Fréttablaðið - 04.12.2014, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 04.12.2014, Blaðsíða 20
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | FJÖLSKYLDAN 20 Piltum á meðferðarheimili í Bandaríkj- unum sem fengu að gefa hundum fóður, bursta þá og leika við þá í frítíma sínum leið beitur en piltum sem notuðu frítím- ann við íþróttaiðkun og tölvuleiki. Þetta eru niðurstöður rannsóknar Lindsey Ellsworth við háskóla í Washington á áhrifum meðferðar með hundum. Þátt- takendum í rannsókninni, sem voru á táningsaldri, var skipt í tvo hópa og kváðust piltarnir sem umgengust hundana finna fyrir meiri gleði en hinir. Piltarnir sem umgengust hundana urðu að hafa hömlur á hegðun sinni svo að þeir hræddu ekki hundana. Það leiddi til þess að þeir urðu gætnari í tali og hreyfingum. Greint er frá niðurstöðum rannsóknarinnar á vefnum forskning.no. - ibs Það er ekki bara jógakennarinn sem hlakkar til tímanna í krakkajóga í leikskólanum Öskju í Reykjavík. Krakkarnir njóta tímanna og bíða spenntir eftir þeim. „Þeim finnst þetta rosalega skemmtilegt. Jóga kennir þeim ýmsar leiðir til að róa sig niður og hafa áhrif á tilfinning- ar sínar. Þau verða meðvitaðri um líkamann og öndunina,“ segir Aðal- heiður Jensen leikskólakennari sem jafnframt er jógakennari. „Ég lærði fyrst rope-jóga og eftir það ákvað ég að hella mér út í þetta og læra krakkajóga,“ bætir hún við. Aðalheiður getur þess að frá febrúar 2012 hafi jóga og iðkun núvitundar verið færð inn í leik- og grunnskóla Hjallastefnunnar. Með börnum á leikskólastiginu og fyrstu árum grunnskólans ganga jóga- stundirnar út á leik, söng og dans þar sem jógaæfingar, öndunaræf- ingar, núvitund og slökun eru flétt- aðar inn í. „Það hefur lítið verið í skólakerf- inu sem hjálpar börnum að leita inn á við en nú er að verða breyting á. Í Bandaríkjunum er til dæmis verið að innleiða núvitund í nokkra skóla. Þar eru kennarar þjálfaðir til að stöðva kennslustund þegar þeir sjá að bekkurinn er orðinn órólegur. Þegar kennarinn slær í bjöllu vita allir að næstu 10 mínútur fara í hug- leiðslu og slökun.“ Aðalheiður segir núvitund ganga út á að vera í augnablikinu, vera meðvitaður um það sem er hér og nú. „Með núvitundaræfingum hjálp- ➜ Piltarnir sem umgengust hundana kváðust finna fyrir meiri gleði en hinir. Þau ná svo góðri slökun að það liggur við að það sé nauðsyn- legt að hafa svona stundir markvisst á hverjum degi. Þetta þyrfti að vera í öllum skólum. Dóra Margrét Bjarnadóttir, leikskólastýra í Öskju Börnin í leikskólanum verða rólegri af því að iðka jóga Bæði kennarinn og börnin í leikskólanum Öskju hlakka til jógastundanna. Jóga og núvitund færð inn í leik- og grunnskóla Hjallastefnunnar með góðum árangri. Börnin biðja foreldrana um að iðka með sér jóga. KRAKKAJÓGA Aðalheiður Jensen, leikskólakennari og jógakennari, segir börnin njóta jógastundanna og bíða spennt eftir þeim. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fjáröflunarátak Barnaheilla – Save the Children á Íslandi gegn einelti, Jólapeysan, í ár hafið. Nú er safnað fyrir Vináttu, for- varnaverkefni samtakanna gegn einelti í leikskólum en þangað má gjarnan rekja rætur eineltis, að því er segir á heimasíðu samtak- anna. Jólapeysan 2014 snýst um að stand ast áskorun, íklædd jóla- peysu. Hægt er að skrá sig til leiks á jolapeysan.is, finna upp á áskor- un og hvetja vini og vandamenn til að heita á sig. Nokkrir hafa þegar tekið áskorunum og ætla að gera ýmislegt sem er fyrir utan þægindaramma þeirra. Á síðu Barnaheilla má sjá mynd- skeið þar sem þessir einstak- lingar lýsa því sem þeir ætla að gera og af hverju þeim finnst mikilvægt að vinna gegn einelti. Hápunktur átaksins er á Jóla- peysudaginn sjálfan, þann 12. desember, en öllum er frjálst að hafa sinn jólapeysudag hvenær sem hentar þeim. Á heimasíðu Barnaheilla segir að Vináttuverkefnið sé danskt að uppruna og hafi gefið góða raun. Það byggist á nýjustu rannsóknum og miði að því að skapa aðstæður sem byggjast á umburðarlyndi, umhyggju, virð- ingu og hugrekki, svo einelti fái ekki þrifist. Efni til notkunar í leikskólum og fyrir foreldra hefur verið þýtt og staðfært og er nú notað í tilrauna- og aðlög- unarskyni í sex leikskólum á Íslandi. Markmiðið er að bjóða öllum leikskólum á landinu þátt- töku í Vináttuverkefninu. Haft er eftir Ernu Reynisdóttur, fram- kvæmdastjóra Barnaheilla, að þannig sé hægt að vinna að því að einelti fái ekki jarðveg í sam- skiptum hjá kynslóðinni sem er að vaxa upp. - ibs Fjáröflunarátak Barnaheilla – Save the Children á Íslandi í ár er hafið: Áskorun og jólapeysudagar VINÁTTA Margrét Júlía Rafnsdóttir verkefna- stjóri með efni for- varnaverk- efnisins Vináttu sem safnað er fyrir í ár. Ef munnhirða yrði bætt á hjúkrunarheimil- um í Danmörku væri hægt að koma í veg fyrir lungnabólgu og legu á sjúkrahúsi hjá um 500 öldruðum á hverju ári. Þar sem um 20 pró- sent þeirra sem lögð eru inn á sjúkrahús með lungnabólgu deyja af völdum sjúkdómsins myndi tannburstun bjarga lífi 100 einstaklinga á hverju ári. Þetta hefur Jótlandspósturinn eftir Børge Hede, yfirtannlækni í Kaupmannahöfn. Árangur af kennslu í munnhirðu fyrir starfsmenn nokkurra hjúkrunarheimila, sem aðstoðarmenn tannlækna hafa séð um, hefur verið svo góður að ákveðið hefur verið að taka upp slíka kennslu víðar. Sparnaður sem hlýst af færri innlögnum vegna lungnabólgu gæti numið rúmlega 20 milljónum danskra króna árlega, að sögn yfirtann- læknisins. - ibs Átak í munnhirðu á hjúkrunarheimilum: Tannburstun bjargar lífi MUNNHIRÐA Kennsla í munnhirðu fyrir starsmenn danskra hjúkrunarheimila bar góðan árangur. um við börnum að skilja að hugsanir koma og fara og að við stjórnum því hvernig áhrif þær hafa á okkur. Með slíkum æfingum er verið að efla þá getu að velja sér hugsanir sem gefa frá sér góða orku og gleði og leiða hjá sér hugsanir sem valda vanlíð- an.“ Í krakkajóganu, sem er tvisvar í viku fjórar vikur í senn á hvorri önn, er börnunum kennt að veita andlegri og líkamlegri líðan sinni athygli og þau læra ýmsar leiðir til að róa sig niður, að sögn Aðalheið- ar. „Þeim finnst þetta svo gott að þau biðja sum foreldrana að koma með sér í jóga þegar þau eru komin heim.“ Dóra Margrét Bjarnadóttir, leik- skólastýra í Öskju, er þeirrar skoð- unar að jóga hafi afar góð áhrif á börnin. „Þeim finnst þetta öllum ofboðslega skemmtilegt og þau bíða spennt eftir að komast í tíma. Þau ná svo góðri slökun að það liggur við að það sé nauðsynlegt að hafa svona stundir markvisst á hverjum degi. Þetta þyrfti að vera í öllum skólum.“ Leikskólastýran segir börnin ná miklum innri friði og ró við jóga- iðkunina. „Þau verða alveg slök. Þau eru ekki komin með hömlur eins og fullorðna fólkið og hugur- inn fer ekki að reika eins og gerist stundum hjá því. Jógastundirnar gefa börnunum og mikið og það er sérstaklega gott að hafa þær núna í desember í jólastressinu.“ ibs@frettabladid.is Silfur 925, ykkar teikning. Verð 19.800 kr. Hundar liður í meðferð vegna vímuefnaneyslu: Hundarnir veittu hamingju GLEÐIGJAFI Piltar á meðferðar- heimili urðu glað- ari af því að gæta hunda. NORDICPHOTOS/GETTY Kaldur matur á jólahlaðborðum þarf að vera við 0-4°C og heitur matur þarf að vera a.m.k. 60°C. Þetta kemur fram í leiðbeining- um Matvælastofnunar, MAST, til veitingastaða vegna jólahlað- borða. Í leiðbeiningunum segir jafn- framt að stjórnun á hitastigi í matvælum sé áhrifaríkasta leiðin til að takmarka eða stöðva fjölgun örvera og þar með hættu á matarsjúkdómum og skemmd- um. - ibs Leiðbeiningar MAST: Rétt hitastig á jólahlaðborði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.