Ægir - 01.04.2015, Page 25
25
„Venus er stórt og mikið skip
sem útaf fyrir sig er mikil breyt-
ing fyrir okkur en mesta bylt-
ingin er fólgin í vinnuaðstöðu
og aðbúnaði áhafnarinnar,“
segir Guðlaugur Jónsson, skip-
stjóri á Venusi NS. Skipið reynd-
ist hið besta á heimsiglingunni
frá Tyrklandi og fengu skipverj-
arnir m.a. að kynnast því í stíf-
um 25 metra mótvindi við
Portúgal og tilheyrandi öldu-
hæð. Guðlaugur segir að í
reynslutúrum í Tyrklandi hafi
skipið náð mestum gagnhraða
um 18 hnútum en alla jafna
gengur það 14 hnúta á sigl-
ingu. Hann segir hönnun skips-
ins gera að verkum að það sé
létt í siglingu fulllestað.
„Mesta breytingin frá því
sem við erum vanir felst í því að
á flottrollsveiðum er aflanum
dælt úr pokanum við skutinn í
stað þess að hann sé tekinn
fram með síðunni á skipinu til
að dæla úr. Kælingin er líka tvö-
föld á við það sem við vorum
með á Ingunni og það skiptir
auðvitað líka mjög miklu máli.
Og loks er mikilsvert að vera
með alla vinnuaðstöðuna á
einu dekki og að menn eru
komnir upp úr sjónum og í gott
skjól við sína vinnu,“ segir Guð-
jón en hann hefur verið skip-
stjóri á Ingunni allt frá því skipið
kom til HB Granda.
„Við byrjum á kolmunnan-
um og vonandi náum við að fá
reynslu á skipið og sjá allt virka
eins og það á að gera. Því næst
tekur makríllinn við,“ segir
hann.
Guðjón Jónsson, skipstjóri, í brúnni á Venusi.
Vinnuaðstaðan mesta byltingin
- segir Guðjón Jónsson, skipstjóri
Allt það nýjasta í stjórnbúnaði, fiskileitar- og fjarskiptatækni skipa er að
finna í Venusi.
Setustofa í brú skipsins.