Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2015, Blaðsíða 14

Ægir - 01.06.2015, Blaðsíða 14
14 með það en í ágúst sama ár hringdi Júlíus Kristjánsson, faðir Kristjáns Þórs og umsjónarmað- ur stýrimannanámsins á Dalvík, í mig og segir mér hvenær ég eigi að mæta í fyrsta tímann. Ég var sem eitt stórt spurninga- merki en í ljós kom að Kristján Þór hafði skráð mig í námið að mér forspurðum. Ég er þeim feðgum ævarandi þakklátur fyr- ir að hafa farið í skólann á þess- um árum.“ Fyrri veturinn, 1983-1984, var Snorri í stýrimannadeildinni á Dalvík en seinni veturinn þurfti hann að fara til Vest- mannaeyja og ljúka náminu þar. Að námi loknu var Snorri um tíma á Sandgerðingi hjá Magna Jóhannssyni og einnig var hann stýrimaður og skip- stjóri með Gunnþóri Svein- björnssyni á Sænesinu á Dalvík. Hann tók síðan við Sigurborg- inni sem Söltunarfélag Dalvíkur gerði út um tíma. Síðan lá leið Snorra austur á Þórshöfn þar sem hann tók við Súlnafellinu og var þar í rúmt ár. Síðar var hann til skamms tíma með Drangavíkina á Hólmavík. Í nokkur ár eftir þetta starfaði Snorri aftur með föður sínum á Baldri, Dalborginni og Arnar- borg. Á þessum tíma var víða sótt, meðal annars á Flæmska hattinn, niður að ströndum Marokkó og víðar. „Í október 1997 byrjaði ég á Skagfirðingi SK hjá Fiskiðjunni á Króknum og hef starfað hjá því fyrirtæki síðan. Ég flutti þó ekki til Sauð- árkróks fyrr en röskum tveimur árum síðar. Ég var til að byrja með á Skagfirðingi, fór síðan yf- ir á Skafta og loks fylgdi ég Júlí- usi Skúlasyni yfir á Klakk. Júlíus hætti síðan um áramótin 2003- 2004 og þá tók ég við skip- stjórn á Klakki og hef verið með hann síðan.“ Trúnaður og traust Klakkur SK-5 er ísfiskskip, smíð- aður í Gdynia í Póllandi árið 1977 fyrir Klakk hf. í Vest- mannaeyjum og þaðan var skipið gert út til ársins 1992 þegar Hraðfrystihús Grundar- fjarðar keypti hann. Klakkur komst síðan í eigu FISK-Sea- food þegar Fiskiðjan Skagfirð- ingur og Hraðfrystihús Grund- arfjarðar sameinuðust í ársbyrj- un 1996. „Starf skipstjórans getur á köflum verið einmanalegt, enda erum við löngum stund- um einir uppi í brú. En það er mikilvægt að gefa sér tíma fyrir og eftir vakt að spjalla við mennina um borð. Þetta er lítið samfélag og því er mikilvægt að allir vinni hlutina vel saman. Auðvitað er það skipstjórinn sem á alltaf síðasta orðið varð- andi ýmsar ákvarðanir en það kostar ekkert að hlusta á sjónar- mið annarra og það legg ég áherslu á. Auðvitað geta oft komið upp erfið mál um borð sem þarf að taka á en ég segi hiklaust að erfiðustu málin tengjast mögulegum slysum eða veikindum um borð eða ef eitthvað erfitt kemur upp í fjöl- skyldum áhafnarmeðlima. Það er afar mikilvægt og á það legg ég áherslu að fyllsta trúnaðar og trausts sé gætt í samtölum skipstjóra og einstakra manna í áhöfn. Þannig á þetta að vera og verður að vera.“ Miklar breytingar Í gegnum tíðina hefur Snorri kynnst ýmsum veiðiskap. „Það eru allar veiðar skemmtilegar ef eitthvað fiskast. En ef ekkert veiðist er ánægjan afskaplega takmörkuð, svo einfalt er það. Almennt má segja að maður reynir að leysa eins vel og mögulegt er það verkefni sem manni er falið í það og það skiptið og vonandi skilar það sem mestu til bæði útgerðar og áhafnar. Klakkur var eini ísfisk- togari FISK þar til Málmey SK var einnig gerð út á ísfiskveiðar snemma á þessu ári. Það þýddi að það mátti satt best að segja aldrei neitt klikka hjá okkur á Klakki því við sáum vinnslunni Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is K Ä R C H E R S Ö L U M E N N NT 35/1 Tact Ryksugar blautt og þurrt Fylgihlutir Barki 35mm 2,5m, málmrör, 30mm gólfhaus og mjór sogstútur. NT 45/1 Tact Te Ryksugar blautt og þurrt Fylgihlutir Barki 35mm 2,5m, málmrör, 30mm gólfhaus og mjór sogstútur, rafmagnstengill. NT 55/1 Tact Ryksugar blautt og þurrt Fylgihlutir 2,5m 35mm barki, málmrör, 30mm gólfhaus og mjór sogstútur. NT 25/1 Ap Ryksugar blautt og þurrt Fylgihlutir Barki 35mm 2,5m, málmrör, 30mm gólfhaus og mjór sogstútur. Takki fyrir hreinsun á síu. Iðnaðarryksugur Fyrir bæði blautt og þurrt Sjálfvirk hreinsun á síu Tengill Klakkur SK-5 er ísfisktogari og aflar hráefnis fyrir landvinnsluna á Sauðárkróki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.