þeirrar þjónustu sem þarf að
sinna.“ sveinn@frettabladid.is
Sátt yrði rofin um
útsvarsgreiðslur
Reykjavíkurborg telur að ef frumvarp um afnám lágmarksútsvars nái fram að
ganga sé sátt rofin um fyrirkomulag Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Skattgreiðendur
Reykjavíkurborgar leggja mest til sjóðsins sem rennur til minni sveitarfélaga.
Lág-
marksútsvar
er haft til að
búa ekki til
þá freistingu
[...] að vera
með litla
þjónustu og lága skatta.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri.
HÖFUÐBORGIN Fyrirhugaðar breyt-
ingar á lögum um útsvar leggjast ekki
vel í Reykjavíkurborg.
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
KALT Í VEÐRI Snýst í norðanátt í kvöld með heldur kólnandi veðri um allt land.
Hægur vindur víðast hvar á morgun og úrkomulítið en gengur í hvassa suðaustanátt
með töluverðri úrkomu annað kvöld og hlýnar.
-2°
3
m/s
-1°
4
m/s
0°
5
m/s
2
8
m/s
Vaxandi
SA-átt
með
úrkomu
síðdegis.
8-13 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
5°
26°
2°
4°
17°
2°
7°
5°
5°
21°
6°
17°
17°
19°
11°
4°
4°
4°
-4°
5
m/s
1°
9
m/s
-1°
7
m/s
0°
7
m/s
-2°
6
m/s
-1°
6
m/s
-4°
7
m/s
-2°
2°
-4°
-1°
-2°
-1°
-4°
-2°
-5°
-2°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
LAUGARDAGUR
Á MORGUN
SJÁVARÚTVEGUR Ísfisktogari HB
Granda, Ottó N. Þorláksson RE,
verður frá veiðum í tvo og hálfan
mánuð vegna vélarbilunar. Lán
þykir að bilunin kom í ljós áður
en Ottó hélt til veiða fyrir síðustu
helgi í ljósi ofsaveðursins sem þá
gekk yfir.
Á heimasíðu HB Granda kemur
fram að höfuðlega í aðalvél togar-
ans hafi gefið sig.
Ottó N. Þorláksson var smíðaður
árið 1981 í Garðabæ, aðalvélin var
tekin upp í sumar. Bilunin kemur
Grandamönnum því á óvart. - shá
Togari tefst frá veiðum:
Bilaði áður en
veðrið skall á
REYKJAVÍK Áslaug María Friðriksdóttir, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir nauðsynlegt
að fjárfesta í nýsköpun í velferðarmálum ásamt
því að skoða vandlega rekstrarumhverfi þjónustu
Reykjavíkurborgar. Hún kveðst ósátt við hlut vel-
ferðarmála í nýrri fjárhagsáætlun borgarinnar.
„Öldruðum fjölgar mjög mikið og það þarf að
breyta kerfunum sem við erum að reka núna,“
segir Áslaug. „Við veitum hvorki nógu mikla né
góða þjónustu nú þegar til aldraðra og fatlaðra.
Brýnt er að við áttum okkur á hvað gera þurfi.“
Fjárhagsáætlun borgarinnar var samþykkt á
fundi borgarstjórnar seint á þriðjudag. Borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu alls fram
tuttugu breytingartillögur við
áætlunina en aðeins ein var
samþykkt. Áslaug segist ekki
skilja hvers vegna meirihluti
borgar stjórnar taki ekki undir
áhyggjur minnihlutans af vel-
ferðarþjónustu borgarinnar.
„Við vildum meðal annars
setja tuttugu milljónir í úttekt
á umhverfinu sem velferðar-
sviðið rekur,“ segir Áslaug.
„Átta okkur á því hvort það sé nógu skapandi eða
þannig hvetjandi að fólk hafi frelsi til að fylgja
nýjum hugmyndum.“ - bá
Breytingartillögur sjálfstæðismanna við fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar voru felldar:
Telur að skoða þurfi velferðarþjónustuna
ÁSLAUG MARÍA
FRIÐRIKSDÓTTIR
VELFERÐARSVIÐ Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
telja þörf á úttekt á þjónustu borgarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMFÉLAGSMÁL Bónus hefur
ákveðið að veita 10 milljóna
króna styrk í formi gjafakorta
til þrettán góðgerðarsamtaka
sem aðstoða einstaklinga og fjöl-
skyldur í landinu nú fyrir jólin.
Er það von fyrirtækisins að þessi
gjöf komi til með að létta undir
með þeim sem á þurfa að halda í
kringum jólin.
Þær stofnanir sem hljóta styrk
eru útibú Mæðrastyrksnefndar,
Rauða kross Íslands og Hjálpræð-
ishersins víða um land auk Hjálp-
arstarfs kirkjunnar. - jóe
Bónus léttir undir um jólin:
Tíu milljónir til
góðgerðarmála
HJÁLPARSTARF Bónus hefur gefið
góðgerðarsamtökum gjafakort.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FJARSKIPTI Póst- og fjarskipta-
stofnun (PFS) hefur birt ákvörð-
un sína í deilumáli Mílu og
Gagnaveitu Reykjavíkur (GR).
Niðurstaðan er GR í óhag.
Míla taldi GR hafa farið á
svig við reglur með því að sjóða
strengenda ljósleiðara beint á
innanhússlögn í húskassa í stað
þess að nota þartilgerðan tengil-
ista.
Hafnar PFS rökum GR um að
málið heyri ekki undir stofnunina
og segir að fyrirtækinu beri að
tengja endana rétt. Þurfi GR að
bera þann kostnað sem skapast í
kjölfar úrbóta. - jóe
Úrskurður í máli Mílu og GR:
Rangt tengdir
ljósleiðaraendar
ÍSRAEL, AP Ísraelska þingið sam-
þykkti í gær að þing yrði rofið,
þannig að hægt verði að boða til
kosninga snemma á næsta ári.
Tvö ár eru þó enn eftir af kjör-
tímabilinu.
Benjamín Netanjahú forsætis-
ráðherra rak á þriðjudag tvo af
ráðherrum stjórnarinnar, þau
Tsipi Livni og Jaír Lapid. Livni
hefur verið dómsmálaráðherra en
Lapid fjármálaráðherra.
„Undanfarnar vikur hafa ráð-
herrarnir Lapid og Livni harð-
lega gagnrýnt stjórnina sem ég
stýri,“ sagði í yfirlýsingu frá
Netanjahú. „Ég ætla ekki að líða
lengur andstöðu innan stjórnar-
innar.“ - gb
Ríkisstjórn Ísraels fallin:
Þingrof flýtir
kosningum
REKIN Jaír Lapid og Tsipi Livni hafa gagn-
rýnt fyrirhugaða stjórnarskrárbreytingu
sem skilgreinir Ísrael sem ríki gyðinga.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM