Öldrun - 01.11.2007, Síða 11
11
ÖLDRUN – 25. árg. 2. tbl. 2007 www.oldrun.net
nú hafa Norðmenn tekið þá ákvörðun að þessi hópur starfi
áfram. Þannig er að á Norðurlöndunum eru það félags
málaráðuneytin sem sinna málefnum aldraðra. Því fór það
svo að þegar þetta verkefni fór af stað þá fékk félagsmála
ráðuneytið á Íslandi beiðni um að einhverjir tækju þátt, en
það komst ekki til skila þannig að það var fyrir tilviljun að
undirrituð hefur unnið með þessum hópi en það samstarf
komst á eftir ráðstefnu í Stokkhólmi 2004.
Frá opnun Bjarmalundar hefur mikið verið lagt í kynn
ingarstarf. Ber að nefna hönnun heimasíðunnar www.
bjarmalundur.is, hönnun á lógói, útgáfu bæklinga og
kynningarfunda með fjölda aðila. Þá stóð Bjarmalundur
fyrir ráðstefnu í september sem bar yfirskriftina Lausn
ágreiningsmála & að starfa undir álagi sem tókst afar
vel til. Gestafyrirlesari þar var Kerstin Lundström sem
rekur eigin ráðgjafarstofu, Octopus demens, í Svíþjóð.
Einnig kom Bjarmalundur að undirbúningi fyrir komu
Jane Verity í sumar, sem hélt mjög gagnlegt og vel sótt
námskeið í Salnum í Kópavogi. Þá býður Bjarmalundur
upp á úrval stakra fyrirlestra fyrir stærri og minni hópa.
Stærsta verkefni Bjarmalundar hingað til hefur þó verið
að hanna nýtt nám, í samstarfi við Eflingustéttarfélag,
Mímisímenntun og Reykjavíkurborg. Um er að ræða
fjögurra eininga framhaldsnám fyrir félagsliða sem vilja
sérhæfa sig í umönnun fólks með heilabilun. Það verk
efni hefur verið sérlega gefandi og skemmtilegt. Fyrsta
námskeiðið fylltist á einum degi og það myndaðist strax
biðlisti svo búið er að fylla annað námskeið eftir áramót.
Nú stunda nítján konur, sem allar vinna hjá Reykjavík
urborg, þetta nám og áhuginn er gífurlegur. Það er því
nokkuð ljóst að þessi námsskrá er komin til að vera og í
framtíðinni verði til nokkurs konar ,,umönnunarsérsveit‘‘
fyrir fólk með heilabilun.
Kynningarstarf sumarsins er farið að skila sér í
síauknum fjölda símtala, tímabókana og fyrirspurna. Þá
hefur fjöldi fagfólks um land allt verið í sambandi og
skiptst á upplýsingum
Veturinn verður örugglega skemmtilegur og viðburða
ríkur. Bjarmalundur fer vel af stað og hefur fengið enda
lausar góðar og hlýjar kveðjur. Það segir manni dálítið að
þrátt fyrir stuttan lífaldur fékk Bjarmalundur fjölda áheita
í Reykjavíkurmaraþoni og kom það afar þægilega á óvart.
Er hlaupurunum hér með færðar hjartans þakkir fyrir.
Hanna Lára Steinsson
framkvæmdastjóri Bjarmalundar
FRÆÐSLA OG SÍMENNTUN Í ÖLDRUNARGEIRANUM
Betri heyrn - bÄtt lÅfsgÄÇi
PantaÄu tÅma Å heyrnarmÇlingu og fÉÄu rÉÄgjÑf um hvernig nÖ kynslÜÄ
heyrnartÇkja getur hjÉlpaÄ áàr aÄ heyra betur.
Í boði eru margar gerðir og verðflokkar af hágæða heyrnartækjum.