Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2012, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2012, Síða 13
Erlent 13 Í DAG KL. 14:00 Hanna Birna svarar spurningum þínum á Beinni línu á DV.is. Hanna Birna Kristjánsdóttir á Beinni línu DV.is n Stephen Gough neitar að klæða sig n Hefur hlotið 18 fangelsisdóma S triplingurinn Stephen Gough hefur eytt meira en sex árum ævi sinnar á bak við lás og slá vegna þess að hann neitar að klæða sig og hylja þannig nekt sína. Yfirvöld hafa gefið út að þau vilji alls ekki hafa hann í fangelsi en þau séu nauðbeygð til að fylgja lögum. Gough lætur laganna bókstaf ekki beygja sig til hlýðni. Gough, eða The Naked Rambler eins og hann er kallaður í breskum fjölmiðlum, hefur nú verið sleppt úr fangelsi eftir að hafa hlotið dóm fyrir að striplast á almannafæri. Hann hef- ur raunar 18 sinnum verið sakfelld- ur fyrir slíkt og hefur næstum setið samfellt í fangelsi frá því í maí 2006. Í þau skipti sem honum hefur ver- ið sleppt hefur hann neitað að klæða sig og gengið berrassaður úr fangels- inu og út á götu. Þá hefur hann verið handtekinn á nýjan leik og í kjölfar- ið dæmdur. Hann hefur til að mynda verið dæmdur fyrir að vanvirða rétt- inn og lögreglustjórann með því að hylja ekki nekt sína. Vill ganga yfir Bretland Hann hefur tvisvar reynt að ganga nakinn endilangt yfir Bretland – en var þó í bæði skiptin í skóm, sokkum og með bakpoka auk þess sem hann gekk með hatt. Þær ferðir hans hafa tekið marga mánuði enda hefur hann á ferðum sínum margsinnis þurft að svara til saka. Hann hefur bæði komist í kast við laganna verði í Englandi en viðkvæðið í Skotlandi hefur þó verið honum öllu erfiðara. Þar í landi deil- ir lögreglan því sjónarmiði með dóm- stólum að nekt á almannafæri sé brot á allsherjarreglu og almannafriði. Yfirvöld í Skotlandi eru orðin þreytt á vítahringnum sem hefur kostað rík- ið milljónir á milljónir ofan. Ítrekaður málarekstur er dýr auk þess sem fang- elsisvistin hefur reynst afar kostnað- arsöm. Þannig vill enginn deila rými með Gough, sem brýtur reglur fang- elsisins með því að neita að klæða sig. Hann hefur því þurft á sérúrræðum að halda. Saksóknarinn í málinu benti í viðtali við BBC á að yfirvöld hafi reynt allt til að koma í veg fyrir að hann brjóti lögin. Í eitt skiptið hafi honum verið leyft að ganga heim til sín nak- inn – með þau skilaboð í farteskinu að hann ætti að sýna samborgurum sínum tillitssemi. Þremur dögum síð- ar hafi hann aftur verið kominn á bak við lás og slá. Hann hafi gengið fram hjá börnum að leik á leikvelli. Þau hafi orðið skelkuð og foreldrunum hafi einnig brugðið. Handtekinn á leið heim Lögreglustjórinn James Williamson lýsir framferði Gough sem sjálfselsku og hroka. Hann geri í því að reyna að ögra fólki með nekt sinni og hafi engan áhuga á því að miðla málum. BBC bendir á að í maí 2006 hafi hann ver- ið í farþegaflugi á milli Southampton og Edinborgar. Í miðju flugi hafi hann farið á klósettið, afklæðst, og komið fram nakinn. Síðan þá hafi hann verið í fangelsi, með örstuttum hléum, sem taka yfirleitt enda á þann hátt að hann er handsamaður á leið sinni frá fang- elsinu – nakinn. Sjálfur er Gough á því að hann hafi allan rétt á því að vera berrassaður. „Mannslíkaminn er ekki dónalegur“, sagði hann í mars 2012. Það væri ein- faldlega ekki rökrétt að líta svo á, seg- ir Gough. Hann segist staðráðinn í því að reyna að ganga endilangt yfir Bret- land án þess að vera stöðvaður. Andrew Welch er auglýsingastjóri British Naturism. Hann segir að eng- um hafi hingað til tekist að sýna fram á að nekt skaði þá sem hana aug- um berji. Raunar sé spéhræðsla mik- ið vandamál sem hafi skaðleg áhrif á sjálfsmynd fólks, sérstaklega barna og unglinga. Þessari skoðun deilir sak- sóknarinn í málinu ekki og segir að um leið og hegðun særi blygðunar- kennd annarra sé hún orðið vanda- mál gerandans. Vítahringur Málið er í miklum hnút og raunar veit enginn hvernig rjúfa á vítahringinn. Gough hefur hafnað allri sálfræðihjálp en situr fastur við sinn keip. Ein hug- myndin sem Skotar ræða er að senda hann til Englands og flytja vandamálið þangað. John Scott, stjórnarformaður Howard League for Penal Reform sem eru samtök sem berjast fyrir betri úr- ræðum fyrir afbrotamenn í Skotlandi, kallar eftir því að skosk yfirvöld líti fram hjá brotunum. Vissulega sé hættulegt að gefa það fordæmi að aðhafast ekk- ert þegar striplingar eiga í hlut en Scott hefur ekki trú á því að fleiri muni leika sama leik. „Yfirvöld þurfa að slaka á og átta sig á því að hann er ekki að skaða neinn með framferði sínu. Með sama áframhaldi verður hann í fangelsi þar til hann verður orðinn of gamall eða veikburða til að klæða sig. Það væri ekki skynsamleg leið að fara.“ n Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is Sex ár í fang- elSi fyrir að StriplaSt Á göngu Gough á sér þann draum að ganga óáreittur yfir Bretland – nakinn. „Yfirvöld þurfa að slaka á og átta sig á því að hann er ekki að skaða neinn Miðvikudagur 10. október 2012 n „Ruslakista“ bandarískrar kvikmyndagerðar gerir það gott – fjárhagslega

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.