Ægir - 01.06.2015, Blaðsíða 9
9
þrjóskur og ávallt tilbúinn að
fara aðrar leiðir en þær hefð-
bundnu!“
Besta sótthreinsun í heimi,
hvorki meira né minna. Og
fjandinn hafi það, eftir að hafa
kynnt sér málið og látið sótt-
hreinsast sjálfur í kæligeymslu
Eimskips við Sundahöfn getur
útsendari Ægis ekki sagt annað
en „já, sæll, þetta er ótrúlegt
dæmi.“
Þarna stóðum við Ragnar í
lokuðu 2.000 rúmmetra rými í
Sundakæli Eimskips. Hann setti
sótthreinsikerfið í gang. And-
rúmsloftið í rýminu varð smám
saman mettað af úða úr fjórum
stútum í loftinu, fyrst vatnsúða,
svo vatnsblönduðu hreinsiefni,
þá vatnsúða á ný og að síðustu
loftblæstri til að hreinsa kerfið.
Allt þetta gerðist á tíu mín-
útum og þá var rýmið 100%
sótthreinsað. Merkilegt nokk,
hvorki kom móða á gleraugun
né myndavélarlinsuna og það
var bara frískandi að anda að
sér allan tímann, enda líður
kvefuðu fólki víst mun betur
eftir slíka sótthreinsun!
Gæti hreinsað út nóróveiru úr
spítalaálmu á einum degi
„Ég get staðfest að þú ert ert
ekki stórreykingamaður og hef-
ur lungu í góðu lagi, annars
Ragnar og Guðni Guðfinnsson, dreifingarstjóri í Sundakæli t.h., með hreinsistút fyrir flutningabíla á milli sín.
Matís ohf. er í mörgum skilningi mikilvæg auðlind fyrir Íslendinga. Fyrirtækið er lykilaðili í
matvælarannsóknum og matvælaöryggi og hefur að baki sér þekkingu 100 starfsmanna
sem eru sérfræðingar og vísindamenn á ólíkum sviðum.
Rannsóknir eru íslenskum sjávarútvegi mikilvægar því þæ styðja framþróun, nýsköpun og
markaðsstarf greinarinnar. Hjá Matís er stöðugt unnið að fjölda rannsóknarverkefna sem
tengjast sjávarútvegi með ýmsum hætti. Þannig leitum við sífellt svara og vitum alltaf
meira í dag en í gær.
Rannsóknir
í þágu sjávarútvegs
Gildi Matís
Frumkvæði
Sköpunarkraftur
Metnaður
Heilindi
www.matis.is
Stefna Matís er að
... vera framsækið þekkingarfyrirtæki sem eflir samkeppnishæfni
Íslands og skilar þannig tekjum til íslenska ríkisins
... vera eftirsóttur, krefjandi og spennandi vinnustaður með fyrsta
flokks aðstöðu þar sem starfsmenn njóta sín í starfi
... hafa hæft og ánægt starfsfólk
Hlutverk Matís er að
... efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs
... tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra nýtingu
umhverfisins með rannsóknum, nýsköpun og
þjónustu
... bæta lýðheilsu