Fréttablaðið - 04.12.2014, Blaðsíða 72
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 60
HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn
Aron Pálmarsson var í ítarlegu við-
tali við þýska blaðið Kieler Nach-
richten þar sem hann fór yfir árin
sín hjá Kiel. Hann yfirgefur félagið
þegar samningur hans rennur út í
sumar og gengur í raðir ungverska
stórliðsins Veszprem.
Aron er á sínu sjötta tímabili
hjá Kiel en hann kom til félags-
ins nítján ára gamall. Hann flutti
út beint frá heimili foreldranna í
Hafnarfirði og fyrstu árin voru
því lærdómsrík.
„Hér þurfti ég að læra að standa
á eigin fótum og sjá um allt sjálf-
ur. Þess vegna var þetta rétt skref
fyrir mig því hér lærði ég að verða
sjálfstæður,“ sagði Aron og bætti
við að árin hjá Kiel hafi einnig
breytt honum sem leikmanni.
„Hér lærði ég hugarfar sigur-
vegarans,“ segir Aron og rifjar
upp samtal sitt við Guðjón Val Sig-
urðsson, þáverandi liðsfélaga sinn,
eftir 29-26 tap gegn Rhein-Neckar
Löwen. Liðin voru jöfn að stigum
fyrir lokasprettinn í deildinni en
Löwen með mun betri markatölu
og auðveldari leikjadagskrá. Kiel
stóð uppi sem Þýskalandsmeistari
eftir ótrúlegar lokaumferðir.
„Hann sagði að við yrðum ein-
faldlega að vinna hvern einasta
leik með fimmtán marka mun,“
sagði Aron sem svaraði honum um
hæl: „OK. Þá gerum við það.“
Aron segir að sér þyki afar vænt
um félagið en segir að það mikla
álag sem fylgi því að spila með
einu besta liði Þýskalands sé gríð-
arlega mikið. „Stundum er ég ein-
faldlega of þreyttur til að fara í
bæjarferð til Hamborgar,“ sagði
hann en leikmenn liðsins fá fáa
frídaga meðan á tímabilinu stend-
ur. Aron hefur þar að auki verið
að glíma við meiðsli og því henti
honum vel að halda til Ungverja-
lands, þar sem álagið er minna.
„En ég vildi semja við félag
sem hugsaði á svipuðum nótum og
Kiel,“ sagði Aron sem vildi ekki
semja við annað lið í Þýskalandi.
PSG og Veszprem hafi komið til
greina en hann valdi síðari kost-
inn.
Aron segir að launamál hafi átt
þátt í ákvörðun hans en hann vildi
þó ekki fara nánar út í þá sálma í
viðtalinu. Fram kemur þó í grein-
inni að samkvæmt heimildum
blaðsins fái Aron 25 þúsund evrur
(3,8 milljónir) í mánaðarlaun en að
Kiel hafi boðið honum 20 þúsund.
Þar að auki mun félagið sjá um
að útvega honum húsnæði og bíl en
Kiel lætur leikmenn sína um að sjá
um slíka hluti sjálfa.
„Ég var spurður hvernig bíl ég
vildi fá,“ sagði Aron og bætti við
að honum væru tryggð laun út
samningstímann þótt hann myndi
meiðast. Í Þýskalandi taka trygg-
ingabætur við þegar leikmenn
verða fyrir alvarlegum meiðslum.
„Það tekur mikið á taugarnar að
vera sífellt að glíma við meiðsli,“
sagði Aron sem er einmitt fjarver-
andi nú vegna meiðsla. - esá
Stundum of þreyttur fyrir bæjarferð
Aron Pálmarsson gerir upp árin hjá Kiel og ræðir um framtíðina hjá Veszprem.
ÖFLUGUR Aron Pálmarsson er á meðal
bestu leikstjórnenda heims þegar hann
er heill heilsu. Það hefur hann marg-
sýnt. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Aðalfundur
Aðalfundur Landssamtaka Eldri Kylfinga, LEK,
verður haldinn sunnudaginn 7. desember 2014
kl. 13.00 í GR Grafarholti.
Venjuleg aðalfundastörf.
Stjórnin.
VALUR – STJARNAN
Mfl. karla
Í Vodafonehöllinni
í kvöld kl. 19.30
Komdu að styðja strákana okkar!
Áfram Valur!
KÖRFUBOLTI „Það er bara snilld að
þetta skuli fara svona vel af stað,“
sagði Helgi Rafn Viggósson, fyr-
irliði Tindastólsliðsins sem hefur
unnið sjö af átta fyrstu leikjum
sínum í Dominos-deildinni eða
alla leiki nema þann sem þurfti að
framlengja á heimavelli Íslands-
meistaranna í KR.
Helgi Rafn spilaði með liðinu
sem féll úr úrvalsdeildinni vorið
2013 en hann hélt tryggð við sitt
lið þegar hann gat örugglega reynt
fyrir sér hjá öðru liði.
Höfðu gott af því að fara niður
„Ég tók bara slaginn og þetta var
það sem menn horfðu á. Það var
mikið af guttum að koma upp og
mikið af efnivið sem hefur sýnt
sig. Við höfðum kannski gott af
því að fara niður því þeir fengu
reynslu og fengu að spila mikið,“
segir Helgi Rafn.
Tindastólsliðið er byggt upp á
tveimur kynslóðum heimamanna,
ungra leikmanna sem eru að stíga
sín fyrstu skref og reynslubolta
sem hafa spilað í langan tíma.
„Það er langt bil á milli elsta
yngsta og yngsta elsta,“ segir
Helgi Rafn í léttum tón. Ungir bak-
verðir liðsins fengu mikla ábyrgð
frá fyrsta leik en nær öll reynsla
liðsins er „geymd“ inni í teig. Nú
síðast tók Svavar Birgisson fram
skóna á ný en hann á möguleika á
því að verða stigahæsti leikmaður
Tindastóls í úrvalsdeild og bæta
met Vals Ingimundarsonar.
Helgi segir það mjög jákvætt að
ungu leikmennirnir fái spilatíma.
„Maður hefur oft séð þegar það er
verið að hleypa ungu leikmönnun-
um inn á þegar tíminn er að verða
búinn. Þjálfarinn hefur mikla
trú á þeim og hleypir þeim inn á
þótt leikurinn sé í járnum. Það er
mjög skemmtilegt en með því fá
Besta byrjun nýliða í 33 ár
Tindastóll hefur unnið sjö af fyrstu átta leikjum sínum í Dominos-deild karla í körfubolta sem er besta
byrjun nýliða frá 1981. „Nú er bara talað um körfubolta á Króknum,“ segir fyrirliðinn, Helgi Rafn Viggósson.
GÓÐ RÁÐ Reynsluboltinn Helgi Freyr Margeirsson talar við hinn 18 ára gamla Viðar
Ágústsson en á bak við þá sést þjálfarinn Israel Martin. FRÉTTABLAÐIÐ/ERN IR
þeir sjálfstraust og þora í þetta,“
segir Helgi Rafn. Hinn 18 ára
gamli Pétur Rúnar Birgisson er
til dæmis mínútuhæsti leikmaður
liðsins en hinn tvítugi Ingvi Rafn
Ingvarsson og hinn 18 ára gamli
Viðar Ágústsson eru báðir að spila
yfir þrettán mínútur að meðaltali.
Spáir í skrokknum á mönnum
Israel Martin tók við liðinu fyrir
tímabilið og það er ekki hægt að
kvarta yfir árangrinum. „Menn
eru mjög sáttir með nýja þjálfar-
ann,“ segir Helgi Rafn en Bárð-
ur Eyþórsson hætti með Stól-
ana eftir að hafa komið þeim upp
í vor. Martin sér um akadem-
íuna á Króknum og þar eru allir
ungu leikmenn liðsins hjá honum.
„Strákarnir mæta hjá honum á
morgnana og eru að græða mikið á
því. Þeir eru að skjóta og lyfta hjá
honum og það hjálpar þeim mikið.
Hann þekkir þá orðið gríðarlega
vel,“ segir Helgi Rafn.
„Hann er mjög fær og spáir
einnig mikið í mannskapinn hvort
sem þú ert 38 ára gamall eða 19
ára. Hann spáir mikið í skrokknum
á mönnum og hvort menn séu ekki
í lagi. Þjálfarinn fylgist því mikið
með manni,“ segir Helgi Rafn en
allur bærinn brosir nú með liðinu.
„Nú er bara talað um körfubolta
á Króknum. Ég er stoppaður alls
staðar þar sem ég kem og það er
allt rætt,“ segir Helgi.
„Það er góð blanda hjá okkur af
leikmönnum, þjálfurum, stjórn og
öllum í kringum þetta. Það þarf
allt að hjálpast að þegar þetta er
svona. Það er mikið af ferðalög-
um og við leikmennirnir erum
að fá frí úr vinnu til þess að kom-
ast í útileikina. Þetta þarf allt að
spila saman,“ segir Helgi og hann
kvartar ekki undan öllum rútu-
ferðunum.
Aríur í rútunni
„Það er fíflast og teknar aríur í
rútunni, bæði á leiðinni heim og á
leiðinni í leiki. Það er bara stemn-
ing. Það þýðir ekkert annað en að
létta sér lund,“ segir Helgi.
Tindastól hefur nú tekist að
jafna frábæra byrjun Framara
frá haustinu 1981 þegar liðið vann
sjö af fyrstu átta leikjum sínum.
Engir nýliðar höfðu náð slíkri
byrjun í 33 ár .
Kolbeinn Kristinsson þjálfaði
Fram þennan vetur en hann gerði
þá nýliðana úr Safamýri meðal
annars að bikarmeisturum. Með
liðinu spilaði bandaríski bakvörð-
urinn Val Bracey, sem er faðir
Austin Magnúsar Bracey sem spil-
ar nú með Snæfelli. Bracey skoraði
28,8 stig að meðaltali í leik.
Miðherji liðsins var landsliðs-
miðherjinn Símon Ólafsson, sem
skoraði þennan vetur 19,8 stig að
meðaltali í leik, og leikstjórnand-
inn var Viðar Þorkelsson, sem
valdi fljótlega fótboltann fram yfir
körfuna.
Ná þeir nýliðameti ÍR-inga?
Tindastólsliðið hefur nú unnið
fimm leiki í röð í Dominos-deild-
inni en vantar enn fjóra sigra til
að jafna met ÍR-liðsins frá 1994-
95. ÍR-ingar unnu þá níu leiki í röð
sem er lengsta sigurganga nýliða í
úrvalsdeildinni.
Næstu leikir Stólanna eru á móti
Snæfelli (heima í kvöld), Haukum
(úti), Skallagrím (heima) og Stjörn-
unni (heima, fyrsti leikur eftir jól).
Þeir jafna metið með því að vinna
þessa fjóra leiki og myndu þá geta
bætt það á útivelli á móti Þór Þor-
lákshöfn.
Helgi er ekki með neinar yfir-
lýsingar um markmið liðsins í
vetur og talar bara um næsta
leik. „Heimavallarréttur í úrslita-
keppninni hljómar vel fyrir okkur
á Króknum en hljómar kannski
ekki eins vel fyrir liðin fyrir sunn-
an. Þetta lítur vel út hjá okkur og
þetta er líka frábært fyrir stuðn-
ingsmennina því það er liðinn
langur tími síðan við vorum við
toppinn,“ segir Helgi Rafn.
„Við erum að fara í hörku pró-
gramm. Nú er bara að enda þenn-
an mánuð vel og fara sáttir í jóla-
fríið,“ sagði Helgi að lokum.
ooj@frettabladid.is
BESTU BYRJANIR NÝLIÐA
Í SÖGU ÚRVALSDEILDAR
KARLA Í KÖRFUBOLTA
(FLESTIR SIGRAR Í FYRSTU ÁTTA LEIKJUNUM)
SJÖ SIGRAR OG EITT TAP
Tindastóll, 2014-15 Fram, 1981-82
SEX SIGRAR OG TVÖ TÖP
Keflavík, 1982-83
FIMM SIGRAR OG ÞRJÚ TÖP
Þór Þorl., 2011-12 Skallagrímur, 2004-05
Fjölnir, 2004-05 Hamar, 1999-2000
Snæfell, 1998-99
KÖRFUBOLTI Níunda umferð Dom-
inos-deildar karla í körfubolta
verður spiluð í heild sinni í kvöld.
Suðurnesjastórveldin Keflavík og
Grindavík eigast við í Sláturhúsinu
í Reykjanesbæ í viðureign tveggja
liða í vandræðum.
Keflvíkingar eru búnir að tapa
tveimur leikjum í röð og eru um
miðja deild með átta stig eftir átta
leiki, en Grindjánar eru búnir að
tapa fjórum leikjum í röð og verma
tíunda sæti deildarinnar, aðeins
búnir að vinna tvo leiki.
Keflvíkingurinn Magnús Þór
Gunnarsson snýr aftur í Sláturhús-
ið í kvöld í gulum búningi Grinda-
víkur, en hann hefur unnið ófáa
titlana með liði Keflavíkur.
Þetta verður í fjórða skiptið
sem hann spilar gegn uppeldisfé-
lagi sínu á gamla heimavellinum,
en þangað mætti hann þrívegis í
grænum búningi Njarðvíkur 2009
og 2010
Magnús var í sigurliði í fyrsta
sinn sem hann sneri aftur í TM-
höllina, en tapaði svo tveimur
næstu leikjum í deild og bikar
með Njarðvík. Nú er bara spurn-
ing hvort hann nái að vinna í gulu
á gamla heimavellinum. - tom
Gengur betur í
gulu hjá Magga
í Sláturhúsinu?
TAPHRINA Magnús Þór og félagar hafa
tapað fjórum í röð. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR