Ægir - 01.06.2015, Blaðsíða 20
20
Við upphaf fiskveiðiársins þann 1. september gaf Fiskistofa út yfir-
lit úthlutaðra aflaheimilda. Aukning er í úthlutun í flestum kvóta-
tegundum en samdráttur helst í nokkrum flatfisktegundum. Út-
hlutað aflamark er alls 435.650 tonn sem er um 3.500 tonnum
meira en á fyrra ári enda þótt síldarúthlutun nú sé um 17 þúsund
tonnum minni en í fyrra.
Alls fá 534 skip úthlutað aflamarki í upphafi fiskveiðiárs
2015/2016 samanborið við 578 á fyrra fiskveiðiári. Það skip sem fær
úthlutað mestu aflamarki er Kaldbakur EA 1, en hann fær 8.111
þorskígildistonn eða 2,2% af úthlutuðum þorskígildum. Úthlutunin
fer fram á grundvelli aflahlutdeilda að teknu tilliti til frádráttar fyrir
jöfnunaraðgerðir með sama hætti og á fyrra fiskveiðiári. Að þessu
sinni er úthlutað 368.500 tonnum í þorskígildum talið samanborið
við um 367.060 þorskígildistonnum á sama tíma í fyrra, reiknað í
þorskígildum fiskveiðiársins sem nú er nú hafið. Breyting á milli ára
samsvarar því um 1.500 þorskígildistonnum.
Mikilsverðasta breytingin milli fiskveiðiára er aukning í úthlutun
þorskaflaheimilda um rúmlega 18.300 tonn en heimildirnar verða
nú rúmlega 190 þúsund tonn. Hlutfallslega er þó öllu meiri aukning
á aflaheimildum í ýsu, eða um tæp 5 þúsund tonn, en leyfilegt verð-
ur að veiða 28.950 tonn af ýsu.
Fiskistofa vekur í yfirliti sínu um úthlutunina athygli á að síðar á
árinu verði aflamarki í deilistofnum úthlutað og að ekki sé óalgengt
að aukið sé við aflamark í uppsjávarfiski. „Þess vegna á heildarafla-
mark einstakra skipa og hafna og innbyrðishlutfall þeirra eftir að
breytast í kjölfar slíkra úthlutana þegar líður á fiskveiðiárið,“ segir í
tilkynningu Fiskistofu.
Um 200 tonnum minna magni er úthlutað nú í upphafi árs sem
skel- og rækjubótum en í fyrra eða 1.584 tonnum þorskígildistonn-
um og fara þau til 32 skipa samanborið við 42 skip á fyrra ári.
Enn fækkar í öllum útgerðarflokkum
Bátum með krókaaflamark fækkar milli ára samkvæmt upplýsingum
Fiskistofu. Þeir eru á þessu nýhafna fiskveiðiári 297 talsins en voru
318 í fyrra. Skipum í aflamarkskerfinu fækkar um 21 á milli ára og
eru nú 237. Athygli vekur að togurum fækkar um 5 annað árið í röð
og eru þeir nú 45 í íslenska flotanum.
„Samkvæmt útgerðarflokkun Fiskistofu fá skuttogarar úthlutað
tæpum 200 þúsund tonnum af því heildaraflamarki sem úthlutað
var að þessu sinni og skip með aflamark fá tæp 190 þúsund tonn.
Smábátar með aflamark og krókaaflamarksbátar fá tæp 50 þúsund
tonn. Vakin er athygli á því aðkrókaaflamarksbátar fá eingöngu út-
hlutað þorski, ýsu, ufsa, gullkarfa, löngu, keilu og steinbít,“ segir í til-
kynningu Fiskistofu.
Færri lögaðilar með kvóta
Þegar horft er til einstakra fyrirtækja þá sést að fimmtíu stærstu fyr-
irtækin fá úthlutað sem nemur um 86% af því aflamarki sem úthlut-
að er nú. Hlutfallið er álíka og það var í fyrra. Alls fá 418 fyrirtæki eða
lögaðilar úthlutað nú eða um 40 aðilum færra en í fyrra.
Sé litið til þeirra sem eru með mesta úthlutun fær HB Grandi, líkt
og í fyrra, mestu úthlutað til sinna skipa eða 10,1% af heildinni,
næst kemur Samherji með 5,9%, þá Þorbjörn hf. með 5,5% og FISK-
Seafood hf. ehf. með 4,7%. Þetta er sama röð efstu fyrirtækja og
Verstöðin Vestmannaeyjar er sem fyrr meðal þeirra þriggja stærstu á landinu.
K
v
ótin
n
2
0
1
5
-2
0
1
6
Aflaheimildir
á nýju fiskveiðiári