Ægir - 01.06.2015, Blaðsíða 12
12
Suðurhrauni 4 • 210 Garðabæ • Furuvellir 3 • 600 Akureyri • Sími: 575 8000 • Fax: 575 8001 • www.samhentir.is
PÖKKUNARLAUSNIR
ALLT Á EINUM STAÐ FYRIR ATVINNUMENN OG HEIMILI
• Kassar og öskjur
• Arkir og pokar
• Bakkar og filmur
• Pökkunarvélar
• Hnífar og brýni
• Einnota vörur o.fl.
• Aðgöngumiðar
• Límmiðar
• Plastkort
Skoðaðu vörulistann okkar á www.samhentir.is
LÍMMIÐAR • PLASTKORT
AÐGÖNGUMIÐAR OG
MARGT FLEIRA...
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Snorri Snorrason, skipstjóri á
Klakki SK-5, skipi FISK Seafood
á Sauðárkróki, var ungur að ár-
um þegar hann fór til sjós á Dal-
vík, þar sem hann ólst upp. Sjó-
mennskan var í blóðinu og því
kom ekkert annað til greina en
að fara á sjóinn. Faðir hans og
alnafni, Snorri Snorrason, var
skipstjóri um árabil á ýmsum
skipum, þar á meðal því merka
skipi Dalborginni, og ruddi
brautina á ýmsum sviðum sjáv-
arútvegsins. Meðal annars var
hann frumkvöðull í úthafs-
rækjuveiðum á Íslandi. Snorri
skipstjóri á Klakki á að baki
tæplega fjörutíu ár á sjónum,
sem er drjúgt langur tími fyrir
53ja ára gamlan mann. En
hann er hvergi hættur og gerir
fastlega ráð fyrir að sjóinn
muni hann stunda svo lengi
sem aldur og heilsa leyfi.
„Ég held að ég muni það rétt
að ég hafi tekið mín fyrstu al-
vöru skref í sjómennskunni
sumarið 1976 þegar Söltunar-
félag Dalvíkur fékk Arnarborg-
ina. Ég, fjórtán ára guttinn, fékk
pláss á því skipi. Þetta var rök-
rétt skref á þessum tíma því
það komst ekkert annað að en
að fara á sjóinn eins fljótt og ég
mögulega gæti. Ég hafði svo
sem lítillega verið á sjó með
pabba á bát sem hét Sæþór og
áður hafði ég raunar farið einn
og einn dag með honum á
snurvoð á Eyjafirðinum á bátn-
um Arnari. Ég var ekki gamall
þegar ég ákvað með sjálfum
mér að ég ætlaði mér að verða
skipstjóri eins og pabbi og því
var sjálfgefið að drífa sig
snemma á sjóinn. Það eru mér
ógleymanlegar stundir þegar
ég fékk lánaða trillu hjá Símoni
Ellerts á Dalvík. Það var toppur-
inn. Maður ólst satt best að
segja meira og minna upp á
bryggjunni og fylgdist með
trillukörlum eins og Kidda
Romm, Tona í Árbakka og Árna
Lár. Á grásleppunni á vorin fékk
maður að hjálpa þessum körl-
um og fannst það ekki ónýtt!
En auðvitað hafði það mest
að segja um hvaða leið maður
fór í lífinu að pabbi var skip-
stjóri og hafði lengi verið á
sjónum. Maður vildi verða skip-
stjóri eins og hann. Mér fannst
sjómennskan strax skemmtileg
og mér finnst það enn þann
dag í dag og sannast sagna
hefði ég ekki verið öll þessi ár á
sjónum ef mér líkaði ekki þetta
líf. Auðvitað er þetta á margan
hátt sérstakt líf og það er langt
í frá fyrir alla. Sjóveikin getur
verið mörgum erfið og ég man
að þegar ég var að byrja var ég
að drepast úr sjóveiki. En það
dró þó ekki úr mér kjarkinn því
ég var svo ákveðinn í því að
stunda sjóinn og hvikaði ekki
frá þeirri ákvörðun, sama á
hverju gekk. Og það er nú
reyndar svo, eftir öll þessi ár, að
ef ég fer út í mikilli brælu eftir
að hafa verið lengi í landi, finn
ég fyrir ónotum. Mér verður
ekki óglatt, miklu fremur fæ ég
hausverk og finn fyrir vanlíð-
an.“
Á ýmsum skipum
Snorri var með föður sínum,
sem féll frá árið 2003, aðeins
63ja ára gamall, á Dalborginni
EA, meira og minna frá 1977 og
þar til að hann fór í stýrimanna-
nám. „Ég hummaði lengi fram
af mér að ná mér í stýrimanna-
réttindin. Einhvern tímann var
ég að tala við Kristján Þór Júlí-
usson, núverandi heilbrigðis-
ráðherra, í talstöðinni, en þá var
hann stýrimaður á Björgúlfi á
Dalvík. Kristján spyr mig hvort
ég ætli ekki að fara að drífa mig
í skólann. Ég tók nú lítið undir
það. Síðan var ekkert meira
Snorri Snorrason hefur verið skipstjóri Klakks SK-5 síðustu ellefu ár. Sjómennskuferillinn spannar um fjóra áratugi. Myndir: Pétur Ingi Björnsson.
Þetta er
skemmtilegt líf!
S
jóm
en
n
sk
a
n