Fréttablaðið - 13.12.2014, Side 86
FÓLK|HELGIN
Hið manngerða jólatré sem flýtur á lóninu Rodrigo de Freitas í Ríó de Janeiro hefur verið reist árlega í
desember frá því árið 1996 og er tendrun
þess orðin þriðji stærsti ferðamannavið-
burður borgarinnar á eftir kjötkveðjuhá-
tíðinni og nýársgleðinni á Copacabana-
ströndinni.
Jólatréð er 85 metra hátt, vegur 542
tonn og er smíðað úr málmi. Stærsta
tryggingarfélag Brasilíu sá um smíðina
þetta árið en þemað í skreytingum trésins
voru árstíðirnar fjórar. Um 3,1 milljón
ljósa lýsa upp tréð sem breytir stöð-
ugt um lit og skreytingar. Þannig er það
skreytt laufum fyrir haustið, snjókornum
fyrir veturinn, blómum til að endurspegla
vorið og gullborðum sem eiga að tákna
sumarið.
Við afhjúpun trésins á dögunum var
haldin gríðarmikil flugeldasýning sem
um hundrað þúsund manns mættu til að
horfa á. Búist er við að yfir milljón manns
muni líta mannvirkið augum áður en ljós
þess verða slökkt á þrettándanum, þann
6. janúar.
Heimsmetabók Guinnes hefur skráð jóla-
tréð í Ríó sem stærsta fljótandi jólatré heims.
Til samanburðar má nefna að jólatréð fræga í
Rockefeller Centre í New York er 22,5 metrar
að hæð og er skreytt 30 þúsund ljósum. Þess
má þó geta að það tré er ekta grenitré.
STÆRSTA FLJÓTANDI JÓLATRÉ HEIMS
LJÓSAFLÓÐ Yfir hundrað þúsund manns fylgdust með í byrjun mánaðarins þegar kveikt var á risastóru jólatré á Rodrigo de Freitas-
lóninu í Ríó de Janeiro í Brasilíu. Viðburðurinn er orðinn þriðji stærsti ferðamannaviðburður borgarinnar.
SKRAUTLEGT Jólatréð í Ríó de Janeiro er 85 metra hátt, smíðað úr málmi og vegur 542 tonn. Þemað í skreytingunum í ár voru árstíðirnar fjórar. NORDICPHOTOS/AFP
Íslendingar tengja meðal annars
hangikjöt, hamborgarhrygg, laufa-
brauð og malt og appelsín við jólin.
Aðrar þjóðir hafa sína eigin hefðir
þegar kemur að mat og drykk yfir
jólahátíðina. Dæmigerður jólamatur
í Tékklandi er fiski- eða baunasúpa
ásamt steiktum fiski, þá yfirleitt
vatnakarfa. Fiskurinn er borinn
fram með kartöflusalati sem yfirleitt
er útbúið deginum áður svo það
bragðist enn betur. Stollen-jólakakan hefur verið fastur hluti jólahalds
Þjóðverja frá 15. öld. Hún inniheldur meðal annars þurrkaða ávexti, rús-
ínur, valhnetur, möndlur og ýmis krydd eins og kardimommur og kanil
auk þess að vera þakin flórsykri. Ríkulega skreytt piparkökuhús eru
einnig algeng á heimilum Þjóðverja yfir jólahátíðina. Ungverjar borða
gjarnan ýmsar útgáfur af fiskisúpum og fylltir kálbögglar eru vinsælir
á borðum landsmanna. Þeir innihalda gjarnan kjöt, grænmeti, grjón og
ýmis krydd. Það er sumar hjá nágrönnunum í Ástralíu og Nýja-Sjálandi
um jólin. Þar grilla margir sjávarrétti, pylsur og kjúkling yfir jólin
og vegna hitans snæða landsmenn gjarnan kalkún og
svínakjöt kalt og þá gjarnan með trönuberjasósu,
salati og ristuðu grænmeti. Frændur okkar
Norðmenn bera gjarnan ákavíti á borð
yfir jólin með ýmsum bragðteg-
undum. Gufusoðnar eða steiktar
jólapylsur eru mikið borðaðar
en þær eru gjarnan bragðbættar
með þurrkuðum engifer, negul,
sinnepsfræjum og múskati.
ÓLÍKUR JÓLAMATUR
Öll lönd eiga sínar hefðir þegar kemur að jólamat.
SÍGILDUR RÉTTUR Stollen-jólakakan hefur lengi verið hluti jólahald Þjóðverja.
UNGVERSKT Fylltir kálbögglar sjást
gjarnan á borðum Ungverja yfir jólin.
ÓLÍKAR
BRAGÐTEGUNDIR
Ákavítið er alltaf jafn
vinsælt í Noregi.
JÓLA
VERÐ-
SPRENGJAN
ER HAFIN!
50%
Grensásvegi 8 - Sími 553 7300
Opið mán-fim 12–18, fös 12–19, lau 12–17
PEYSUR, BUXUR, BOLIR, LEGGINGS,
TOPPAR, KJÓLAR, SKYRTUR,
TÖSKUR, SKART OG FLEIRA
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
FATNAÐI
GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ, GERÐU
DÚNDUR KAUP FYRIR JÓLIN