Gerðir kirkjuþings - 1974, Page 24
-23-
3-97^______________________9» Kirk.juþinp;_______________________17. mál
T 1 1 1 a k a
til þingsályktunar um frumvarp um vei tingu
prestakalla.
Fl.m. Sr. Eiríkur J. Eiríksson.
Kirkjuþing felur kirkjuráðiað hlutast til um, að frumvarp
um veitingu prestakalla er lagt var fyrir síðasta Alþingi
verði endurflutt hið allra fyrsta.
Við fyrri umraðu um þessa tillögu flutti Þórður Tómasson
breytingartillögu, sem var samþykkt með 13 samhljóða
atkv. Þannig fór málið til allsherjarnefndar. Ælit
hennar var að mæla með breytingatillögu Þórðar Tómassonar
óbreyttri. Var sú tillaga samþykkt með 13 : 2 atkv. (einn
þingmanna fjarverandi, auk kirkjumálaráðherra). Málið var
því afgreitt með svo hljóðandi ályktun:
Kirkjuþing telur mjög miður farið að það frumvarp um veitingu
prestakalla, er lagt var fyrir síðasta Alþingi, skuli ekki
hafa fengið framgang. Felur kirkjuþing kirkjuráði að
hlutast til um að frumvarpið verði endurflutt á Alþingi
hið allra fyrsta.