Fréttablaðið - 04.12.2014, Síða 10
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR |
Fyrsta línan sýnir hin árlegu hefðbundnu lágtekjumörk. Ef
þessi breyting greindi fátækt á Íslandi væri niðurstaðan sú
að það hefði dregið úr fátækt í kjölfar hrunsins. Það er rangt.
Hún jókst. Það sem gerðist var að tekjudreifing dróst saman
og tekjur lækkuðu meira hjá fólki með háar tekjur.
ÞRÓUN LÁGTEKJUMARKA HLUTFALL FÓLKS SEM SKORTIR EFNISLEG GÆÐI FÓLK SEM NEITAR SÉR UM LÆKNAÞJÓNUSTU
Fátækt barna hefur rokið úr ellefu
prósentum árið 2008 upp í 32 pró-
sent samkvæmt greiningu UNICEF
á fátækt barna.
„Það er ekkert rangt við grein-
ingu UNICEF,“ segir Dr. Kolbeinn
Stefánsson, félagsfræðingur hjá
Hagstofu Íslands. „Aðferðin sem
þau beita er leið til að átta sig á
því hvað margir eru með sama eða
minni kaupmátt og þeir sem voru
við lágtekjumörk árið 2008.
Það er þó ekki þannig að 30 pró-
sent barna á Íslandi búi við alvar-
legan skort, en það er miklu stærra
hlutfall foreldra sem nær ekki
endum saman enda skiptir miklu
hvaða ár er notað til viðmiðunar.“
Ekkert má út af bera
„UNICEF notar árið 2008 en niður-
staðan er önnur ef miðað er við
2005. Skýrasta vísbendingin sem
við höfum um aukna fátækt í kjölfar
hrunsins er sú að hlutfall þeirra sem
eiga mjög erfitt með að ná endum
saman hækkar mjög og stendur í
11,7 prósentum árið 2013. Sum í
þessum hópi skortir efnisleg gæði,
en hin eru sennilega í þeirri stöðu
að hlutirnir ganga upp en það má
ekki mikið út af bera. Hækkanir á
verðlagi, óvænt útgjöld eða tíma-
bundinn tekjumissir gæti verið nóg
til að setja þessa foreldra í mjög
erfiða stöðu.“
Kolbeinn segir Hagstofuna einnig
fylgjast með skorti barna í sam-
starfi við UNICEF. Nú er í vinnslu
lífskjararannsókn þar sem hugað er
að stöðu barna. Niðurstaðan mun
birtast á fyrstu mánuðum næsta
árs. „Maður á von á því að sjá breyt-
ingar í ýmsu er varðar hag barna,
til dæmis tómstundaiðkun þeirra.
Börn efnaminni foreldra stunda
síður tómstundir en önnur.“
Í kvarðanum sem notaður er til
mælinga er spurt um fatnað, tóm-
stundir, fæðu og aðstöðu til náms
og leikja. Aðeins þarf tveimur atrið-
um á listanum að vera ábótavant til
þess að barnið teljist líða efnislegan
skort.
Brekkan brött
Í síðasta þætti fréttaskýringa-
þáttarins Bresta var rætt við fjöl-
marga sem eiga um sárt að binda
vegna fátæktar. Ein þeirra var Ása
Sverrisdóttir, einstæð þriggja barna
móðir. Hlutskipti hennar er dæmi-
gert fyrir stóran hluta Íslendinga
þar sem ekki má mikið út af bera til
þess að komið sé í óefni. Hún skildi
og missti atvinnu sína og skömmu
síðar seig á ógæfuhliðina hjá henni.
„Þá varð brekkan dálítið brött,“
sagði Ása. Meðal þess sem fjölskyld-
an gat ekki leyft sér var að halda
afmælisveislu fyrir dóttur hennar.
Kolbeinn bendir á að ástæða sé
til þess að taka allar vísbending-
ar um fátækt alvarlega því ekki sé
hægt að mæla fátækt beint. Aðeins
sé hægt að leita eftir vísbendingum
um skort og gera mælingar.
„Skortur á efnislegum gæðum
er kvarði til að sjá hvernig fólk
hefur það raunverulega úti í sam-
félaginu. Það er erfitt að mæla
fátækt en þessi kvarði hjálpar til
við að finna út stöðu einstaklinga
og barna.
Við erum með stækkandi hóp
sem nær að halda sér á floti en það
má ekkert út af bera. Þeir mega
ekki veikjast, fara til tannlæknis
eða tæki bila, þá er það orðið eitt-
hvað sem gæti breytt öllu og leitt
til skorts.“
Á pari við Bandaríkin
Í nýlegri greiningu fréttamiðilsins
Forbes, er greint frá stöðu þeirra
landa sem urðu hvað verst úti í
efnahagshruninu og sett í sam-
hengi við barnafátækt í fjögur
ár eftir hrun. Barnafátækt jókst
mikið í Grikklandi, eða um 17,5
prósent, frá árinu 2008 og var
hlutfallið 40,5 prósent árið 2012.
Í Bandaríkjunum jókst hlutfallið
aðeins um tvö prósent en er þó í 32
prósentum eins og á Íslandi.
Fátækt barna þrefaldast frá hruni
Fátækt barna hefur aukist mest í þeim löndum sem urðu verst úti í efnahagshruninu 2008. Fátækt íslenskra barna fer úr 11 prósentum
2008 í 32 prósent 2012 samkvæmt tölum UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Dr. Kolbeinn Stefánsson segist viss um að 30 prósent
barna á Íslandi búi ekki við alvarlegan skort en segir greiningu UNICEF gefa vísbendingar um stöðu barna innan efnaminni fjölskyldna.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjanabjorg@frettabladid.is
Við erum
með stækk-
andi hóp sem
nær að halda
sér á floti en
það má ekkert
út af bera.
Þeir mega ekki veikjast.
fara til tannlæknis eða
tæki bila, þá er það orðið
eitthvað sem gæti
breytt öllu.
Dr. Kolbeinn Stefánsson,
félagsfræðingur hjá Hagstofu Íslands.
Hér má sjá hlutfall Íslendinga sem eiga mjög erfitt með
að láta enda ná saman. Fyrri mælingin bendir til þess að
það sé svipað hlutfall sem skortir efnisleg gæði eftir hrun
og á árunum 2004-7. Það má skýra með því að fólk breytir
útgjaldahegðun þegar þrengir að og horfir í hverja krónu.
Kolbeinn nefnir að hlutfall fólks sem neitar sér um nauð-
synlega læknisþjónustu sé sterk vísbending um skort. Þessi
kostnaður sé sá sem fólk sleppir þegar kreppir að.
25
20
15
10
5
12
9
6
3
0
10
8
6
4
2
0
Lágtekjumörk - árleg
Lágtekjumörk 2008
Lágtekjumörk 2005
Skortur á efnislegum gæðum
Mjög erfitt að láta enda ná saman
Tannlæknir
Læknir eða sérfræðingur
2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013
% % %
1 Eiga þau ný föt?
2 Eiga þau tvö pör af skóm sem
passa?
3 Fá þau ferska ávexti og grænmeti
einu sinni á dag?
4 Fá þau þrjár máltíðir á dag og
inniheldur ein af þeim kjöt, fisk,
kjúkling eða prótein af einhverju
tagi?
5 Eru til bækur á heimilinu sem
passa aldri barnanna?
6 Eiga þau hjól eða önnur útileik-
föng?
7 Eiga þau leikföng sem henta
þeim?
8 Taka þau þátt í tómstundastarfi af
einhverju tagi?
9 Eru fjárráð til að halda upp á sér-
stök tilefni eins og afmæli?
10 Geta þau boðið vinum heim í
heimsókn?
11 Geta þau boðið vini í mat?
12 Geta þau tekið þátt í skólaferðum
og viðburðum á vegum skólans?
13 Hefur barnið góða námsaðstöðu?
SVARAR ÞÚ EINHVERJUM ÞESSARA SPURNINGA NEITANDI?
Ef merkt er við fleiri en tvö atriði þá búa börnin þín við skort.
STÓR RANNSÓKN Í VINNSLU Dr. Kolbeinn Stefánsson greinir frá því að í vinnslu sé viðamikil rannsókn á stöðu íslenskra barna.
Þá skýrist væntanlega staða þeirra betur. Svipuð rannsókn var framkvæmd árið 2009. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gjafakort
Borgarleikhússins
Gefðu töfrandi stundir í jólapakkann. Kortið
er í fallegum umbúðum, gildir á sýningu
að eigin vali og rennur aldrei út.
ASKÝRING | 10
TÖLFRÆÐI UM FÁTÆKT Á ÍSLANDI