Öldrun - 01.11.2004, Page 30
Oft kemur það fyrir að ég er spurður að því
hvað það sé eiginlega sem ég starfa við.
Orðið „aromatherapy“ hljómar ekki
kunnuglega í eyrum okkar og flestir hvá
því þegar þeir heyra það. En hér er um að
ræða aldagamla meðferð á sviði
náttúrulækninga, sem aðlöguð hefur verið
að þörfum nútímans og er oft stórlega
vanmetin, að mati þeirra sem til þekkja.
Aromaþerapy er skilgreind sem „markviss
meðhöndlun með ilmkjarnaolíum undir
eftirliti fagmanns, til að viðhalda og bæta
líkamlega og andlega heilsu auk þess að
vera fyrirbyggjandi“.
Orðið er samsett úr aroma sem þýðir góð
lykt og therapy sem þýðir meðferð.
Aroma vísar til ilmkjarnaolíunnar sem
alltaf er notuð við meðferð, en meðferðar-
form eru mismunandi eftir þörfum
einstaklingsins og þarf að sérsníða fyrir
hvern og einn.
30 www.oldrun.net ÖLDRUN – 22. árg. 2. tbl. 2004
Sagan
Aromaþerapy hefur í raun fylgt mannkyninu frá
fyrstu dögum, annað hvort nafnlaus eða verið kölluð
lækningar. Elstu heimildir eru yfir 10.000 ára gamlar
hellamyndir í Frakklandi og á Spáni. Með nýjustu tækni
í fornleifafræði og mannfræði hefur verið unnt að greina
jurtaolíur í gröfum faraóa, nokkuð sem sýnir að fyrir um
4500 árum kunnu menn að vinna olíur úr jurtum.
Vinnsluaðferðirnar voru aðrar, en afurðin sú sama og
nú.
Í Biblíunni er í fjölmörgum tilfellum minnst á notkun
á ilmandi olíum. Dæmi um það er, að fætur Jesú voru
AROMAÞERAPY
Hvað er það?
Þorsteinn Guðmundsson
aromaþerapisti, LSH Landakoti
þvegnir og smurðir með olíum. Hins vegar varð notkun
á ilmkjarnaolíum ekki almenn fyrr en eftir að manni
nokkrum, Avicenna að nafni, tókst um 1000 e. Kr. að
þróa kælibúnað sem fullkomnaði eimingartæknina.
Áður hafði vinnsluferlið verið mjög dýrt og ilmkjarnaol-
íur því ekki aðgengilegar almenningi, heldur voru þær
gjafir sem sæmdu konungum.
Á okkar tímum var það franski efnafræðingurinn
Rene Maurice Gattefosse sem festi nafnið „aromather-
apy“ í sessi og flokkaði fagið sem sjálfstæða, einstaka
einingu innan náttúrulækninga. Gattefosse varð fyrir
slysi í efnaverksmiðju sinni þar sem hann brenndist illa á
hendi, en læknaðist með hjálp lavenderolíu á styttri tíma
en áður þekkist og án þess að varanlegur skaði hlytist af.
Hann stakk hendinni í ílát til að kæla brunann og fyrir til-
viljun var lavenderolía í ílátinu. Upp frá því hóf hann að
skrá þekktar ilmkjarnaolíur og kortleggja innihald
þeirra sem og virkni. Í bók sinni Aromatérapie frá 1928
lýsir hann reynslu sinni og niðurstöðum rannsókna.
Þess má til gamans geta að uppgötvanir í læknavís-
indum hafa einnig orðið til fyrir tilviljanir, t.d. þegar pen-
icillin var uppgötvað og sömuleiðis lyfjameðferð við
berklum. Rétt er að geta þess að sú aromaþerapy, sem
stunduð er í Frakklandi í dag, er ekki að öllu leyti sam-
bærileg þeirri sem stunduð er annars staðar í heim-
inum. Í Frakklandi er talað um la médécine douce, hina
mjúku lækningu, og er hún stunduð af sérmenntuðum
læknum sem ávísa lyfseðilsskyldum ilmkjarnaolíum
eða skyldum vörum og lyfjum til fólks. Þar má nefna
töflur, hylki, nefúða, grisjur vættar olíu, tíðatappa og
innöndunartæki.
Það var hins vegar austurríski lífefna- og snyrtifræð-
ingurinn Madam Marguerite Maury sem kom fram
með aðferð þá, sem mest er notuð í aromaþerapy í dag
og er sú aðferð kennd í Englandi, Bandaríkjunum,
Þýskalandi, Ástralíu, Noregi og víðar. Madam Maury
hafði hvorki möguleika né leyfi til að ávísa ilmkjarnaol-
íum til innvortis notkunar, því þróaði hún sérstaka
nuddaðferð til að koma ilmkjarnaolíunum í blóðrás lík-
amans. Henni var kunnugt um hve örsmáar sameindir
ilmkjarnaolíunnar eru og hvernig þær frásogast gegn-
um húðina og berast til blóðrásar og fruma.