Ægir - 01.04.2015, Blaðsíða 42
42
hæft nám í Marel búnaði á vor-
önn. Hlutverk grunnámsins er
að byggja upp bakgrunn nema
til að þeir eigi auðveldara með
að tileinka sér tæknilegt efni
sem kennt er nær eingöngu á
Marel tæki og hugbúnað í
húsakynnum Marel. Kennt er í
lotum þar sem farið er í
ákveðna tækjaflokka, svo sem
framleiðsluhugbúnað, vogir,
snyrtilínur, skurðarvélar og
fleira. Í lok annarinnar er farið í
vinnustaðagreiningar og lagt
fyrir lokaverkefni sem felst í að
greina vinnsluferli valdra fisk-
vinnslufyrirtækja með það að
markmiði að auka afköst, gæði
og skilvirkni.
Að loknu námi hafa menn
góða innsýn í virkni tækja og
hugbúnaðar í fiskvinnslu og
geta sinnt ákveðnu fyrirbyggj-
andi viðhaldi ásamt því að geta
sett upp einfalda staðlaða
vinnslulykla í helstu Marel tækj-
um.
Úr Marel vinnslutækni út-
skrifuðust að þessu sinni 8
nemendur og koma þeir frá
ýmsum stöðum á landinu;
Reykjavík, Vestmannaeyjum,
Sandgerði, Akranesi og Grinda-
vík. „Það var glaðhlakkalegur
hópur sem tók við prófskírtein-
um og minjagrip um námið í
húsakynnum Marel ásamt sín-
um nánustu. Námið gefur þess-
um nemendum góða mögu-
leika á að bæta enn frekar við
sig þekkingu og þar með aukna
möguleika á vinnumarkaðnum.
Innritun fyrir næsta vetur er
þegar hafin hjá Fisktækniskóla
Íslands en hámarksfjöldi verður
takmarkaður við 12 einstak-
linga,“ segir í tilkynningu frá
Fisktækniskólanum.
Fisktækni hagnýtt nám
Nú síðla maímánðar útskrifaði
Fisktækniskólinn einnig hóp
nemenda úr grunnnámi Fisk-
tækna. Námið er hagnýtt
tveggja ára nám sem byggt er
þannig upp að önnur hver önn
er í skóla og hin á vinnustað.
Nemendur geta valið sér náms-
leiðir í sjómennsku, fiskvinnslu
og fiskeldi. Verkefni og vinnu-
staðir eru valdir með hliðsjón af
áhuga hvers og eins. Á fisk-
vinnslulínu læra nemendur um
meðferð fisks, gæðakerfi, um
vélar (td. Baader, Marel), tæki
og búnað sem notaður er til að
hámarka gæði og verðmæti
fisks. Í sjómennskulínunni er
kennd vélavarsla, aflameðferð,
veiðitækni, sjóvinna og rekstur.
Á fiskeldislínu sérhæfa nem-
endur sig til almennra starfa í
fiskeldi eða búa sig undir frek-
ara nám hérlendis eða við sam-
starfsskóla Fisktækniskólans,
m.a. í Noregi.
Fisktæknar útskrifuðust nú síðla maímánaðar eftir tveggja ára nám.