Gerðir kirkjuþings - 1974, Page 39

Gerðir kirkjuþings - 1974, Page 39
-38- 1974 9. Kirkjuþing Sr. Gunnar Árnason bar fram þessa fyrirspurn til biskups: Hvers vegna var titli sálmabókarinnar breytt úr: Sálmabók til kirk.ju- og heimasöngs, í: Sálmabók íslenzku kirk.junnar. Svar biskups var efnislega á þessa leið: Heiti sálmabóka er ekki óhagganlegt né^löghelgað. Þar ræður smekkur 'nvers tíma. íslenzkar sálmabækur hafa borið ýmis nöfn: Ein ný Psálmabók með mörgum andlegum psálmum, kristilegum lofsöngvum og vísum skikkanlega til samans sett og aukin og endurbætt (1589) Þeirrar íslenzku sálmabókar fyrri (og síðari) partur (1772) Evangelísk kristileg messuscrgs- og sálmabók að konunglegri tilhlutun samantekin til almennilegrar brúkunar í kirkjum og heimahúsum (1801) Sálmabók til að hafa við guðsþjónustugjörð í kirkjum og heimahúsum (1871) Sálmabók til kirkju- og heimasöngs (1886 og 1945) Þannig hafa heiti sálmabóka verið breytileg. Það er kostur á bókartitli, að hann sé stuttur og þjáll. í sjálfu heiti bókar er og óþarft að segja það, sem sjálfsagt er. Alþýða manna á íslandi hefur gefið þessari bók nafn, hvað sem staðið hefur á titilblaði. Hún er Sálmabók. Svo heitir líka sú, sem gefin var út 1972. Og^hún er gefin út handa íslenzku kirkjunni. Það eru önnur trúfélög í landinu. Þetta er ekki þeirra bók. Þeim er að sjálfsögðu heimilt að nota hana, lesa og syngja, en hún er ekki beinlínis lögð^þeim 1 hendur. Sbr. Helgisiðabók íslenzku þjóðkirkjunnar. Sú bók er^ekki heldur aðeins notuð í kirkjum, heldur einnig í heimahúsum, jafnvel undir beru lofti. Slíkt þarf ekki að taka fram á titilblaði. Sálmabækur nágrannaþjóða heita sem hér segir: Den danske salmbog Den svenska psalmboken Kirkepsalmebok Sálmabók Föroya fólks.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.