Öldrun - 01.11.2004, Síða 35
35ÖLDRUN – 22. árg. 2. tbl. 2004 www.oldrun.net
Á TÍMAMÓTUM –
NÝR LÍFSSTÍLLALDRAÐRA
Námsstefna ÖFFÍ í samvinnu við Endurmenntun HÍ
Föstudaginn 5. nóvember kl. 13:00-16:00 í húsi
Endurmenntunar HÍ, Dunhaga 7
Umsjónarmenn námsstefnunnar:
Kristín Einarsdóttir iðjuþjálfi og Sigríður Jónsdóttir félagsfræðingur
13:00-13:05 Setning námsstefnunnar
13:05-13:45 Anne Helset, félagsfræðingur, NOVA, Osló
„Við lifum 10 árum lengur hér“
Norsk sveitarfélög og norskir ellilífeyrisþegar á Spáni
13:45-14:00 Ingibjörg Þórhallsdóttir frá Félagi húseigenda á Spáni
Framtíðarsýn varðandi íslenska eldri borgara á Spáni
14:00-14:20 Margrét Margeirsdóttir, varaformaður Félags eldri borgara
Hlutverk þjónustuhóps aldraðra
14:20-14:40 Kaffi
14:40-15:10 Berglind Magnúsdóttir, öldrunarsálfræðingur
„Ungur nemur, gamall temur“
15:10-15:20 Sigrún Pétursdóttir
Nýtt líf eftir starfslok
15.30-16.00 Panel umræður
Í tilefni af 30 ára afmæli Öldrunarfræðafélagsins
verður boðið upp á léttar veitingar að námsstefnunni lokinni
Skráning: h t t p : / / w w w. e n d u r m e n n t u n . h i . i s eða í síma: 525 4444
Efni námsstefnunnar:
Öldrunarfræðafélag Íslands hefur náð 30 ára aldri
og stendur á tímamótum. Aldraðir nútímans standa
einnig á tímamótum þar sem bætt heilsa og efnahagur
hefur valdið breyttum lífsstíl sem hefði verið óhugs-
andi fyrir aðeins nokkrum árum. Á námsstefnunni er
fjallað um þessar lífsstílsbreytingar og það hvernig
samfélagið styður við aldraða til að njóta þeirra. Hvað
telja aldraðir til lífsgæða og hver er opinber stefna og
framtíðarsýn í málefnum aldraðra? Er þörf á breyttum
áherslum í málefnum aldraðra, s.s. á sviði endur-
menntunar og félags- og tómstundastarfs? Boðið er
upp á fyrirlestur sem Anne Helset, sem starfar við
NOVA (Norsk Institutt for Oppvekst og Aldring) í
Osló, heldur. Hún mun kynna niðurstöður rann-
sóknar um norska eldri borgara sem kjósa að verja
ævikvöldinu á suðlægum slóðum, þróun sem gætir í
síauknum mæli í nágrannalöndum okkar og einnig
hérlendis. Rannsóknarniðurstöður fjalla m.a. um það
hvernig samfélagið styður við fólk til að haga lífi sínu
á þennan hátt. Er þetta lífsstíll sem aldraðir Íslend-
ingar kjósa? Hvernig farnast nútíma farfuglum norð-
ursins?