Öldrun - 01.11.2007, Síða 17
1
ÖLDRUN – 25. árg. 2. tbl. 2007 www.oldrun.net
Rannsóknastofa Háskóla Íslands og Landspítala háskóla
sjúkrahúss í öldrunarfræðum (RHLÖ) er miðstöð í
öldrunarfræðum, stofnuð á ári aldraðra 1999. Rannsókna
stofan tengir saman Háskóla Íslands (HÍ) og Landspítala
(LSH) á sviði öldrunarfræða þar sem sérhver vísindagrein,
ein sér eða í samvinnu við aðrar greinar, getur átt aðild að
rannsóknastofunni, svo fremi að viðfangsefni hennar lúti
að öldrun.
Hlutverk rannsóknastofunnar, auk þess að vera
miðstöð rannsókna á sviði öldrunarfræða, er að stuðla að
samvinnu fræðimanna innan HÍ og LSH, hafa áhrif á þróun
og kennslu, skapa heimili fyrir rannsóknaverkefni, stuðla
að útgáfu, vera í samstarfi við aðrar stofnanir bæði innan
lands og erlendis, standa fyrir námskeiðum og fræðslu og
sinna verkefnum samkvæmt ákvörðun stjórnar. Stjórnina
skipa Pálmi V. Jónsson, formaður – fulltrúi læknadeildar
HÍ, Jón Eyjólfur Jónsson, ritari – fulltrúi LSH, Ingibjörg
Hjaltadóttir – fulltrúi LSH, Margrét Gústafsdóttir fulltrúi
hjúkrunarfræðideildar HÍ, Sigurveig H. Sigurðardóttir
– fulltrúi Öldrunarfræðafélags Íslands.
Helstu verkefni ársins 2007:
1. Fræðslufundir vor og haustannar, haldnir á fimmtu
dögum kl. 15:0016:00 í fyrirlestrarsalnum á 7. hæð
Landakots og sendir út með fjarfundabúnaði til nokk
urra stofnana á höfuðborgarsvæðinu og víða um lands
byggðina. Umfjöllunarefnin eru fjölbreytt. Sem dæmi
má nefna eftirtalin erindi:
Hvað vill hið opinbera fá fyrir fjármagnið sem það
veitir til reksturs hjúkrunarheimila?
Elsa B. Friðfinnsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Óráð hjá öldruðum
Tryggvi Egilsson, læknir
Sálgæsla á öldrunarsviði
Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson
Framheilabilanir
María K. Jónsdóttir, taugasálfræðingur
Viðhorf aldraðra
Sigurveig H. Sigurðardóttir, félagsráðgjafi
Breytingar á færni einstaklinga, 75 ára og eldri, í
kjölfar bráðainnlagnar á lyflækningadeild LSH
Sigrún Bjartmarz, hjúkrunarfræðingur
Um öldrunarmál í Hollandi
Sagt frá námsferð sem farin var síðastliðið
haust.
Hreyfum okkur með morgunleikfimi RÚV – nýtum það
sem er til staðar
Halldóra Björnsdóttir, íþróttafræðingur
Viðhorf ungs fólks til aldraðra – Hluti af nýrri
rannsókn
Sigrún Júlíusdóttir, félagsráðgjafi
Myndin Hugarhvarf/Dementia sýnd með ensku tali
Framlag eldri borgara – viðtalskönnun meðal eldri
borgara, kynning á niðurstöðum
Ingibjörg H. Harðardóttir og Amalía Björns
dóttir, lektorar KHÍ
Hrumleiki meðal aldraðra
Ársæll Jónsson, læknir
Munnhirða aldraðra sjúklinga
Helga Ágústsdóttir, tannlæknir
Sár og sáraumbúðir
Geirþrúður Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Lífssögur Íslendinga með þroskahömlun sem fæddir eru
á fyrri helmingi 20. aldar
Guðrún Valgerður Stefánsdóttir, lektor KHÍ
Fótavandamál hjá öldruðum
Eygló Þorgeirsdóttir, fótaaðgerðafræðingur.
2. Námskeið um þvagleka 14.16. febrúar í samvinnu við
Skurðlækningasvið LSH. Tveir erlendir hjúkrunar
fræðingar sáu um fræðsluna.
3. Dreifing og sala á myndinni Hugarhvarf – lífið heldur
áfram með heilabilun. Baugurgroup styrkti RHLÖ til
að þýða og talsetja myndina á ensku og sænsku.
4. Námskeið Heilabilunareiningar Landakots 21. mars
og endurtekið 22. mars, í Salnum í Kópavogi. Yfir
skrift námskeiðsins: Siðfræðileg álitamál í umönnun
heilabilaðra.
5. Námskeið fyrir sjúkraþjálfara, Þjálfun jafnvægis, í
samvinnu við dr. Ellu Kolbrúnu Kristinsdóttur, sjúkra
þjálfara og dósent og Bergþóru Baldursdóttur, M.sc.
sjúkraþjálfara, 14. september 2007.
6. Námskeið í Minningavinnu í samvinnu við Sigrúnu
Huld Þorgrímsdóttur, hjúkrunarfræðing og Ingibjörgu
Pétursdóttur, iðjuþjálfa, 19. september 2007.
7. Vísindadagur RHLÖ 12. október undir yfirskriftinni
Nýjungar í rannsóknum í húðlækningum.
Dagskrá fræðslu á vegum RHLÖ er auglýst með tölvu
pósti og er hægt að skrá sig á netfangalista með því að
senda póst á halldbj@lsh.is eða hringja í síma 5439898.
Halldóra N. Björnsdóttir
verkefnastjóri RHLÖ
Rannsóknastofa Háskóla Íslands
og Landspítala háskólasjúkrahúss
í öldrunarfræðum – RHLÖ
FRÆÐSLA OG SÍMENNTUN Í ÖLDRUNARGEIRANUM