Ægir - 01.06.2015, Blaðsíða 11
11
Hvernig vinnur D-San?
„Kerfið í Sundakæli er þriggja
rása, ein rás fyrir sjálft kælirýmið
en tvær fyrir sótthreinsun bíla. Í
kælinum eru fjórir klasastútar í
röð eftir loftinu miðju og dreifa
samtals einum lítra vökva á
mínútu eða alls átta lítrum til að
sótthreinsa 2.000 rúmmetra
rými. Hreinsiefnið er einungis
2% af vökvanum. Við framleið-
um og seljum það óblandað,
vélin sem dreifir sér um að
blanda í vatn. Efnið er sérstakt
að því leyti að það vinnur áfram
þó það sér orðið þurrt, öfugt
við klór, sóda og önnur efni
sem virka bara þegar fletirnir
eru blautir.
Samey í Garðabæ smíðar
dreifikerfin og þau eru út af fyrir
sig hefðbundin en sérstaða
okkar liggur í hreinsiefninu og
framleiðsluaðferð þess. Þetta
föndur okkar tók nýja stefnu í
fyrra og nú nálgumst við enda-
stöð í þróun og tilraunastarf-
semi með efnið. Þar með get-
um við beitt öllum kröftum að
því að kynna og selja vöruna.
Við erum langt komnir með
að smíða fyrsta sjálfstæða sótt-
hreinsikerfið fyrir flutningabíla,
fastan búnað sem gerir bílstjór-
um kleift að votta að bílarnir
hafi verið sótthreinsaðir áður
en tilteknar vörur fóru inn í þá.
Þetta skiptir miklu máli fyrir við-
takanda varanna og staðfestir
að ástæðulaust er að óttast
krossmengun frá fyrri flutningi.
Ég sé síðan fyrir mér að flutn-
ingabílstjórar verði í framtíðinni
krafðir um vottorð um sótt-
hreinsun á landamærastöðvum,
þegar matvæli eru flutt landa á
milli. Matvælaöruggi nefnilega
skiptir öllu máli og er ekki bara
heilbrigðismál heldur ímynd og
bissness.“
Menn með frjótt hugmynda-
flug og áræðni láta sjaldnast
staðar numið þegar einu verk-
efni hefur verið landað. Þeir eru
yfirleitt með fleiri járn í eldinum
og jafnvel mörg. Það á líka við
um Ragnar og Guðmund. Sá
fyrrnefndi gerist leyndardóms-
fullur að skilnaði: „Við erum
með gríðarlega flotta lausn fyrir
fiskeldið, ekkert minna en tíma-
mót. Þú færð ekki meira að vita
en það verða tíðindi sögð af því
máli fljótlega. Sæll að sinni.“
HAGNÝTAR NÁMSBRAUTIR
Fisktækniskóli Íslands
býður upp á fjölbreytt
nám í sjávarútvegi á
framhaldsskólastigi.
Námið er hagnýtt tveggja
ára nám sem byggt er
upp sem önnur hver önn í
skóla og hin á vinnustað.
Nemendur geta valið sér
námsleiðir í sjómennsku,
fiskvinnslu og fiskeldi.
Verkefni og vinnustaðir
eru valdir með hliðsjón af
áhuga hvers og eins.
Nám í skóla - nám á vinnustað
Víkurbraut 56 240 Grindavík, info@fiskt.is
FISKTÆKNI
Inntökuskilyrði: Grunnskólapróf.
Á Fisktæknibraut er hægt að velja þrjár línur:
-Sjómennska/veiðar
- Fiskvinnsla
- Fiskeldi
Hvert námsár skiptist í eina önn í skóla og eina á vinnustað
undir leiðsögn tilsjónamanns.
MAREL VINNSLUTÆKNI
Eins árs nám Marel vinnslutæknir, Fiskeldi, Gæðastjórnun.
Inntökuskilyrði:
Hafa lokið námi í Fisktækni eða sambærilegu námi.
Námsárið skiptist í fagbóklegar greinar og vinnustaðanám undir
leiðsögn tilsjónamanns
GÆÐASTJÓRN
FISKELDI
Spennandi blanda bóklegs og verklegs náms sem gefur mikla
starfsmöguleika eða til frekari menntunnar.
Nánari upplýsingar hjá
starfsmönnum Fisktækniskóla
Íslands í síma 412-5966 eða á
www.fiskt.is
Tveggja ára hagnýtt framhaldsskólanám til
starfa í sjávarútvegi og fiskeldi.
Nýtt og spennandi starfsnám í sjávarútvegi
Sótthreinsiþokan leggst yfir allt í kælirýminu! Lyftarinn er þarna, enda hvetur Ragnar hvetur notendur kerfis-
ins til að sótthreinsa í leiðinni tæki og tól. Hreinsunin hefur engin áhrif á til dæmis lakk á bílum eða rafkerfi
tækja á borð við lyftara.