Gerðir kirkjuþings - 1976, Blaðsíða 9
- 9 -
1?7 6
10. Klrkjuþing
2. mál
T i_ 1 1 £ g a_
_ti_l þing^á_lyktun£r_um jueignir^
Flim. biskup.
Kirkjuþing ályktar að láta gera skrá um allar jarðeignir kirkjunnar
og núverandi verðgildi þeirra með það fyrir augum, að ríkinu verði
gert tilboð um að leysa þær til sín með árlegu gjaldi, er miðist
við mat eignanna á þeim tíma, þegar samningur um þetta gengi í
gildi. Skal það mat verða vafanleg víðmiðun um þetta árlega gjald
en uppteð þess breytast hlutfallslega til samræmis við breytingar
á fasteignamati á hverjum tíma. Gengið er út frá því, að þjóðkirkjan
fái með þessum hætti, samkvæmt nánari athugun, umráðafé til frambúðar
til þarfa, sem viðurkenndar eru á fjárlögum, og falli þá slíkir
fastir fjárlagaliðir niður. Undan skildir eru í þessu sambandi
launaliðir, því að þau útgjöld rxkisins ber að líta á sera greiðslu
upp í andvirði þeirra eigna, sem ríkið hefur selt undan kirkjunni.
Sama máli gegnir um þá fjármuni^ sem ríkið hefur varið til prests-
setra og yrðu því byggingar á prestssetrum að teljast kirkjueign,
þegar það fjármálauppgjör, sem hér ræðir um, yrði til lykta leitt,
en um prestssetursjarðir yrði að öðru leyti að semja sérstaklega.
Frá og með gildistöku slíks samnings yrðu þær jarðeignir., sem
nú flokkast undir kirkjujarðir, ríkiseign. Þær jarðeignir, sem
sérstök lög gilda um (Skálholt, Strandarkirkjujarðir) eða aðrir
lögmætir gerningar, eru að sjálfsögðu undan teknar.
Vísað til löggjafarnefndar. (Frsm. sr. Jonas Gíslason.)
álit hennar var á þessa leið:
Löggjafarnefnd telur tillögu biskups um kirkjueignir
tímabæra og brýna og vill að málið verði athugað nánar.