Fréttablaðið - 04.12.2014, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 04.12.2014, Blaðsíða 76
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 64 Rán Flygenring, teiknari gerði óvenjulegt jóladagatal á dögunum. Jóladagatalið ber nafnið Ekki pissa í þig af spenningi og myndskreytti Rán rúllu af klósettpappír. „Þetta er sem sagt dagatal þar sem maður rífur eitt snifsi af á dag. Þetta virkar eins og venjulegt daga- tal en er vonandi líka svona sparn- aðarráð í desember. Á aðfangadag getur maður svo alveg sleppt sér og notað alla rúlluna,“ segir Rán. „Á hverju snifsi er smá heilræði eða jólateikning. Smá svona stemn- ingsvekjandi,“ segir hún en dagatalið er líka hugsað sem jólaskraut fyrir bað- herbergið. Dagatalinu er einnig ætlað að vekja fólk til umhugs- unar um pappírssóun enda á aðeins rífa í burtu eitt snifsi á dag, líkt og að opna einn glugga á dag á hefðbundnari jóladagatölum. Jóladagatalið er ekki í fram- leiðslu enda um tækifærisgjöf af hálfu Ránar að ræða. „Mér var boðið í mat til vina minna og við vorum ekki beðin um að koma með neitt. Þá ákvað ég að koma með dagatalið sem gjöf,“ segir Rán. Hvað framtíðina varð- ar þá útilokar hún ekki frekari framleiðslu á dagatalinu. „Ef fólk er æst þá er ég alveg að hugsa um að splæsa í fleiri og athuga framtíð- armöguleika á framleiðslu.“ - gló Bjó til jóladagatal úr klósettrúllu Rán Flygenring, teiknari, myndskreytti klósettpappírsrúllu og bjó til stemningsvekjandi jóladagatal. TEIKNARI Rán Flygenring gerði dagatal úr klósettpappírsrúllu. MYND/SEBASTIANZIEGLER Skipholt 50d • 105 Rvk • 553 5044 • gydjan.is TAX FREE 20% afsláttur af öllum Guinot snyrtivörum dagana 4, 5 og 6. Des. Gildir ekki af jólatilboðum. HLUSTUM! Heyrnartól Maxell Gildir frá 5.-7.desember Vildarverð kr 6.392 Verð áður kr.7.990 „Það er dásamlegt að hugsa til þess að ég gæti verið að anda að mér sama lofti og hún,“ segir Anna Margrét Gunnarsdóttir, blaðamaður á Nýju lífi, Beyoncé- danskennari og aðdáandi með meiru. „Ég var líka að velta fyrir mér hvað þau væru að gera í bústaðnum, það er alltaf frekar undarlegt dót í sumarbústöðum. Ætli þau séu ekki að spila Fimb- ulfamb eða lesa eldgamla lífs- reynslusögu í Vikunni.“ Anna Margrét hefur haldið upp á Beyoncé síðan á tímum Destiny‘s Child. „Maður reyndi að gera svona hálfar fléttur eins og voru í Say My Name-myndbandinu. Ég get ekki sagt að það hafi tek- ist vel,“ segir hún, en því miður hefur hún aldrei séð söngkonuna á sviði. En hverjum heldur Anna að þau hjónin bjóði í afmælið í dag? „Sko, augljóslega Obama, er það ekki? Þetta verður jafnvel bara þriggja manna partí. Reynd- ar held ég að það sé ömurlegt að spila við hann, hann veit pottþétt öll svörin,“ segir hún hress. Karen Lind Tómasdóttir er bloggari á Trendnet og gam- all Beyoncé-aðdáandi. „Mér finnst þetta magnað, en ég ætl- aði ekki að trúa því fyrst,“ segir hún. „Það er kannski asnalegt að segja frá því, en ég vorkenni þeim smá út af veðrinu, útsýnið er miklu verra. Ég verð líka að viðurkenna að ég hef verið að hugsa til þeirra. Ég hef upplifað Bláa lónið í roki og það er kvöl og pína,“ segir hún. Karen hefur haldið upp á söng- konuna síðan í grunnskóla og gerir enn. „Ég hef bara séð hana einu sinni, sem er skammarlegt. Við vinkonurnar fórum á tón- leika í Manchester og það dugði ekkert annað en dýr- ustu miðarnir alveg upp við sviðið. Maður grenj- aði allan tímann, þetta var ótrúleg upplifun,“ segir Karen, en til að toppa allt voru tónleikarnir teknir upp og á mynddisk- inum má sjá Karen og vinkonu hennar upp við svið- ið . En eigum við eftir að fá að sjá þau? „Það er svo aug- ljóst að það er verið að villa fyrir. Hún er ekki að setja neitt á Instagram og á síðunni henn- ar er látið líta út fyrir að hún sé ægilega upptekin. Miðað við hversu prívat hún er þá stórefast ég um að við fáum að sjá þau,“ segir hún. Stefán Sigurðsson nemi er mikill aðdáandi Beyoncé. „Ég er búinn að vera for- fallinn aðdáandi Beyoncé Gis- elle Knowles-Carter í áraraðir, það besta sem hefur hent mig var að sjá hana í Köben í maí 2013,“ segir hann. „Ég er vandræðalega mikill aðdáandi. Alveg svona að ég ætti ekkert að segja frá því sem maður á þrítugsaldri,“ bætir hann við. „Mér finnst geðveikt að þau séu á Íslandi, vona að fólk sjái sóma sinn í því að leyfa þeim að vera í friði og njóta lands og þjóðar. Við viljum ekki að mesta fagfólk heims upplifi Ísland sem eitthvert blindsker, yfirfullt af hálfvitum sem elta saklaust fólk með snjall- símann eða áhugaljósmyndara- myndavélina sína á lofti því það heldur að einhver fréttaveita í útlöndum borgi milljón fyrir mynd af hnakkanum á Beyoncé í kraftgalla að stíga inn í Range Rover. Hættið þessu bara. “ adda@frettabladid.is Anda að sér sama loft i og Beyoncé og Jay Z Það hefur ekki farið fram hjá neinum að Beyoncé og Jay Z eru stödd á landinu til að fagna 45 ára afmæli hans í dag. Fréttablaðið heyrði í aðdáendum hjónanna. The Double Life of Véronique eftir Krzysztof Kieslowski. Það er svo ótrúlega falleg tónlist í myndinni eftir Zbigniew Preisner. Björk Viggósdóttir listakona FIMMTUDAGSMYNDIN Ætli þau séu ekki að spila Fimbul- famb eða lesa eldgamla lífsreynslusögu í Vikunni. Anna Margrét Gunnarsdóttir Ég er vandræðalega mikill aðdáandi. Alveg svona að ég ætti ekkert að segja frá því sem maður á þrítugsaldri. Stefán Sigurðsson Það er kannski asna- legt að segja frá því, en ég vorkenni þeim smá út af veðrinu, útsýnið er miklu verra. Karel Lind Tómasdóttir ➜ Beyoncé og Jay Z skoðuðu Skógafoss í gær en í fyrradag fóru þau í Bláa lónið. BEYONCÉ OG JAY Z
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.