Fréttablaðið - 04.12.2014, Page 38

Fréttablaðið - 04.12.2014, Page 38
FÓLK|TÍSKA Galliano stimplaði sig inn í tískuheim-inn á ný með fallegri ræðu á bresku tískuverðlaunahátíðinni á mánudag- inn. Hönnuðurinn var í raun ólíkur sjálfum sér, skegglaus og í látlausum smóking. Hann þakkaði sönnum vinum sínum stuðninginn í gegnum erfitt tímabil í sínu lífi, þá sérstaklega Önnu Wintour, ritstjóra bandaríska Vogue, en henni afhenti hann einmitt verðlaun fyrir framúrskarandi afrek í heimi tískunnar. Galliano er fæddur á Gíbraltar en hóf feril sinn í London og lítur á sig sem Breta. Hann starfaði í fjöldamörg ár sem listrænn stjórnandi Givenchy og síðar Dior í París þar til hann var rekinn þaðan með skömm árið 2011. Það sem varð Galliano að falli voru fordómafull ummæli um gyðinga og Asíubúa en fyrir þau var Galliano dæmdur til að greiða sex þúsund evrur í sekt. Galliano hefur síðan farið í áfengis- og fíkniefnameðferð og þykir nú sem nýr maður. Hann hefur snúið aftur í sviðs- ljósið, fengið uppreisn æru og starfar sem listrænn stjórnandi tískuhússins Margiela. NÝR GALLIANO FERILLINN AFTUR Á FLUG Það var settlegur John Galliano sem afhenti Önnu Wintour verðlaun á bresku tískuverðlaunahátíðinni í vikunni. Tískuhönnuðurinn hefur nú snúið aftur í sviðsljósið eftir að hann féll í ónáð árið 2011 fyrir fordómafull ummæli. HÁLFKLÆDDUR Galliano er sjaldnast hræddur við að sjokkera fólk. Svona klæddur fór hann á svið eftir tískusýningu í París í október 2007. SETTLEGUR Galliano var skegglaus og í klassískum klæðum þegar hann afhenti verðlaun á bresku tískuverðlaunahá- tíðinni á mánudaginn. Hér er hann með fyrirsætunni Naomi Campbell. SJÓLIÐI Kátur sjóari á vor- og sumarsýningu Dior í París 2011. VINIR Í jakka í bresku fánalitunum og bláum sarí með vinkonu sinni, Önnu Wintour, árið 1993. Win- tour átti stóran þátt í því að endurreisa feril Galliano eftir að hann féll í ónáð. GYÐINGLEGUR Galliano með höfuðfat sem líkist því sem rétttrúaðir gyð- ingar bera. Á tískusýn- ingu í París í mars 2004. SÍGAUNI Á sýningu í París í janúar 2011 þar sem sígaunar voru hönnuðin- um hugleiknir. FYRIRMENNI Galliano á há- tískusýningu Dior í París í janúar 2010. LIÐSFORINGI Á sýningu Dior í janúar 2007 var Galliano undir áhrifum frá óperunni Madame Butterfly. Sjálfur kom hann fram sem Pinkerton liðsforingi. Stærðir 38-52 Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur s: 571-5464 my style Smart föt, fyrir smart konur 4 Kláraðu öll jólainnkaupin á sama stað Hvar? Veislusal Spretts, Garðabæ Hvenær? Sunnudaginn 14. des á milli klukkan 13.00 og 18.00 Á staðnum verður fjöldinn allur af söluaðilum með vörur á gjafaverði bara fyrir þig ! Gjafavara, bökunarvörur, jólaskraut, handverk, tískufatnaður, barnavörur, glervörur, skartgripir, kökubasar, jólatréssala, jólatónlist, listakonur og menn og spákona. Blóðrásin flytur súrefni og næringarefni til frumna líkamans Betra blóðflæði betri heilsa Nitric Oxide er uppistaðan í rislyfjum Fæst í Apótekum og heilsubúðum Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide. SUPERBEETS örvar Nitric Oxide framleiðslu strax. Betra blóð- flæði, allt að 30% æðaútvíkk un, 30% meiri súrefnisupptaka, réttur blóðsykur, 20% meira þrek orka og úthald. Nitric Oxide hefur áhrif á og bætir: Blóðþrýsting, kólesteról, hjarta- æða- og taugakerfi, þvagblöðru, lifur, nýru, ofnæmiskerfi, astma, lungnaþembu. Bætt ris hjá körlum, aukin kynörvun kvenna. N á n a ri u p p lý si n g a r w w w .S UP ER BE ET S. is U m bo ð: v it ex e hf Jólagjöfin í ár Rauðrófukristall

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.