Fréttablaðið - 04.12.2014, Síða 62

Fréttablaðið - 04.12.2014, Síða 62
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 50 Vertíð kvikmyndaverðlaunanna er gengin í garð á ný með hverri glæsiathöfninni á eftir annarri í Bandaríkjunum þar sem bestu myndir ársins eru m.a. valdar. Á þeim þremur hátíðum sem eru afstaðnar og eru taldar gefa vísbendingar um Óskarsverðlaunin á næsta ári, Gotham Awards, New York Film Critics Circle og National Board of Review, vekur athygli að aldrei var sama myndin valin sú besta. Sá heið- ur féll í skaut Bird man, Boyhood og A Most Vio- lent Year. Tvær hátíðirnar eru samt sammála um að Julianne Moore hafi verið besta leikkonan fyrir frammistöðu sína í Still Alice. The New York Critics Circle Venjulega fá myndirnar sem eru verðlaunaðar á þessari hátíð einnig tilnefningar til Óskarsverð- launanna, jafnvel þótt sigurvegararnir í flokknum „besta myndin“ séu ekki alltaf þeir sömu. Í fyrra var American Hustle valin besta myndin á hátíð- inni, Steve McQueen besti leikstjórinn fyrir 12 Years a Slave, Bruno Delbonnel fyrir kvikmynda- tökuna í Inside Llewyn Davis og Cate Blanchett fyrir Blue Jasmine. Allar þessar myndir voru áber- andi á Óskarshátíðinni. Í ár var stóri sigurvegarinn Boyhood, sem hefur einmitt verið orðuð við Óskarinn. Óvíst er samt hvort þessi óvenjulega mynd, sem tók tólf ár í vinnslu, hljóti verðlaunin eftirsóttu. Sigurvegarar Besta myndin: Boyhood Besti leikstjórinn: Richard Linklater (Boyhood) Besta handritið: The Grand Budapest Hotel Besta leikkonan: Marion Cot illard (The Immigrant og Two Days, One Night) Besti leikarinn: Timothy Spall (Mr. Turner) The National Board of Review Eins og The New York Critics Circle gefa þessi verð- laun vísbendingar um Óskarsverðlaunin. Á síðustu fimm árum hafa bestu myndirnar á NBR verið Her, Zero Dark Thirty, Hugo, The Social Network og Up in the Air. Þær voru allar tilnefndar sem besta myndin á Óskarnum. Í þetta sinn hlaut A Most Violent Year verðlaunin en leikstjórinn, J.C. Chandor, er þekktast- ur fyrir fjármálahrunsmyndina Margin Call. Sigurvegarar Besta myndin: A Most Violent Year Besti leikstjórinn: Clint East wood (American Sniper) Besti leikarinn (jafntefli): Oscar Isaac (A Most Violent Year) og Michael Keaton (Birdman) Besta leikkonan: Julianne Moore (Still Alice) The Gotham Awards Gotham-verðlaunin lýsa sjálfum sér sem „skrítnum“ verðlaunum og sigurvegararnir eru oftast sjálf- stæðar myndir. Samt gætu einhverjar af myndun- um sem voru verðlaunaðar í ár tekið þátt í Óskars- kapphlaupinu, þar á meðal Birdman í leikstjórn Spánverjans Alejandro González Iñárritu sem á að baki Babel, 21 Grams og Amores Perros. Sigurvegarar Besta myndin: Birdman Besti leikarinn: Michael Keaton (Birdman) Besta leikkonan: Julianne Moore (Still Alice) Óskarsvísbendingar frá verðlaunahátíðum Þrjár verðlaunahátíðir eru afstaðnar í Bandaríkjunum sem þykja gefa vísbend- ingar um hvaða kvikmyndir og leikarar fái Óskarstilnefningar á næsta ári. A MOST VIOLENT YEAR Jessica Chastain og Oscar Isaac leika aðalhlutverkin í A Most Violent Year. BÍÓFRÉTTIRAFMÆLISBARN DAGSINS 50 ára Marisa Tomei leikkona Þekktust fyrir: My Cousin Vinny Begin Again Rómantísk gamanmynd Aðalhlutverk: Keira Knightley, Adam Levine og Mark Ruffalo. FRUMSÝNINGAR 7,5/10 83% Tökur í janúar Tökur á endurgerðinni The Secret in Their Eyes hefjast í janúar í Los Angeles. Með aðalhlutverk fara Chiwetel Ejiofor, Julia Roberts og Nicole Kidman. Leikstjóri verður Billy Ray sem er þekktastur fyrir handritin að The Hunger Games og Captain Phillips. Ejiofor leikur lögfræðing sem snýr aftur til Los Angeles eftir að ný sönnunargögn í 13 ára gömlu máli, þar sem barn var myrt, koma upp. Um er að ræða endurgerð á argentínsku myndinni El secreto de sus ojos sem fékk Óskarsverð- laun árið 2009. Scorsese hjá HBO Martin Scorsese mun leikstýra fyrsta þættinum í nýrri sjónvarpsþáttaröð frá HBO sem fjallar um rokksenuna á áttunda áratugnum í New York þar sem kynlíf og eiturlyf voru áberandi. Scorsese verður einnig framleiðandi þáttanna en með honum við gerð þeirra eru Mick Jagger, söngvari The Rolling Stones, og handritshöf- undurinn Terence Winter. Helstu leikarar verða Bobby Cannavale, Ray Romano og Olivia Wilde og í aukahlutverkum verða Juno Temple og Andrew „Dice“ Clay. Jared Leto, Will Smith, Tom Hardy, Margot Robbie, Jai Courtney og fyrirsætan Cara Delevingne leika í nýrri mynd Warner Bros., Suicide Squad. Hún er byggð á myndasögu DC og fjallar um hóp ofurhetjuillmenna sem stjórnvöld veita tækifæri til að bæta ráð sitt. Vandamálið er að tækifærið mun líklega verða til þess að þau munu öll deyja. Orðrómur um leikarana í mynd- inni hefur lengi verið í gangi en frumsýning er fyrirhuguð 5. ágúst 2016. Leikstjóri verður David Ayer sem hefur leikstýrt Fury og End of Watch. „Við hlökkum til að sjá þetta frábæra leikaralið undir leið- sögn Davids Ayer, sýna hvað það þýðir að vera illmenni og hvað það þýðir að vera hetja,“ sagði Greg Silverman, forseti Warner Bros. Að sögn innanbúðarmanna er Jesse Eisenberg í viðræðum um að leika Lex Luthor í myndinni, að því er Variety greindi frá. Hann mun leika sama hlutverk í Batman versus Superman: Dawn of Justice. Suicide Squad verður fyrsta mynd Jareds Leto síðan hann vann Óskarinn fyrir hlutverk sitt í Dall- as Buyers Club. Smith og Robbie (úr The Wolf of Wall Street) sjást næst í myndinni Focus, en Hardy er aftur á móti þessa dagana að leika í The Revenant á móti Leon- ardo Di Caprio. Hún er væntanleg í bíó eftir ár. Enska fyrirsætan Delevingne sést næst á hvíta tjald- inu í myndinni Pan sem fjallar um ævintýri Péturs Pan. Sjálfsmorðssveitin er stjörnum prýdd Jared Leto, Will Smith og Tom Hardy á meðal leikara. ➜ Leikarar og hlutverk: Jared Leto– Jókerinn (1) Will Smith – Deadshot (2) Tom Hardy – Rick Flag (3) Margot Robbie – Harley Quinn (4) Jai Courtney – Boomerang Cara Delevingne – Enchantress 1 2 3 4 Rómantík í Róm Paradox Studios og AMBI Pictures hafa lokið framleiðslu á rómantísku gamanmyndinni All Roads Lead to Rome. Leikstjóri er Ella Lemhagen og með aðal- hlutverk fara Sarah Jessica Parker, Paz Vega, Raoul Bova, Claudia Cardinale og Rosie Day. Þau Lemhagen, Cindy Myers og Josh Appignanesi skrifuðu handritið. Myndin fjallar um Maggie (Parker) og fyrrverandi ítalskan elskhuga hennar (Bova) sem fara í ferðalag um Ítalíu í leit að upp- reisnargjarnri dóttur Maggie (Day).

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.