Fréttablaðið - 04.12.2014, Blaðsíða 22
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 22
Landsbankinn ætlar að auglýsa
verktakafyrirtækið Ístak Ísland til
sölu í kringum næstu mánaðamót.
Starfsemi fyrirtækisins í Noregi
verður sett í söluferli núna í des-
ember. Enn er unnið að því að færa
rekstur Ístaks hér á landi, á Græn-
landi og í Færeyjum, inn í dóttur-
félagið Ístak Ísland.
Þetta segir Kristján Kristjáns-
son, upplýsingafulltrúi Lands-
bankans. „Það er nú unnið við að
skipta fyrirtækinu upp og það
þarf að ganga frá efnahagnum
og búa til fyrirtæki úr hverri ein-
ingu. Svo munum við fara að leita
að kaupendum og við stefnum að
því að það verði gert öðrum hvor-
um megin við næstu mánaðamót,“
segir Kristján.
Ístak hefur verið í eigu Lands-
bankans síðan danska móðurfélag-
ið Pihl & Søn varð gjaldþrota í
september 2013. Bankinn auglýsti
fyrirtækið fyrst til sölu í nóvem-
ber það ár en sleit síðan formlega
söluferlinu í apríl síðastliðnum
þegar fimmtán óskuldbindandi
tilboðum var hafnað. Í haust var
tekin ákvörðun um að skipta Ístaki
upp í tvö sjálfstæð fyrirtæki. Ístak
Ísland er annað þeirra en hitt held-
ur utan um starfsemina í Noregi.
„Í Noregi erum við að vinna með
fyrirtækjaráðgjöf Pricewater-
houseCoopers (PWC) í Ósló. Stjórn
Ístaks hefur ákveðið að leita eftir
sölu á rekstri félagsins í Noregi,
eða mögulegum samstarfsaðilum,
en það ferli fer af stað núna í des-
ember,“ segir Kristján.
Hann segir bankann ekki hafa
fengið nein viðunandi tilboð í allan
rekstur Ístaks frá því formlega
söluferlinu var slitið.
„Það er erfitt að selja fyrirtæk-
ið á meðan verið er að vinna að
þessum breytingum. Við höfum þó
verið tilbúnir til að skoða öll tilboð
með þeim fyrirvara að við þurfum
að klára að skipta fyrirtækinu upp
fyrst,“ segir Kristján.
Óskar Jósefsson, framkvæmda-
stjóri Ístaks, segir stefnt að því að
Ístak Ísland verði aðskilið öðrum
rekstri verktakafyrirtækisins fyrir
áramót.
„Við stefnum að því en þessi mál
taka langan tíma enda þarf að skoða
fjölmargt í þessu,“ segir Óskar.
Spurður hvernig verkefna-
staða Ístaks sé segir Óskar að
veturinn verði að öllum líkind-
um rólegur.
„En upp úr miðju næsta ári, og
til lengri framtíðar, er margt í
farvatninu sem maður hefur von
um að raungerist, eins og kísil-
verin og önnur stór verkefni en
fyrirtæki eins og Ístak hefur
tæknilega þekkingu og getu til
að takast á við stór verkefni og
þau hafa síðustu ár verið mjög
takmörkuð hér á Íslandi.“
haraldur@frettabladid.is
Ístak Ísland verður auglýst
til sölu í kringum áramótin
Vinnu við að skipta Ístaki upp í tvö sjálfstæð fyrirtæki lýkur væntanlega á næstu vikum. Landsbankinn ætlar að
auglýsa Ístak Ísland til sölu í kringum næstu mánaðamót. Starfsemin í Noregi sett í söluferli núna í desember.
UNNIÐ Á FULLU Landsbankinn eignaðist Ístak í september 2013 eftir að danska móðurfélagið Pihl & Søn varð gjaldþrota.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
En upp
úr miðju
næsta ári, og
til lengri
framtíðar, er
margt í
farvatninu
sem maður hefur von um
að raungerist.
Óskar Jósefsson,
framkvæmdastjóri Ístaks
Greining Íslandsbanka spáir því
að peningastefnunefnd Seðlabank-
ans ákveði að lækka stýrivexti um
0,25 prósentustig á næsta vaxta-
ákvörðunarfundi sem verður 10.
desember næstkomandi. Einnig
spáir greiningardeildin að vext-
irnir verði aftur lækkaðir á vaxta-
ákvörðunarfundi bankans þann
4. febrúar og standi þá í 5,25 pró-
sentum.
„Rökin fyrir lækkuninni verða
að okkar mati þau að raunvextir
bankans hafi hækkað meira
undan farið en bankinn gerði ráð
fyrir og aðhald peningastefnunn-
ar aukist en ekki minnkað eftir
vaxtalækkunina í nóvember,“
segir í nýrri stýrivaxtaspá deild-
arinnar sem kynnt var í gær. Þar
er einnig tekið fram að hækkun
raunstýrivaxta hafi undanfarið
verið umfram það sem staða hag-
sveiflunnar og nærhorfur gefi
tilefni til. Einnig hafi verðbólgu-
horfur til skemmri tíma batnað
talsvert miðað við það sem gert
sé ráð fyrir í verðbólguspá Seðla-
bankans. „Þá hafa verðbólgu-
væntingar lækkað enn frekar frá
síðasta vaxtaákvörðunarfundi, og
eru nú nálægt verðbólgumark-
miðinu, sérstaklega horft til
skemmri tíma.“
Starfsmenn greiningardeild-
arinnar búast við að vaxtahækk-
unarferli hefjist á ný undir lok
næsta árs og að stýrivextir Seðla-
bankans verði því hækkaðir um
0,25 prósentustig í nóvember
2015.
- hg
Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að peningastefnunefnd Seðlabankans lækki stýrivexti um 0,5%:
Spáir að stýrivextir verði lækkaðir í tvígang
SEÐLABANKINN Stýrivextir eru nú
5,75 prósent en í byrjun nóvember voru
þeir lækkaðir um 0,25 prósentustig.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Stjórn Marels hf. ákvað á þriðju-
dag að veita framkvæmdastjórn
félagsins kauprétt á allt að 2,5
milljónum hluta í félaginu. Allir
meðlimir framkvæmdastjórnar
fyrirtækisins fá 225 þúsund hluti.
„Kaupréttarsamningunum er
ætlað að samtvinna hagsmuni
starfsmanna og félagsins til
lengri tíma,“ segir í tilkynningu
fyrirtækisins til Kauphallarinn-
ar. Þar segir einnig að ákvörðun-
in sé í samræmi við starfskjara-
stefnu félagsins sem samþykkt
var á síðasta aðalfundi Marels í
mars síðastliðnum.
„Heildarfjöldi hluta sem Marel
hf. hefur nú veitt starfsmönnum
sínum kauprétt að er 16,9 millj-
ónir og er þá meðtalin þessi nýja
úthlutun kauprétta.“ - hg
Í samræmi við kjarastefnu:
Fá kauprétt á
hlutum Marels
MAREL Veittur er kaupréttur á hluta-
bréfum á grunnverðinu 0,86 evrur á
hlut. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Greiningardeild Arion banka spáir að fasteigna-
verð hér á landi eigi eftir að hækka um sjö til átta
prósent á ári á næstu tveimur árum. Verðið eigi
síðan eftir að hækka um sex til sjö prósent árið
2017.
Þetta kom fram á morgunfundi greiningardeild-
arinnar í gær þar sem helstu niðurstöður nýrrar
fasteignaskýrslu hennar voru kynntar. Samkvæmt
skýrslunni, sem ber heitið Bóla eða bjartar horfur?,
er ekki verið að blása í nýja bólu á fasteignamark-
aði þrátt fyrir þær verðhækkanir sem hafa átt sér
stað að undanförnu.
„Enda hafa verðhækkanir á fasteignamarkaði
fylgt umsvifum í hagkerfinu,“ segir í samantekt
deildarinnar um skýrsluna.
Á fundinum var einnig fjallað um horfur á leigu-
markaði og þeirri spurningu velt upp hvort leigu-
markaðurinn væri að mettast.
„Greiningardeildin telur að teikn séu á lofti um
að svo sé, en hlutfall heimila á leigumarkaði lækk-
aði árið 2013, í fyrsta sinn frá árinu 2007 […] Mæli-
kvarðar á framtíðareftirspurn gefa einnig til kynna
að eftirspurn sé að fara minnkandi, enda hafa verð-
hækkanir verið töluverðar undanfarin ár.“ - hg
Greiningardeild Arion banka telur að leigumarkaðurinn sé að mettast:
Verðhækkanir ekki merki um bólu
HÚSNÆÐI Á fundinum var einnig bent á að byggingarkostn-
aður er enn nokkuð hár í samanburði við fasteignaverð.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Orkan lækkaði í gær verð á bens-
ínlítra um þrjár krónur og dísil-
lítrann um fjórar krónur. Atlants-
olía lækkaði verðið í kjölfarið.
Verð á bensínlítra og á lítra af
gasolíu er nú það sama hjá þess-
um félögum, eða 220 krónur og 60
aurar. Í tilkynningu Atlants olíu
kom fram að bensínverðið hafi
því lækkað um tæpar 32 krónur
frá því það var hæst í sumar og
að það hefði lækkað um 40 krón-
ur, ef krónan hefði ekki veikst
gagnvart dollar síðan þá. - gs
Bensín 32 krónum ódýrara:
Eldsneytisverð
lækkar enn
Smiðshöfða 12 • 110 Reykjavík • s: 586 8000
helgina 6. og 7. des. frá kl. 10-17
Sýndar verða vélar frá Casolin
og Robland og allt það sem að við
höfum upp á að bjóða í þjónustu
við Tréiðnaðinn
Kaffiá könnunni
UTANRÍKISVERSLUN
Hagstæð vöruskipti
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hag-
stofunnar voru vöruskiptin í nóvember
hagstæð um 7,1 milljarð króna.
Útflutningur nam 50,1 milljarði en inn-
flutningur 43 milljörðum króna. Vöru-
skiptin voru einnig hagstæð í október.