Fréttablaðið - 04.12.2014, Síða 6
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Við leggjum höfuðáherslu á það að kallaðar
verði til baka hækkanir á kostnaðarþátttöku
almennings í heilbrigðiskerfinu, sem stefnir í að verði
á næsta ári 1.900 milljónir frá því sem var í tíð
síðustu ríkisstjórnar.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar.
AUKIN ÚTGJÖLD– milljónir króna
HEILBRIGÐISMÁL
Landspítali rekstur 1.250
Landspítali viðhald 400
Sjúkrahúsið á Akureyri 100
Greiðsluþátttaka í heilbrigðiskerfi nu 1.900
MENNTAMÁL
Framhaldsskólar yfi r 25 ára nemendur 500
Listaháskóli Íslands húsnæðisframlag 40
Samstarfsnet háskóla 100
RÚV – fái allt útvarpsgjaldið og hækkun í 19.400 712
MENNINGARMÁL
Myndlistarsjóður 25
Bókasafnssjóður rithöfunda 35
Tónlistarsjóður 25
Ýmis framlög mennta- og menningarmálaráðuneytis 28
Æskulýðsmál, Landssamband æskulýðsfélaga 15
ATVINNUMÁL
Atvinnuleysisbætur 1.000
Vinnumálastofnun 200
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða 600
Hafnarframkvæmdir, Helguvíkurhöfn 180
ANNAÐ
Græna hagkerfi ð 70
Lífeyristryggingar / tekjutrygging örorkulífeyrisþega 640
Útlendingastofnun 50
Skattrannsóknarstjóri ríkisins 50
Jöfnun á örorkubyrði almennra lífeyrissjóða 658
Nýframkvæmdir í vegamálum 600
Þolendur kynferðisofb eldis 56
Sóknaráætlun 400
AUKIN ÚTGJÖLD SAMTALS 9.634
1. Hvaða sveitarfélag hefur hug á að
nota seyru til landgræðslu?
2. Hjá hvaða sænska liði var Birkir
Már Sævarsson að skrifa undir?
3. Hver þykir líklegastur til að taka
við sem varnarmálaráðherra BNA?
SVÖR:1. Ölfus 2. Hammarby 3. Ashton Carter
STJÓRNMÁL Stjórnarandstaðan á
Alþingi hefur sameinast um að
leggja fram breytingartillögur við
fjárlagafrumvarp næsta árs.
Tillögurnar fela í sér að útgjöld
aukist um 9,63 milljarða króna. Á
móti kemur að gert er ráð fyrir að
tekjur aukist um rúma 7,47 millj-
arða króna. Önnur umræða um
fjárlagafrumvarpið hófst á Alþingi
í gær. Fyrr um daginn kynnti
stjórnarandstaðan breytingartil-
lögur sínar á blaðamannafundi.
„Við höfum náð saman um það að
leggja fram sameiginlegar tillögur
við meðferð fjárlaga. Við reynum
með því að sýna forgangsröðun
okkar og þá sýn sem við myndum
vilja sjá endurspeglast í fjárlög-
um,“ sagði Árni Páll Árnason, for-
maður Samfylkingarinnar, á fund-
inum.
„Við leggjum höfuðáherslu á það
að kallaðar verði til baka hækkanir
á kostnaðarþátttöku almennings í
heilbrigðiskerfinu, sem stefnir í að
verði á næsta ári 1.900 milljónir frá
því sem var í tíð síðustu ríkisstjórn-
ar,“ sagði Árni Páll. Að auki legði
minnihlutinn til breytingar sem
tryggi að framhaldsskólinn verði
áfram opinn fólki yfir 25 ára aldri.
Þá leggur minnihlutinn til að
útvarpsgjaldið hækki í 19.400 krón-
ur á einstakling og renni óskert í
ríkissjóð.
Katrín Jakobsdóttir, formaður
VG, sagði að það að lækka útvarps-
gjaldið væru skilaboð frá stjórn-
armeirihlutanum sem stönguð-
ust á við skilaboð stjórnar RÚV.
Jafnvel þótt stjórnin væri skipuð
að meirihluta af fulltrúum þess-
ara sömu flokka. „Við teljum að við
þær aðstæður sem eru á fjölmiðla-
markaði sé sterkt almannaútvarp
mikilvægara en nokkru sinni fyrr.
Þannig að við leggjum mjög mikla
áherslu á að þetta fái að vera í
þeirri upphæð sem það hefur verið
og að það renni óskipt til Ríkisút-
varpsins. Og erum þannig í takti
við stjórn Ríkisútvarpsins,“ sagði
Katrín.
Þá sagði hún að stjórnarandstað-
an legði áherslu á samstarf háskóla.
„Stefnu sem virðist hafa verið horf-
ið frá í tíð núverandi ríkisstjórnar.
Það voru áður fjármunir til þess að
styrkja samstarfsnet háskólanna.
Háskólarnir hafa gert athugasemd-
ir við það að þessir fjármunir hafa
verið teknir burt og við leggjum til
að þeir verði settir inn aftur. Og
við leggjum til að það verði settir
fjármunir í að tryggja húsnæðis-
mál Listaháskólans sem hafa verið
í ólestri lengi,“ sagði Katrín.
Guðmundur Steingrímsson, for-
maður Bjartrar framtíðar, lagði
áherslu á áframhaldandi uppbygg-
ingu í grænu atvinnulífi og grænu
hagkerfi. Meiri peningur verði sett-
ur í það. „Núna er sá peningur að
renna einhvern veginn eftir mjög
óskiljanlegum leiðum í endurnýjun
gamalla húsa undir þeim formerkj-
um að torfbæir séu grænt hagkerfi
og þessu viljum við mótmæla. Það
var mjög vönduð vinna við skil-
greiningu á uppbyggingarverkefni
á græna hagkerfinu á síðasta kjör-
tímabili sem við þurfum að halda
okkur við,“ sagði hann.
Þá sagði Guðmundur einnig mjög
nauðsynlegt að ráðast í uppbygg-
ingu ferðamannastaða: „Það blas-
ir við að það þarf að setja pening í
framkvæmdasjóð ferðamannastaða
og við viljum gera það.“
Birgitta Jónsdóttir sagði að ný
skoðanakönnun, sem gerð hefði
verið að frumkvæði pírata, sýndi
það mjög skýrt að þjóðin vildi að
skattpeningum væri varið í heil-
brigðis- og menntamál. Það er
algjörlega yfirgnæfandi stuðningur
við það. Mér finnst mjög ánægju-
legt að verða við ákalli um aukin
fjárútlát til BUGL vegna neyðar-
ástands,“ sagði Birgitta. Efla þyrfti
geðheilbrigðisþjónustu barna og
unglinga almennt.
„Þá finnst okkur mjög brýnt að
stytta biðlista hjá Útlendingastofn-
un. Það er mjög nauðsynlegt að
minna innanríkisráðuneytið á þann
fjárlagalið,“ sagði Birgitta.
Vilja aukin útgjöld í heilbrigðismál
Stjórnarandstaðan lagði í gær fram sameiginlegar breytingartillögur á fjárlagafrumvarpinu. Formenn flokkanna leggja áherslu á að meira
fé verði varið í heilbrigðismál, að staða Ríkisútvarpsins verði styrkt og ráðist verði í uppbyggingu ferðamannastaða á landinu.
STJÓRNARANDSTAÐAN Formenn stjórnarandstöðuflokkanna kynntu áherslur
sínar í Alþingishúsinu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Jón Hákon
Halldórsson
jonhakon@frettabladid.is
Njóttu aðv
entunnar með góðgæti frá Kexsmiðjunni.
Smakkaðu jólasmákökurnar frá Kexsmiðjunni.
Jólasmákökur
frá Kexsmiðjunni
fást í helstu verslunum
Gleðileg íslensk jól
Langflestir vilja að Alþingi for-
gangsraði fjármunum í þágu heil-
brigðismála. Þetta sýnir ný könn-
un sem Capacent Gallup gerði
fyrir pírata.
Af þeim sem spurðir voru settu
langflestir heilbrigðismálin í for-
gang. Næst á eftir heilbrigðismál-
um komu mennta- og fræðslumál
og númer þrjú kom almanna-
trygginga og velferðarmál. Í
fjórða sæti komu svo öryggis- og
löggæslumál. Neðst í forgangs-
röðuninni eru svo kirkjumál.
Viðhorf fólks til þess hvernig
ætti að forgangsraða skiptast
ekki eftir tekjuhópum. Tekju-
hæsta fólkinu, því tekjulægsta
og þeim sem eru í millitekjuhóp-
um finnst öllum mikilvægast að
forgangsraða í þágu heilbrigð-
ismála. Þá er jafnframt mjög
lítill munur á afstöðu fólks eftir
menntun eða stjórnmálaskoðun-
um.
Könnunin, sem var netkönnun,
var gerð dagana 6.-20. nóvem-
ber. Tilgangurinn var að kanna
hvernig Íslendingar vilja að
Alþingi forgangsraði fjármun-
um í fjárlögum. Úrtakið var 2.900
manns á öllu landinu, 18 ára og
eldri, handahófsvaldir úr Við-
horfahópi Capacent Gallup. 1.775
manns svöruðu spurningunni og
var svarhlutfallið 61,2 prósent.
- jhh
Viðhorf fólks til forgangsröðunar skattfjár eru óháð kyni, menntun og stjórnmálaskoðunum:
Vilja að skattpeningar fari í heilbrigðismál
Á LANDSPÍTALA Í FOSSVOGI
Flestir landsmenn vilja að skattfé sé
varið í heilbrigðismál.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEISTU SVARIÐ?