Gerðir kirkjuþings - 1976, Side 40
- 39 -
Menntamálanefnd efri deildar Alþingis sendi kirkjuþingi
til umsagnar frumvarp til laga um biskupsembætti Þjóð-
kirkjunnar. Var frumvarpinu vísað til löggjafarnefndar
og lagði hún til, að umsögn kirkjuþings væri sú, er
hér fer á eftir: (Frsm. sr. JÓnas Gíslason.)
Kirkjuþing fagnar þeim umræðum sem nú eru hafnar á Alþingi
skipan biskupsembætta á íslandi, og væntir Þess, að Þ*r leiði til
Þess, að viðunandi lausn fáist á Því máli.
Jafnframt lýsir kirkjuÞing Þeirri skoðun sinni, að framtiðarskipan
málsins hljóti að verða sú, að biskupar íslenzku þjóð'kirkjunnar
verði Þrír, samanber seinasta samÞykkta frumvarp. KirkjuÞings xrá
1968, svo og tillögur starfsháttanefndar Þjóðkirkjunnar, sem lagðar
voru fram til kynningar á prestastefnu 1976.
KirkjuÞing leggur áherzlu á, að endurreisn HÓlabiskupsdæmis se
áfangi að Þvx, að biskupar Þjóðkirkjunnar verði Þrír og biskups-
stóll verði einnig endurreistur í Skálholti í nainni framtið.
Jafnframt bendir kirkjuÞing á nauðsyn Þess, að skýrar verði kveðið
á um starfsskiptingu milli biskupa, svo að reynt verði að koma 1
veg fyrir hugsanlegan ágréining siðar.
Yar Þetta samÞykkt með samhljoða atkvæðum.