Öldrun - 01.11.2007, Qupperneq 30
0
www.oldrun.net ÖLDRUN – 25. árg. 2. tbl. 2007
Inngangur
Grein þessi var unnin af tveimur hjúkrunarfræðingum
og tveimur prestum í sálgæslufræðinámi við Háskóla
Íslands árið 2004. Greinin byggir á eigin reynslu, fræðilegu
efni og viðtölum við fimm aldraða einstaklinga um áhrif
listsköpunar á andlega, líkamlega og tilfinningalega líðan.
Sálgæslufræðin opnaði meðal annars augu okkar fyrir
því að unnt er að nýta eigin sköpunarkraft við úrvinnslu
tilfinningalegra áfalla.
Flestir þekkja dæmi þess að það hentar ekki öllum að
dvelja á stofnunum þar sem skipulögð starfsemi fer fram.
Stefna stjórnvalda er að auka lífsgæði aldraðra og aðstoða
þá við að dvelja lengur á eigin heimili. Með því halda aldr
aðir sjálfræði sínu en inni á öldrunarstofnunum er forræð
ishyggja starfsfólks ennþá áberandi.
Í greininni er lögð áhersla á það að hver og einn þarf
að fá svigrúm til að lifa lífinu á eigin forsendum. Þar er
aðalatriðið að aldraðir, eins og aðrir, geti gengið í sínum
takti í núinu en ekki í takti sem aðrir ákveða.
Fræðilegt efni og viðtöl við aldraða benda til þess að
list og listsköpun geti auðveldað fólki að horfast í augu við
lífið og tilveruna. Einnig að listsköpun ýti undir þá tilfinn
ingu að vera einhvers megnugur. Segja má að listsköpun
og að njóta lista kalli fram viðleitni til að öðlast sátt við
þann margvíslegan missi sem oftast fylgir því að komast
á efri ár.
Í ljósi viðtala við aldraða finnst okkur það áhugavert
framtíðar rannsóknarefni að kanna hvernig unnt er að
nýta sköpunarþáttinn við sálgæslu. Skoða hvaða þættir
styrkja fólk í aðstæðum þar sem enginn fær breytt því
sem orðið er.
Sýndu mér listina, þá skal ég segja
þér allt hitt
Listir í mismunandi formi hafa fylgt manninum frá
örófi alda en listsköpun er skilgreind sem notkun hæfi
leika og hugmyndaflugs til að skapa hlut, stykki, verk,
umhverfi eða reynslu með fagurfræðina að leiðarljósi
(Encyclopædia Brittanica, 2001). Árni Böðvarsson (1983)
lýsir list sem íþrótt, að búa til eitthvað fagurt eða eftirtekt
arvert. List þýði einnig leikni, hæfileiki og færni. Þess
vegna einkennast listir af tilfinninganæmi, auðugu ímynd
unarafli, kunnáttu og leikni til að tjá hugsanir og tilfinn
ingar. Símon J. Ágústsson (1931) víkkar sjónarhornið enn
frekar með því að benda á að listin sé nátengd menningu,
hugsunarhætti, sögu og lífsbaráttu þjóðanna. Orð hans:
„Sýndu mér listina, þá skal ég segja þér allt hitt“ endur
Sálgæsluáhrif listsköpunar
– að öðlast sátt við margvíslegan missi
Helga G. Erlingsdóttir
hjúkrunarfræðingur
Öldrunarheimilið Hlíð Akureyri
Sigríður Jónsdóttir
hjúkrunarfræðingur
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
Axel Árnason
sóknarprestur
Stóra-Núpsprestakalli
Eiríkur Jóhannsson
sóknarprestur
Hrunaprestakalli