Öldrun - 01.11.2004, Síða 6
6 www.oldrun.net ÖLDRUN – 22. árg. 2. tbl. 2004
RAI-mat er gert á sjúkradeildunum skv. reglum
Landlæknisembættisins og niðurstöður þessa mats eru
nýttar við skipulagningu í starfi á deildunum s.s. til að
ákveða fræðslu til starfsfólks og við breytingar á innra
skipulagi og vinnufyrirkomulagi. Skráning hjúkrunar
skv. NANDA og NIC er virk á stofnuninni. Í byrjun
þessa árs var tekið til við að skrá skv. skráningarkerfi
hjúkrunar Sjúkrahúss Akraness og var það kerfi innleitt
á öllum deildum HSA sem eru með legudeildir.
Við deildirnar starfa 2 læknar (1 stöðugildi), 6
hjúkrunarfræðingar (3,9 stöðugildi), 1 sjúkraþjálfari, 3
sjúkraliðar (2,2 stöðugildi) og almennt starfsfólk í 10,80
stöðugildum.
Byrjað var með einstaklingshæfða hjúkrun á árinu
2001. Sú sérhæfða hjúkrun sem við veitum miðar að því
að sjúklingurinn haldi virðingu, reisn og sjálfsbjargar-
getu eins lengi og unnt er. Læknir skoðar sjúklingana
og hefur eftirlit með heilsufari þeirra. Hann fylgist með
sértækri meðferð ef um minnissjúkdóma er að ræða,
metur afleiðingar heilabilunar og skoðar að hvaða leyti
aðrir sjúkdómar hafa áhrif á líðan sjúklinganna.
Daglegt líf
Virkniþjálfar starfa á báðum deildum. Í Norðurhlíð
starfar virkniþjálfi frá 8-12 alla virka daga, en virkniþjálfi
í Suðurhlíð starfar frá 9:30 -12, fjóra daga vikunnar. Starf
virkniþjálfa felst fyrst og fremst í afþreyingu og sam-
veru. Virkniþjálfi starfar í samstarfi við sjúkraþjálfara,
iðjuþjálfa og annað fagfólk, aðstoðar við að viðhalda
hreyfigetu íbúanna og annarri færni daglegs lífs. Ýmis
dæmi eru um það sem virkniþjálfar taka sér fyrir
hendur með íbúum deildanna: söngur og dans, blóma-
rækt, upplestur, gönguferðir, nudd, spil og bakstur.
Einnig taka þeir á móti leikskólabörnum í heimsókn,
skoða myndir og spjalla.
Lokaður garður er við stofnunina sem nýtist báðum
deildum og býður upp á möguleika fyrir útiveru og
garðrækt. Svalir eru einnig við sjúkradeildina sem eru
aðgengilegar frá báðum deildum og eru mikið notaðar
á sumrin. Af svölunum er útsýni yfir fótboltavöll bæjar-
ins, leikskólann og fallega fjallasýn.
Vikulega heimsækir okkur tónlistarkennari og
spilar á píanó eða hörpu og syngur með okkur gömul og
góð lög. Á afmælisdegi íbúans er eldaður uppáhalds-
maturinn hans. Sóknarpresturinn heimsækir íbúa viku-
lega og á stórhátíðum eru haldnar guðsþjónustur á
sjúkradeildinni. Fótaaðgerðafræðingur og hársnyrtir
bjóða reglulega upp á þjónustu sína á deildinni.
Við gerum líka ýmislegt til að brjóta upp hversdag-
inn og má nefna að á sumrin fáum við gesti einu sinni í
viku sem halda tónleika. Þar er um að ræða tónlistarfólk
sem kemur fram á sumartónleikaröðinni Bláa kirkjan,
sem hefur verið við lýði á Seyðisfirði síðan 1995. Á
góðum sumardegi er alltaf haldin vegleg grillveisla fyrir
dagsjúklinga, íbúa og starfsfólk ásamt fjölskyldum
þeirra. Á aðventunni fáum við heimsóknir frá börnum
og unglingum í æskulýðsstarfi kirkjunnar. Jólaball er
haldið í samstarfi við starfsmannafélagið og mæta þá
börn og barnabörn starfsmanna prúðbúin og dansa
með íbúunum í kringum jólatré. Stærsta hátíð vetrarins
er þó trúlega þorrablótið þar sem allir skemmta sér
ávallt vel bæði yfir borðum og ekki síst við dansinn sem
er stiginn við undirleik hljómsveitar. Til að fá útrás fyrir
dansáhugann er svo líka reynt að hafa harmonikuböll 1-
2 á ári fyrir utan þorrablótið sjálft.
Frá hópslysaæfingu sem haldin var
í október 2003.
Sólríkur garður og blómlegur.