Ægir - 01.04.2015, Síða 30
30
Ingimundur Ingimundarson,
útgerðarstjóri HB Granda, segir
mikla hagræðingu fólgna í að
fá tvö samskonar skip til upp-
sjávarveiða í stað þeirra þriggja
sem nú hverfi úr útgerð hjá fyr-
irtækinu. „Við vitum að á
loðnuveiðunum verður mikil
pressa að ná kvótanum með
tveimur skipum í stað þriggja
en það að hafa í útgerð tvö ný,
öflug og sams konar skip breyt-
ir mjög miklu fyrir okkur. Það
verður umtalsverður sparnaður
í olíukostnaði, þetta eru gang-
mikil skip, ný hönnun, betri
vinnuaðstaða fyrir áhöfn, afla-
meðferð eins og best verður á
kosið og þannig má áfram
telja,“ segir Ingimundur en fyr-
irtækið mun afhenda Ingunni
AK í júlí en Lundey og Faxi
verða í flota fyrirtækisins fram
að því að Víkingur kemur frá
Tyrklandi.
Lítilsháttar seinkun varð á
smíði Venusar NS sem Ingi-
mundur segir eiga sínar skýr-
ingar. „Við erum mjög ánægðir
með smíðina í Tyrklandi en í
svona verkefni erum við líka
með okkar eftirlitsmenn á
staðnum til að fylgja eftir að allt
sé eins og við viljum hafa það,“
segir Ingimundur.
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100
Mikil hagræðing með
nýju skipunum
- segir Ingimundur Ingimundarson, útgerðarstjóri
Umtalsverður olíusparnaður verður með tilkomu nýju skipanna.
Sigurbjörn Björnsson, yfirvélstjóri, í stjórnklefanum
við hlið vélarsalarins.
Klefar áhafnarmeðlima eru rúmgóðir og vel búnir.
Baðherbergi með sturtu eru í öllum klefum.