Fréttablaðið - 04.12.2014, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 04.12.2014, Blaðsíða 8
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR8 | www.flytjandi.is | sími 525 7700 | 80 ÁFANGASTAÐIR UM ALLT LAND OG EIMSKIP FLYTJANDI KEMUR JÓLAPÖKKUNUM TIL SKILA 750KR. Minnum á fatasöfnun Rauða Krossins á móttökustöðum Eimskips Flytjanda um land allt Hámarksstærð pakka er 0,5 x 0,5 x 0,5 m og hámarksþyngd 45 kg. Glimrandi gott verð fyrir allt að 45 kg þungan pakka – aðeins 750 krónur hvert á land sem er. Sendu jólapakkann þinn fljótt og örugglega með Eimskip Flytjanda. Upplýsingar um næsta afgreiðslustað á www.flytjandi.is ALLT AÐ 0,5 x 0,5 x 0,5 m KG45 | FRÉTTIR | og boðaði til kosninga snemma á næsta ári. „Þetta er sorglegt,“ hafði sænska dagblaðið Dagens Nyhet- er eftir Magdalenu Andersen fjármálaráðherra. „Ég skil það vel að mörgum finnist þeir vera sviknir.“ Löfven kennir hægriflokk- unum um það hvernig fór: „Þeir láta Svíþjóðardemókratana stýra sænskum stjórnmálum.“ Þetta þýðir líka að það verður fjárlagafrumvarp hægriflokk- anna þriggja sem tekur gildi um áramót. Vinstrimönnum í Sví- þjóð líst ekkert á þau, enda fela þau í sér verulegan niðurskurð í ýmsum velferðarmálum. gudsteinn@frettabladid.is SVÍÞJÓÐ Svíþjóðardemókratarnir fengu 12,9 prósent atkvæða og 49 þingmenn í kosningunum sem haldnar voru í Svíþjóð 14. sept- ember síðastliðinn. Þar með kom- ust þeir í lykilstöðu, því hvorki hægri- né vinstriflokkar gátu myndað meirihlutastjórn. Niðurstaðan varð sú að Jafn- aðarmenn mynduðu minnihluta- stjórn með Græningjum. Stefan Löfven, leiðtogi Jafnaðarmanna, varð forsætisráðherra stjórnar- innar, en frá upphafi var ljóst að sú stjórn gæti ekki komið nein- um málum í gegnum þingið nema fá til þess stuðning eða í það minnsta hlutleysi frá einhverj- um hægriflokk- anna. Þrátt fyrir það lögðu Jafn- aðarmenn og Græningjar fram fjárlaga- frumvarp án þess að hafa fyrir fram tryggt sér meirihluta fyrir því á þinginu. Þegar hægri- flokkarnir lögðu svo fram sitt eigið mótfrumvarp, var ljóst að Svíþjóðardemókratarnir myndu í raun ráða því hvort fjárlögin yrðu samþykkt. Hefðu þeir ákveðið að sitja hjá, eins og Löfven gerði sér greini- lega vonir um, þá hefði frum- varpið náð í gegn. Þeir skýrðu hins vegar frá því á þriðjudaginn að þeir myndu greiða atkvæði gegn frumvarpinu á þingi. Uppi varð fótur og fit og Löfven reyndi á síðustu stundu að fá hægriflokkana til að semja um málamiðlun. Ekkert gekk og fjár- lagafrumvarpið var fellt í gær með 182 atkvæðum gegn 153. Löfven beið þá ekki boðanna, sagði af sér Þjóðernissinnar komust í lykilstöðu Hingað til hefur enginn flokkur á sænska þinginu viljað eiga samstarf við Svíþjóð- ardemókratana vegna einstrengingslegrar afstöðu þeirra í málefnum útlendinga. Engu að síður tókst þeim að fella tveggja mánaða gamla ríkisstjórn. RÁÐHERRAR Í VANDA Stefan Löfven forsætisráðherra, annar frá hægri, á blaðamannafundi á miðvikudaginn ásamt Gustav Fridolin menntamálaráðherra, Åsu Romson aðstoðarforsætisráðherra og Magdalenu Andersson fjármálaráðherra. NORDICPHOTOS/AFP Rúmlega aldarfjórðungur er síðan Svíþjóðardemókratarnir voru form- lega stofnaðir sem stjórnmálaflokkur. Flokkurinn hafði þó átt sér forsögu í fyrri flokkum og samtökum, sem tengdust nýnasistum og útlendingahræðslu. Flokkurinn er engan veginn laus við útlendingahræðsluna, þótt leiðtogar flokksins hafi á seinni árum reynt að gefa henni fágaðra yfirbragð og forðist mestu gífuryrðin í almennum umræðum. Flokkurinn fékk 5,7 prósent atkvæða árið 2010 og vann síðan töluverðan sigur nú í haust þegar 12,9 prósent sænskra kjósenda greiddu honum atkvæði. Leiðtogi flokksins er Jimmie Åkesson, en hann hefur verið í veikinda- leyfi síðan upp úr miðjum október. Hann segist sjálfur útbrunninn. Við forystunni tók Mattias Karlsson, sem hefur verið helsti hugmyndafræð- ingur flokksins síðustu árin. ➜ Svíþjóðardemókratarnir MATTIAS KARLSSON Tók við leiðtogahlutverkinu eftir að Jimmie Åkesson fór í langt veikindaleyfi. NORDICPHOTOS/AFP Þetta er sorglegt. Magdalena Andersen, fjármálaráðherra Svía VIÐSKIPTI 365 miðlar hafa gert samning við bandaríska kapal- sjónvarpsrisann Home Box Office (HBO). Samningurinn, sem er til fimm ára, tryggir Stöð 2 viðamikil réttindi á efni HBO. Auk þess að veita Stöð 2 rétt á efni fyrir línulega dagskrá sína og hlið- arstöðva felur samningurinn í sér þriðju kynslóðar réttindi fyrir Stöð 2 Maraþon. Þar geta áhorfendur horft á heilar þáttaraðir eftir eigin hentugleikum en efni HBO er til að mynda ekki að finna á Netflix. „Við erum himinlifandi með þennan samning enda býður HBO upp á efni í hæsta gæðaflokki,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, for- stjóri 365 miðla. Hann bætir við að ánægjulegt sé að hafa landað rétt- inum fyrir Stöð 2 Maraþon þar sem áhorfendur stöðvarinnar vilji hafa sína þætti til taks hvar sem er og hvenær sem er. Meðal þátta sem runnir eru undan rifjum HBO má nefna Game of Thrones, True Detective, Girls og Looking. - jóe 365 miðlar hafa samið við risann Home Box Of ice um sýningu hérlendis: Stöð 2 verður heimkynni HBO HANDSÖLUN Jóhanna Margrét Gísla- dóttir, framkvæmdastjóri sjónvarpssviðs 365 miðla, Jennifer Bowen frá HBO og Sævar Freyr Þráinsson. FRÉTTABLAÐIÐ/AÐSEND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.