Fréttablaðið - 04.12.2014, Blaðsíða 48
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 36TÍMAMÓT
Hvað er í matinn?, samtal ferðaþjón-
ustu og landbúnaðar í Skaftárhreppi,
er eitt 24 verkefna sem hollvinasam-
tök Vatnajökulsþjóðgarðs, Vinir Vatna-
jökuls, veittu styrk þann 1. desember
síðastliðinn. Sandra Brá Jóhannsdótt-
ir, verkefnisstjóri klasans Friður og
frumkraftur, sem eru hagsmunasam-
tök um þrjátíu fyrirtækja og stofnana
í Skaftárhreppi, segist mjög spennt
fyrir verkefninu Hvað er í matinn?
og þakklát fyrir styrkinn sem var ein
milljón króna.
„Það var ákveðið að fara af stað til
að samþætta betur ferðaþjónustuna
hér sem blómstrar vel og landbún-
aðinn og reyna að auka virðisauka
í báðum greinunum. Tilgangurinn
er meðal annars að auka framboð af
staðbundnum matvælum hér í Skaft-
árhreppi og vekja fólk til umhugsunar
um milliliðalaus viðskipti sem myndu
styrkja báðar greinarnar,“ útskýrir
Sandra.
Klausturbleikjan, sem alin er í
tæru lindarvatni undan Vatnajökli,
er þekktust staðbundinna matvæla á
svæðinu, að því er Sandra greinir frá.
„Svo er hér sauðfjárrækt og í haust
var opnað handverkssláturhús í Segl-
búðum í Landbroti. Þar verður slátr-
un og kjötvinnsla samhliða og er þetta
fyrsta sláturhúsið af þessum toga á
landinu.“
Að sögn Söndru langar hana til að sá
fræjum, eins og hún orðar það, og fá
fólk til að opna augun og sjá tækifærin
sem felast í ferðaþjónustu. „Við vorum
með málþing í október síðastliðnum
þar sem okkur langaði til að hefja þetta
samtal ferðaþjónustunnar og landbún-
aðarins. Það tókst mjög vel. Við vorum
með fyrirlesara frá Matís, Háskólanum
á Hólum og ferðaþjónustunni hér til að
koma þessu samtali af stað og kveikja
í fólki. Þetta var fyrsta versið. Vonandi
verður rúsínan í pylsuendanum sú að
hægt verði að bjóða upp á einhvers
konar sælkeraferðir í héraði.“
Hún getur þess einnig að ferða-
menn geri sífellt meiri kröfur um að
þau matvæli sem borin eru á borð séu
staðbundin. Sjálf stefnir Sandra, sem
er alin upp í Skaftárhreppi, að því að
framleiða nautakjöt. „Ég flutti til baka
fyrir ári og er búin að vera með nauta-
eldi hér í eitt ár.“
Markmið hollvinasamtaka Vatnajök-
ulsþjóðgarðs, sem stofnuð voru fyrir
fimm árum, er að afla fjár til að styrkja
á þjóðgarðssvæðinu rannsóknir, kynn-
ingar- og fræðslustarf og stuðla þannig
að því að sem flestir geti notið náttúru
og sögu þjóðgarðsins. Vinir Vatna-
jökuls hafa varið hátt í þrjú hundruð
milljónum króna til styrkveitinga og
eigin fræðsluverkefna frá stofnun sam-
takanna árið 2009. Rúmlega 115 verk-
efni hafa verið styrkt. ibs@frettabladid.is
Sælkeraferðir rúsínan
í pylsuendanum
Samtal ferðaþjónustu og landbúnaðar í Skaft árhreppi eitt verkefnanna sem hlaut styrk
Vina Vatnajökuls. Sandra Brá Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri klasans Friður og frumkraft ur,
segir eft irspurn eft ir staðbundnum matvælum. Hún vonast eft ir sælkeraferðum í héraði.
ÆTLAR AÐ
KVEIKJA Í FÓLKI
Sandra Brá
Jó hanns dóttir,
verkefnisstjóri
klasans Friður
og frumkraftur,
vill fá fólk til að
opna augun og
sjá tækifærin sem
felast í ferða-
þjónustu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR
Digranesheiði 23 í Kópavogi,
fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn
8. desember klukkan 11. Ykkur sem viljið
minnast hennar er bent á Von, félag til
styrktar skjólstæðingum gjörgæsludeildar
LSH í Fossvogi.
Jón Ingi Skúlason Gerður Helgadóttir
Þórdís Kristín Öfjörð Ingólfur Einarsson
Sveinn Skúlason Helga Hjartardóttir
Þóra Skúladóttir Ríkharður Jónsson
Ingigerður Skúladóttir Hrafn Sigurðsson
Magnús Þórarinn Öfjörð Þórunn Ragnheiður Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir mín,
amma okkar og langamma,
HULDA ÓLAFSDÓTTIR
Fellsmúla 9, Reykjavík,
lést á Landspítalanum, Landakoti,
24. nóvember sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Björn Ólafur Gíslason
Jakobína Ólafsdóttir Jón Ragnar Höskuldsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
EVLALÍA SIGURGEIRSDÓTTIR
Holtastíg 8, Bolungarvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða í
Bolungarvík mánudaginn 1. desember sl.
Útför hennar fer fram frá Hólskirkju í
Bolungarvík laugardaginn 13. desember
kl. 14.00.
Halldóra Jóhannsdóttir
Margrét Jóhannsdóttir Bjarni L. Benediktsson
Sigurgeir G. Jóhannsson Guðlaug Elíasdóttir
Oddný H. Jóhannsdóttir Kristján L. Möller
Bjarni K. Jóhannsson Anna S. Jörundsdóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
SAMÚEL ANDRÉS ANDRÉSSON
skipasmiður og kafari,
Gullsmára 9,
sem lést á Landakoti 13. nóvember, verður
jarðsunginn frá Digraneskirkju, föstudaginn
5. desember klukkan 15.
Bergþóra Ásgeirsdóttir
Sigurður Ásgeir Samúelsson Rósa Hansen
Davíð Samúelsson Kristján Andri Stefánsson
Ragnheiður Samúelsdóttir
Anna Berg Samúelsdóttir Stefán Hrafnkelsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur okkar, bróðir,
mágur og frændi,
ÁRNI JÓHANNSSON
framhaldsskólakennari,
Holtateigi 48, Akureyri,
sem lést aðfaranótt 26. nóvember,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju,
fimmtudaginn 4. desember kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri.
Jóhann Helgason Sigríður Árnadóttir
Stefán Jóhannsson Karólína Margrét Másdóttir
Helgi Jóhannsson Kristín Sólveig Eiríksdóttir
Hólmfríður Jóhannsdóttir Unnar Vilhjálmsson
Sigríður Jóhannsdóttir Sigurður Sigurðsson
Eiríkur S. Jóhannsson Friðrika Tómasdóttir
Jónína Þuríður Jóhannsdóttir Guðmundur Örn Sverrisson
frændsystkini og fjölskyldur.
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
KRISTÍNE G. GUÐMUNDSDÓTTIR
lést föstudaginn 28. nóvember sl. á
hjúkrunarheimilinu Fossheimum á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi.
Hún verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 10. desember nk. kl. 11.
Guðrún Kormáksdóttir Ágúst Guðmundsson
Kristín Ósk Unnsteinsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ELÍSABET MARÍA JÓHANNESDÓTTIR
Hrannarstíg 20, Grundarfirði,
lést á Dvalarheimilinu Fellaskjóli, Grundarfirði,
að kveldi sunnudagsins 30. nóvember. Útför
Elísabetar fer fram frá Grundarfjarðarkirkju
laugardaginn 6. desember kl. 13.00.
Kristján H. Guðmundsson Kolbrún Linda Haraldsdóttir
Jóhanna Guðmundsdóttir Þorvarður M. Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
VALGERÐUR GÍSLADÓTTIR
áður til heimilis að Álfalandi 8, Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
1. desember. Útför hennar verður gerð frá
Bústaðakirkju mánudaginn 8. desember
klukkan 13.00. Hjartans þakkir til starfsfólks
dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar fyrir einstaka umönnun,
virðingu og hlýju.
Sólborg Bjarnadóttir Sigurður Kristinsson
Dagbjört Bjarnadóttir Páll Högnason
Hjalti Bjarnason Kristín Kristjánsdóttir
Sigríður Bjarnadóttir Jón Orri Magnússon
ömmu- og langömmubörn.
Þetta var fyrsta
versið. Vonandi verður
rúsínan í pylsuendanum
sú að hægt verði að bjóða
upp á einhvers konar
sælkeraferðir í héraði.
Þessi dagur árið 1980 var sorgardagur
í augum margra tónlistaraðdáenda, en
þá sendu meðlimir rokksveitarinnar Led
Zeppelin frá sér tilkynningu þess efnis að
hljómsveitin hefði lagt upp laupana. Nokkur
óvissa hafði ríkt um framtíð hennar eftir að
trommari sveitarinnar, John Bonham, lést í
svefni hinn 25. september sama ár, eftir að
hafa neytt óheyrilegs magns af áfengi.
Led Zeppelin, skipuð þeim Jimmy Page,
Robert Plant, John Paul Jones og John
Bonham, varð til úr rústum sveitarinnar
The Yardbirds árið 1968. Page, sem var
bassaleikari The Yardbirds, þurfti að
manna sveit ina fyrir tónleikaferðalag um
Skandinavíu eftir að aðrir meðlimir hennar
héldu til annarra starfa. Eftir ferðalagið
tóku félagarnir sér nafnið Led Zeppelin en
orðatiltækið „lead zeppelin“ var stundum
notað yfir slæma tónleika, í þeim skilningi
að þeir hefðu farið eins og zeppelin-loftskip
úr blýi: niður á við.
Led Zeppelin naut gríðarlegra vinsælda á
starfstíma sínum, og hafði að sögn margra
jafnmikil áhrif á tónlistarheiminn á áttunda
áratugnum og Bítlarnir höfðu haft áratug-
inn á undan þeim. Á meðal afraksturs erf-
iðis þeirra eru víðfræg lög eins og Stairway
to Heaven og Dazed and Confused. Á seinni
hluta áttunda áratugarins dró þó nokkuð úr
drifkrafti þeirra, sérstaklega eftir að Robert
Plant meiddist í bílslysi og missti ungan
son sinn skömmu síðar. Það var þó dauði
Bonhams sem gerði endanlega út af við
sveitina, þar sem hljómsveitarmeðlimum
fannst ógerlegt að finna mann í hans stað.
ÞETTA GERÐIST 4. DESEMBER 1980
Led Zeppelin leggur upp laupana