Fréttablaðið - 04.12.2014, Page 70
4. desember 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 58
ÚRSLIT
FORKEPPNI HM 2015
ÍSLAND - MAKEDÓNÍA 33-23
Ísland - Mörk (skot): Karen Knútsdóttir 14/6
(18/7), Ásta Birna Gunnarsdóttir 4 (5), Þórey Rósa
Stefánsdóttir 4 (7), Ramune Pekarskyte 3 (4),
Þórey Anna Ásgeirsdóttir 2 (3), Rut Jónsdóttir
2 (4), Brynja Magnúsdóttir 1 (1), Arna Sif Páls-
dóttir 1 (1), Hildur Þorgeirsdóttir 1 (2), Birna Berg
Haraldsdóttir 1 (2).
Varin skot: Florentina Grecu-Stanciu 13 (31/1,
42%), Guðrún Ósk Maríasdóttir 3 (8/1, 38%),
Hraðaupphlaup: 9 ( Ásta 4, Þórey 2, Ramune,
Þórey Anna 2)
STAÐAN
Ísland 3 3 0 0 86-61 6
Ítalía 4 2 0 2 88-95 4
Makedónía 3 0 0 3 65-83 0
NÆSTI LEIKUR
Makedónía - Ísland lau. kl. 16.45
DOMINO‘S-DEILD KVENNA
KEFLAVÍK - SNÆFELL 71-76
Keflavík: Carmen Tyson-Thomas 19/11 fráköst/8
stolnir, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 14/7 fráköst,
Sandra Lind Þrastardóttir 11/5 fráköst.
Snæfell: Kristen Denise McCarthy 32/10 fráköst,
Hildur Sigurðardóttir 20/13 fráköst, Gunnhildur
Gunnarsdóttir 11/5 fráköst/5 stolnir, Rebekka Rán
Karlsdóttir 3, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 3.
HAMAR - HAUKAR 41-70
Hamar: Sydnei Moss 14/12 fráköst, Þórunn
Bjarnadóttir 9/8 fráköst, Sóley Guðgeirsdóttir 6.
Haukar: LeLe Hardy 17/23 fráköst/6 stoðsend-
ingar/6 stolnir, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 12/8
fráköst, Sólrún Inga Gísladóttir 11.
GRINDAVÍK - KR 80-60
Grindavík: Rachel Tecca 24/9 fráköst/6 stoðsend-
ingar, Petrúnella Skúladóttir 14/6 fráköst.
KR: Simone Jaqueline Holmes 18/10 fráköst,
Bergþóra Holton Tómasdóttir 10/7 fráköst.
BREIÐABLIK - VALUR 68-71
Breiðablik: Arielle Wideman 20/6 fráköst,
Berglind Karen Ingvarsdóttir 16/5 fráköst,.
Valur: Joanna Harden 24/10 fráköst, Kristrún
Sigurjónsdóttir 13, Ragna Brynjarsdóttir 10.
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
ARSENAL - SOUTHAMPTON 1-0
1-0 Alexis Sanchez (89.)
CHELSEA - TOTTENHAM 3-0
1-0 Eden Hazard (19.), 2-0 Didier Drogba (22.),
3-0 Loic Remy (73.)
EVERTON - HULL 1-1
1-0 Romelu Lukaku (34.), 1-1 Sone Aluko (59.)
SUNDERLAND - MAN. CITY 1-4
1-0 Connor Wickham (19.), 1-1 Sergio Aguero
(21.), 1-2 Stevan Jovetic (39.), 1-3 Pablo Zabaleta
(55.), 1-4 Sergio Aguero (71.)
STAÐAN
Chelsea 14 11 3 0 33-11 36
Man. City 14 9 3 2 31-14 30
Southampton 14 8 2 4 24-10 26
Man. United 14 7 4 3 24-16 25
West Ham 14 7 3 4 23-17 24
Arsenal 14 6 5 3 22-15 23
Liverpool 14 6 2 6 19-19 20
Tottenham 14 6 2 6 18-21 20
Newcastle 14 5 5 4 15-17 20
Swansea City 13 5 4 4 17-14 19
Everton 14 4 6 4 24-22 18
Aston Villa 14 4 4 6 8-18 16
Stoke City 14 4 3 7 14-18 15
Sunderland 14 2 8 4 13-23 14
Crystal P. 14 3 4 7 18-23 13
WBA 14 3 4 7 14-20 13
Hull City 14 2 6 6 15-21 12
Burnley 14 2 6 6 10-22 12
QPR 13 3 2 8 14-25 11
Leicester 14 2 4 8 14-24 10
Aðalfundur
Golfklúbbsins Kjalar (GKJ)
verður haldinn í Framhaldsskóla Mosfellsbæjar,
fimmtudaginn 11. desember 2014 kl. 20:00
Dagskrá:
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á vegum félagsins
Endurskoðaðir og áritaðir reikningar lagðir fram til samþykktar
Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
Lagabreytingar
Kosning stjórnar og endurskoðenda
Ákvörðun félagsgjalda
Kosning aganefndar
Önnur mál
Félagar eru hvattir til að mæta
ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA Íþróttasam-
band fatlaðra hélt upp á alþjóðleg-
an dag fatlaðra á besta mögulegan
hátt í gær þegar sambandið verð-
launaði besta íþróttafólks ársins
úr sínum röðum í árlegu kaffiboði
sínu á Radisson SAS á Hótel Sögu.
Jón Margeir Sverrisson og
Thelma Björg Björnsdóttir voru
valin íþróttafólk ársins og þá
fékk Knattspyrnusamband Íslands
hvataverðlaun ÍF.
Jón Margeir með nýtt met
Jón Margeir Sverrisson setti nýtt
met í gær en hann varð þá fyrsti
karlmaðurinn sem er kosinn fjór-
um sinnum Íþróttamaður ársins
hjá fötluðum. Jón Margeir bætti
met Hauks Gunnarssonar og Jóns
Odds Halldórssonar sem höfðu
fengið þessi verðlaun þrisvar.
Jón Margeir var kosinn íþrótta-
maður ársins þrjú ár í röð frá
2010 til 2012 en missti bikarinn
til Helga Sveinssonar í fyrra.
„Nú er bikarinn kominn aftur
til mín og ég fæ hann líka vonandi
aftur á næsta ári og líka eftir Ríó.
Við sjáum bara til hvernig gengur
en það er nóg fram undan,“ sagði
Jón Margeir en hann er með nógan
metnað. Jón Margeir á reyndar
talsvert í að bæta met Kristínar
Rósar Halldórsdóttur sem fékk
þessi verðlaun tólf sinnum.
Jón Margeir endaði árið með
því að setja tvö heimsmet og þrjú
Evrópumet sömu helgi og hann
hélt upp á 22 ára afmælið sitt. Alls
urðu Evrópumetin fjögur á árinu.
„Ég náði að halda vel upp á
afmælið mitt úti í Manchester,“
sagði Jón Margeir brosandi en
hann varð Evrópumeistari í ágúst.
„Ég náði stóru afreki og mínu
besta afreki á árinu á Evrópu-
meistaramótinu. Það var flott-
ur árangur þar en vonandi verða
bara HM og Ólympíuleikarnir enn
þá flottari,“ sagði Jón Margeir.
Ekki hræddur við pressu
„Það er alltaf pressa en ég er
ánægður að hafa flotta samkeppni
og það er líka gott að hafa góða
styrktaraðila á bak við mig. Ég er
ekki hræddur við neina pressu.
Maður þarf bara að harka af sér
og keyra á þetta í hverju einasta
móti,“ sagði Jón Margeir.
Jón Margeir fékk mikla sam-
keppni frá Helga Sveinssyni, frá-
farandi Íþróttamanni ársins hjá
fötluðum, en þeir urðu báðir Evr-
ópumeistarar á árinu. „Við Helgi
erum góðir félagar og við eigum
í flottri samkeppni um að ná í
þennan bikar. Við hvetjum allt-
af hvor annan áfram,“ segir Jón
Margeir.
„Við sjáum til hvort við náum
verðlaunum á HM á næsta ári
eða á Ólympíuleikunum 2016 en
ég stefni í það minnsta á gull á
báðum mótum,“ segir Jón Mar-
geir. En hefur hann pláss fyrir öll
þessi verðlaun?
„Það er svo lítið pláss heima
hjá mér þannig að við þurfum að
færa eitthvað til að koma bikarn-
um fyrir. Ég geymi öll verðlaunin
í herbergi og það er alveg orðið
fullt. Ég þarf ekkert að hugsa um
neitt jólaskraut því medalíurnar
eru mitt jólaskraut,“ sagði Jón
Margeir Sverrisson léttur.
Ætlar sér að vinna þrjú ár í röð
„Ég er rosalega ánægð með
þetta,“ sagði Thelma Björg
Björnsdóttir skælbrosandi en hún
var annað árið í röð kosin íþrótta-
kona ársins hjá fötluðum. Thelma
Björg setti alls 43 Íslandsmet á
þessu ári, fimm fleiri en í fyrra.
„Þetta var ólíkt ár því í fyrra og
aðalástæðan var Evrópumeistara-
mótið,“ sagði Thelma Björg en hún
vann sín fyrstu verðlaun á EM í
Eindhoven þegar hún tryggði sér
brons. Ég geymi verðlaunapening-
inn minn í herberginu mínu svo að
ég sjái hann alltaf,“ sagði Thelma.
Hún segist aldrei fá leið á sundinu
þótt það fari mikill tími í æfing-
arnar. En ætlar hún að vinna þessi
verðlaun þrjú ár í röð?
„Já,“ svarar Thelma Björg um
leið. Það er enginn vafi í hennar
huga. Hún keppir á heimsmeist-
aramótinu á næsta ári og þá er
hún farin að hugsa um Ólympíu-
mótið í Ríó. „Kannski kemst ég á
pall á HM,“ sagði Thelma.
Með mikið keppnisskap
„Ég er mjög stolt af henni. Þetta
er rosalegur árangur enda er hún
rosalega kappsöm og samvisku-
söm. Það er mikið keppnisskap í
henni,“ sagði landsliðsþjálfarinn
Kristín Guðmundsdóttir, en hún
var einnig fyrsti þjálfari Thelmu
Bjargar.
Thelma Björg var róleg í yfir-
lýsingunum þegar hún var komin
með bikarinn í hendurnar en bros-
ið var innilegt.
„Hún er hógvær dama,“ sagði
Kristín en hvernig fer Thelma að
því að setja 81 Íslandsmet á tveim-
ur árum. „Það er mikil þjálfun
og mikið keppnisskap sem er að
skila henni þessu. Hún er líka með
rosalega gott utanumhald og gott
stuðningsnet í foreldrum, þjálf-
urum og öllum í kringum sig. Það
helst allt í hendur,“ sagði Kristín
og hún á góðar minningar frá því
þegar Thelma kom fyrst til henn-
ar.
Lofaði að fara með henni til Ríó
„Við ætlum saman til Ríó. Ég er
íþróttakennari og sundkennari
og byrjaði að kenna henni í fyrsta
bekk. Ég kom henni af stað í sund-
inu og hef síðan verið að fara með
henni út sem landsliðsþjálfari. Ég
sá þetta rosalega góða keppnis-
skap strax í fyrsta bekk og ég lof-
aði henni því þegar hún var að
stíga sín fyrstu skref að ég ætlaði
með henni til Ríó,“ sagði Kristín
en síðan eru liðin sjö ár og nú er
stelpan á góðri leið inn á leikana
eftir tæp tvö ár.
„Það er mjög gaman að sjá að
hún sé komin svona langt og hjálp-
ar mér líka rosalega mikið í að
halda áfram,“ segir Kristín sem
hefur sjálf unnið frábært starf
með fötluðum. ooj@frettabladid.is
Þarf ekkert jólaskraut í ár
Sundfólkið Jón Margeir Sverrisson og Thelma Björg Björnsdóttir voru í gær valin íþróttafólk ársins hjá
fötluðum en bæði áttu þau frábært ár og voru ekki að vinna þessi verðlaun í fyrsta sinn.
ÞEKKJA ÞESSA ÁGÆTLEGA Jón Margeir Sverrisson og Thelma Björg Björnsdóttir hafa bæði handleikið þessa bikara áður en
þau valin íþróttafólk ársins hjá fötluðum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SPORT
HANDBOLTI Ísland vann öruggan
33-23 sigur á Makedóníu í
þriðja leik sínum í forkeppni
Evrópumeistaramóts kvenna.
Ísland var 17-12 yfir í hálfleik.
Ísland hefur þar með tryggt
sér sæti í umspili um laust sæti
á heimsmeistaramótinu sem leik-
ið verður í Danmörku í desember
að ári.
Eins og lokatölurnar gefa til
kynna voru yfirburðir Íslands í
leiknum miklir þótt Ísland hafi
ekki náð að hrista makedónska
liðið af sér fyrr en í upphafi seinni
hálfleiks.
„Við ákváðum að byrja seinni
hálfleikinn af krafti. Við vorum
sáttar með fyrir hálfleikinn en
ekki alveg nógu sáttar og ákváðum
að bæta það upp á upphafsmínút-
um seinni hálfleiks sem við náðum
að gera,“ sagði Karen Knútsdóttir,
leikstjórnandi og fyrirliði Íslands,
sem fór á kostum í leiknum og
skoraði 14 mörk.
„Mér fannst þetta mjög
skemmtilegur leikur. Í síðasta
leik náðum við ekki að nýta vörn-
ina með hraðaupphlaupum en við
náðum því í dag og allir skiluðu
sínu. Við ætluðum að klára þetta
á heimavelli. Það er erfitt að fara
til Makedóníu. Þú veist aldrei á
hverju þú átt von á þar. Við komum
mjög vel stemmdar og við höfum
verið mjög einbeittar á allt þetta
verkefni. Þetta var framhald af
því,“ bætti Karen við.
„Við erum í forkeppni núna og
eigum að vera betri en þessi lið.
Við eigum heima í undankeppninni
og erum búnar að sýna það. Nú er
bara að bíða og sjá hvaða þjóð við
fáum næst,“ sagði Karen en það
kemur í ljós eftir Evrópumeist-
aramótið sem hefst síðar í mán-
uðinum. - gmi
Flugeldasýning Karenar í Höllinni
Karen Knútsdóttir fór á kostum er Ísland tryggði sér sæti í HM-umspilinu.
FRÁBÆR Karen skorar ekki undir tíu
mörkum í leik. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR