Fréttablaðið - 04.12.2014, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 04.12.2014, Blaðsíða 60
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 48 FIMMTUDAGUR Jólaandi mun ríkja í Bókasafni Sel- tjarnarness síðdegis í dag þegar strengjasveit Helgu Þórarinsdótt- ur kemur þar fram klukkan 17.30. Sveitin er skipuð nemendum og kennurum úr Tónlistarskóla Sel- tjarnarness. Helga lenti í alvarlegu slysi fyrir tveimur árum, hlaut mænuskaða og lamaðist. Áður hafði hún verið leiðandi víóluleikari Sinfóníu- hljómsveitar Íslands í þrjátíu ár og auk þess kenndi hún við Tónlistar- skóla Seltjarnarness. Nú helgar hún sig kennslunni. „Ég á vinkonu sem sagði við mig: „Þú bara verður að fara að vinna.“ Ég hélt kannski að það vildi enginn fá mig en svo náttúrlega var þetta kannski mín besta lækning. Það er dásamlegt að fá að umgangast ungt fólk. Líka gaman og gefandi að vera í tónlistinni þótt ég geti ekki spilað.“ Strengjasveitin ætlar að spila verk eftir Bach, Haydn og Corelli ásamt nokkrum jólalögum. Tónleikarnir eru fastur liður í dagskrá bókasafnsins og hluti af samstarfsverkefni safnsins og Tónlistarskóla Seltjarnarness undir heitinu Tónstafir. Aðgangur er ókeypis. „Bækurnar eru bara færðar til og sófar og stólar settir í staðinn, mjög kósí,“ segir Helga. - gun Dásamlegt að fá að umgangast ungt fólk Strengjasveit Helgu Þórarinsdóttur leikur jólatónlist á Bókasafni Seltjarnarness síðdegis í dag. STRENGJASVEITIN „Við ætlum að spila jólakonsertinn eftir Corelli, Haydn- og hugguleg jólalög,“ segir Helga. Ég hélt kannski að það vildi enginn fá mig en svo náttúrlega var þetta kannski mín besta lækning. „Þetta er tíunda árið sem ég stjórna tónleikum á dánarstund Mozarts. Það er mikið búið að æfa og allt orðið slípað,“ segir Garð- ar Cortes, stjórnandi Óperukórs Reykjavíkur. Fjórir einsöngvar- ar koma fram með kórnum í nótt í Langholtskirkju, Nanna María Cortes, Hanna Dóra Sturludóttir, Garðar Thor Cortes og Kristinn Sigmundsson. Eins og fyrri ár er það Sálu- messa Mozarts sem verður flutt á þessum hátíðlegu næturtónleikum. „Nú eru 223 ár frá því Mozart kvaddi þennan heim. Við minn- umst hans og þökkum honum og svo minnumst við líka íslensks tón- listarfólks sem hefur fallið frá á árinu, ekki bara atvinnufólks held- ur líka annarra sem hafa lagt líf sitt í tónlistina og gert okkur rík- ari með söng og hljóðfæraleik,“ segir Garðar. Langholtskirkja verður opnuð klukkan hálf tólf í kvöld og tón- leikarnir hefjast klukkan hálf eitt. - gun Minnast Mozarts á miðnæturtónleikum Óperukórinn í Reykjavík efnir til minningartónleika upp úr miðnætti í kvöld í Langholtskirkju. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 4. DESEMBER 2014 Tónleikar 19.30 Aðventutónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands í Hörpunni í kvöld þar sem hljómsveitarverk og konsertar eftir Johann Sebastian Bach eiga fastan sess. Brandenborgarkonsertarnir teljast til höfuðverka barokktímans og hafa í gegnum tíðina verið aufúsugestir á tónleikadagskrám, bæði hjá hlustendum og flytjendum. Það á jafnt við um tví- konsertinn sem er í ítölskum stíl en hann er meðal þekktustu og dáðustu verka tónskáldsins. Einleikshlutverkin verða í höndum konsertmeistara Sinfóníuhljóm- sveitarinnar, Sigrúnar Eðvaldsdóttur og Nicola Lolli. 20.00 Hacker Farm, KRAKKKBOT og Trouble troða upp í Mengi í kvöld. 2.000 krónur inn. 20.00 Við klingjum inn aðventuna með jólatónleikum Vocal Project, Poppkórs Íslands í Hörpu sem ásamt sérstökum heiðursgesti, hinum eina sanna Páli Óskari, er hin fullkomna uppskrift að ein- stöku jólastuði og stemningu með dassi af kósýheitum. 4.500 krónur inn. 20.00 Kvennakór Hafnarfjarðar heldur jólatónleika í kvöld í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði. Gestir tónleikanna er Karlakórinn Þrestir. Stjórnendur eru Erna Guðmundsdóttir og Jón Kristinn Cortez. Hljóðfæraleikarar eru Antonía Hevesi, Jónas Þórir og Kristrún H. Björnsdóttir. Miðaverð er 2.500 kr. 20.00 Morning Bear er sviðsnafn tón- listarmansins Johns Runnels, sem kemur frá Denver, Colorado. Hann treður upp á Hlemmur Square í kvöld. Frítt inn. 20.00 Í tilefni af útkomu geislaplötunnar 525 efnir Gunnar Gunnarsson píanóleik- ari og organisti til tónleika í Fríkirkunni í kvöld. Þar kemur hann fram með djasstríó sitt, sem auk hans er skipað þeim Ásgeiri Ásgeirssyni á gítar og Þorgrími Jónssyni á kontrabassa. Þeir félagar munu leika útsetningar Gunnars á íslenskri sálma- tónlist, þá sömu og er að finna á plötunni nýju, en ekki er ólíklegt að eldra efni fái að hljóma líka, því nýverið komu einnig fyrstu tvær plötur Gunnars, Skálm og Stef út í nýrri og breyttri útgáfu. 21.00 Hinir árlegu jólatónleikar Borgardætra á Rósenberg. Á efnisskrá eru jólalög úr ýmsum áttum, gamanmál og almenn skemmtilegheit. Verð 5.300 krónur. Athugið að Rósenberg tekur við borðapöntunum í síma 551-2442. 21.00 Adam Evalds treður upp ásamt Quest á Rúbín í kvöld. 21.00 Rafmagnaðir tónleikar á Húrra. Fram koma Einar Indra, Mosi Musik og Tanya & Marlon. 1000 krónur inn. 22.00 Tónlistarmaðurinn Gímaldin heldur tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da í kvöld. 23.50 Óperukórinn í Reykjavík ásamt sin- fóníuhljómsveit halda tónleikana Mozart á miðnætti í Langholtskirkju. Einsöngvarar eru Nanna María Cortes, Hanna Dóra Sturludóttir, Garðar Thór Cortes og Kristinn Sigmundsson. Stjórnandi er Garðar Cortes. Tónlist 20.30 Myndbandið við lagið Sirens með Young Karin verður frumsýnt á Kexi Host- eli í kvöld. Magnús Leifs leikstýrði mynd- bandinu. Bjór í boði og svo verða Emmsjé Gauti og Unnsteinn með DJ sett. 21.00 DJ SpeEgill spilar á Frederiksen Ale House í kvöld. 21.00 DJ Davíð Roach þeytir skífum á Húrra. 21.00 Trúbadorarnir Alexander & Guð- mann spila á English Pub í kvöld. 21.00 DJ Styrmir Dansson spilar á Bar Ananas í kvöld. 21.00 DJ King Agzilla spilar á Prikinu í kvöld. 21.00 DJ Gísli Galdur þeytir skífum á Kaffibarnum. 21.00 Laundry Acoustic Band frá Austur- ríki treður upp á Dillon í kvöld. Bækur 17.00 Hinn árlegi jólafundur Kvenrétt- indafélags Íslands og Kvennasögusafns Íslands verður haldinn í Þjóðarbókhlöð- unni í dag. Steinar Bragi mætir og les upp úr skáldsögu sinni Kötu, Kristín Steins- dóttir les upp úr skáldsögunni Vonarland- ið og Björk Þorgrímsdóttir og Valgerður Þóroddsdóttir lesa upp úr Konur á ystu nöf og fleiri meðgönguljóðum. 17.00 Velkomin á tilnefningahátíð Fjöruverðlauna, bókmenntaverðlauna kvenna í dag. Hátíðin verður haldin í Borgarbókasafninu í Tryggvagötu. Dóm- nefndir tilnefna bækur í þremur flokkum: fagurbókmenntir, barna- og unglingabók- menntir, fræðibækur og rit almenns eðlis. Fjöruverðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 2007. Tilgangur Fjöruverðlaunanna er að stuðla að aukinni kynningu á ritverkum kvenna og hvetja konur í rithöf- undastétt til dáða. 20.00 Næsta Höfundakvöld í Gunnarhúsi er í kvöld. Þá mæta þau Oddný Eir Ævarsdóttir og Steinar Bragi, lesa upp og svara spurningum Höllu Oddnýjar Magnúsdóttur um nýútkomnar bækur sínar. Allir velkomnir á meðan stólar leyfa, aðgangur 500 kr. Fyrirlestrar 16.30 Í dag verða tveir fyrirlestrar í stofu 101 í Odda í fyrirlestraröð Miðaldastofu Háskóla Íslands um Landnám Íslands. Er eitthvað að marka staðháttalýsingar í fornsögum? Getur Landnáma líka verið heimild um landnámið? 17.00 Streitustúdíó er nýjung á Íslandi. Þetta er samstarfsverkefni Streituskólans og Hörpu með það að markmiði að gera nýjustu þekkingu á streitu og áhrifum hennar á líf okkar og heilsu aðgengilega. Þátttakendur hlusta á fyrirlestur um streitu og fá tækifæri til að hitta sér- fræðinga Streituskólans sem sjá um fræðsluna. 3.500 krónur inn. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Á ÆFINGU Nanna María, Hanna Dóra, Garðar Thor og Kristinn fara yfir sína þætti Sálumessunnar undir næmu eyra stjórnandans. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Og svo minnumst við líka íslensks tón- listarfólks sem hefur fallið frá á árinu. Garðar Cortes
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.