Ægir - 01.06.2015, Blaðsíða 10
10
færirðu að hósta,“ sagði Ragnar
glottandi. „Ef ég fyllti kælirýmið
af fólki og setti kerfið í gang
gæti ég með vissu bent á þá í
hópnum sem hefðu veik lungu.
Sótthreinsiefnið kallar þá fram
ákveðin líkamleg viðbrögð, án
þess að það sé skaðlegt að
neinu leyti.
Upphaflega byrjaði ég að
velta þessum hlutum fyrir mér í
tengslum við sjávarútveg, fisk
og fiskflutninga en notagildið
er mun víðtækara. Kerfið okkar
er til dæmis notað með mjög
góðum árangri í einu af stóru
kjúklingasláturhúsunum hér og
við erum langt komnir með að
laga kerfið að þörfum fiskeldis-
ins.
Svo myndi ég glaður vilja
komast inn á Landspítala og
sýna fram á hvernig hægt væri
til dæmis að sótthreinsa í kjölfar
nóróveirusýkingar og spara rík-
inu tugi milljóna króna. Nóró-
veiran veldur einni algengustu
fjöldasýkingu á sjúkrastofnun-
um á Íslandi með tilheyrandi
lokunum deilda, heimsendingu
sjúklinga og umfangsmikilli
sótthreinsun upp á gamla mát-
ann. Ég fullyrði að unnt væri að
sótthreinsa heila álmu á Land-
spítala á einum degi og vildi
sýna fram á það en spítalamenn
svöruðu því til að allt sem þeir
hefðu lært sýndi fram á að full-
yrðing mín gæti ekki staðist og
þar við situr.“
Ragnar kom beint í Sunda-
höfn frá Grindavík þar sem
hann setti upp sótthreinsikerfi
hjá sjávarútvegsfyrirtækinu Vísi.
Hann var á dögunum í Kanada í
sömu erindagjörðum og hefur
líka selt kerfi til Skotlands og
Danmerkur. Hér heima má
nefna HB Granda sem sett hef-
ur upp nokkur hreinsikerfi hjá
sér, bæði í fiskvinnsluhúsum og
um borð í skipum.
Ragnar gerir allt eins ráð fyr-
ir því að „sprengingin“ komi fyrr
en síðar þegar ráðamenn fyrir-
tækja átta sig á hvað hér er á
ferðum og vilja fá það besta í
bransanum til sótthreinsa í sín-
um ranni!
Lyktarlaus fiskgeymsla
Í Sundakæli Eimskips koma
250-500 tonn af ferskfiski á
hverri nóttu af fiskmörkuðum
og fara þaðan til nýrra kaup-
enda. Framan af voru gólfin
sápuþvegin daglega og upp á
veggi með tilheyrandi fyrirhöfn
og kostnaði. Svo var D-San sett
upp. Síðan þá skola menn gólf-
ið þegar fiskurinn er farinn að
morgni dags og svo fer kerfið
sjálfvirkt í gang kl. 10 og sótt-
hreinsar allt rýmið. Sápuþvegið
er í mesta lagi tvisvar í viku.
Lykt finnst ekki lengur og
það sem meira er, flutningabíl-
stjórarnir finna kannski mest
fyrir breytingunni. Þeir geta
nefnilega fengið sérhannaðan
stút inn í flutningsrými bílanna,
eftir að hafa flutt fisk milli
áfangastaða. Bíllinn er sótt-
hreinsaður á þremur mínútum,
lyktin hverfur algjörlega og
hægt er að fara beint í að flytja
húsgögn, þurrvöru eða annan
viðkvæman varning án þess að
eiga á hættu að fisklykt fylgi
sófasettinu úr bíl inn á gólf
verslunar eða kaupanda úti í
bæ.
Kerfið í gangi um borð í frysti-
togaranum Örfirisey RE.
Frystigámar / Sala og leiga 10 / 20 og 40 ft.
Seljum einnig og leigjum gámahús, geymslugáma og salernishús í
ýmsum stærðum og gerðum. Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að
þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100
www.stolpigamar.is
Hafðu
samband
568 0100