Fréttablaðið - 04.12.2014, Page 18

Fréttablaðið - 04.12.2014, Page 18
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 18 MÓTTÖKUATHÖFN Í MALASÍU Herhljómsveit í Malasíu tekur þátt í viðhafnarmóttöku þegar forsætisráð- herra Bangladess kom í heimsókn til forsætisráðherra Malasíu í gær. VOPNIN EYÐILÖGÐ Í KÓSÓVÓ Verkamenn í Kósóvó hella bræddum málmi í mót fyrir ræsislok, en málm- urinn var bræddur úr meira en tvö þúsund skammbyssum og rifflum. SJÁLFSVÍGSÁRÁS Í SÓMALÍU Bifreið brennur við hlið flugvallarins í Mogadisjú í Sómalíu, þar sem sjálfs- vígsárásarmaður varð að minnsta kosti þremur öðrum að bana í gær. FLÓTTAMANNABÚÐIR Í LÍBANON Börn frá Sýrlandi sitja við tjald í flóttamannabúðum í bænum Al Faúr, skammt frá landamærum Sýrlands. MÓTMÆLI Í HONG KONG Tjöld mótmælenda þekja enn götur í aðalverslunarhverfi Hong Kong, en leið- togar mótmælanna tilkynntu uppgjöf sína á þriðjudag. MÓTMÆLI Í MEXÍKÓBORG Grímuklæddur mótmælandi biður aðra mótmælendur um að ráðast ekki á kaffihús, þar sem viðskiptavinir hafa þjappað sér saman baka til. Mótmælin í Mexíkóborg á mánudag, vegna námsmannanna 43 sem rænt var í haust, gengu að mestu friðsamlega fyrir sig, en hópur fólks gekk um og braut rúður og kveikti í fyrirtækjum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BJÖRGUNARÆFING HERSINS Á INDLANDI Indverski sjóherinn efndi til björgunaræfingar úti fyrir borg- inni Múmbaí á þriðjudag, tveimur dögum fyrir miklar hersýningar sem haldnar verða í dag til að minnast stríðsins við Pakistan árið 1971. NORDICPHOTOS/AFP ÁSTAND HEIMSINS 1 1 4 4 2 2 5 5 3 3 66 7 6 7

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.