Gerðir kirkjuþings - 1984, Qupperneq 37

Gerðir kirkjuþings - 1984, Qupperneq 37
29 1984 15. Kirkjuþing 2. mál Frumvarp til laga um starfsmenn Þjóðkirkju Islands. Flutt af Kirkjuráði. Frsm. herra Pétur Sigurgeirsson, biskup sr. Jónas Gíslason, dósent. I. kafli Um presta 1. gr. Kirkjumálaráðherra skipar sóknarpresta í embætti, nema annan veg sé mælt í lögum. Biskup gerir tillögur til kirkjumálaráðherra um skipun eða setningu í embætti. 2. gr. Almenn skilyrði til skipunar eða setningar í embætti sóknarprests eru þessi: 1. 25 ára aldur. Kirkjumálaráðherra getur þó að tillögu biskups veitt undanþágu frá því ákvæði. 2. Embættispróf frá guðfræðideild Háskóla íslands eða frá viðurkenndri guðfræðideild eða guðfræðiskóla, og skal biskup um hið síðarnefnda atriði leita umsagnar guðfræðideildar Háskóla íslands. 3. Áður en kandidat hlýtur vígslu skal hann hafa starfað með sóknarpresti eigi skemur en 3 mánuði undir eftirliti prófasts. Um framkvæmd og eftirlit þessa skal nánar kveðið á í reglugerð. Að öðru leyti fer um nám í kennimannlegri guðfræði svo sem segir í reglugerð um nám í Háskóla íslands. 4. Aðili hafi ekki gerst sekur um athæfi, sem ætla má að rýri álit hans og sé ósamboðið manni i prestsstarfi. Ágreiningi þar um má skjóta til kirkjudóms. Um uppreisn æru fer samkvæmt gildandi lögum. 5. Að öðru leyti verður maður að fullnægja almennum skilyrðum 3. gr. laga nr. 38/1954 um skyldur og réttindi starfsmanna ríkisins. 3. gr. Sóknarprestar og aðrir starfsmenn þjóðkirkjunnar, sem lög þessi taka til, eru opinberir starfsmenn og njóta lögkjara og bera skyldur samkvæmt því, sbr. lög nr. 38/1954. 4. gr. Skylt er sóknarpresti að taka við embætti sínu jafnskjótt og föng eru á, eftir að hann hefur hlotið setningu eða skipun. Ráð- herra getur þó, samkvæmt tillögu biskups, veitt presti frest til næstu fardaga til að taka við embættinu, sbr. tilskipun frá 6. jan. 1847. 5. gr. Kirkjumálaráðherra skal láta byggja og halda við prestssetrum og hlutast til um, að fé fáist til þess á fjárlögum, sbr. lög nr. 63/1970 um skipan opinberra framkvæmda. Ráðherra felur sérfróðum mönnum, þegar eftir að lög þessi taka gildi, að vinna í samstarfi við biskup og fulltrúa Prestafélags íslands að samningu samfelldrar áætlunar um byggingu og viðhald prestssetra næstu tiu ár. 6. gr. Sóknarprestar skulu hafa prestssetur til umráða. Óheimilt er, að ráðstafa með kaupum, sölu, leigu eða með öðrum hætti rétt- indum og eignum prestssetra (beneficia), nema til komi samþykki biskups, að fenginni umsögn viðkomandi prófasts, héraðs- fundar og sóknarnefnda í hlutaðeigandi prestakalli, og skal þá ennfremur liggja fyrir samþykki sóknarprests þess, er veitingu hefur fyrir viðkomandi brauði. Eigi má ráðstafa prestssetrum (beneficia), gögnum þeirra og gæðum, er óveitt standa, með öðr- um hætti en þeim, er greinir í tilskipun frá 24. júlí 1789. 7. gr. Prestur, sem veitingu hefur fyrir brauði, hefur óskoraðan rétt til prestsseturs þess, sem því fylgir, með öllum gögnum þess og gæðum svo sem landsvenja er til. En vegna prestssetursjarðarinnar skal honum reiknað tillegg þess er hann bætir, en álag þess er úr sér gengur, og skal kirkjustjórnin ábyrgjast, að fjármunir þessir nýtist prestssetrinu. Allar framkvæmdir á prestssetrinu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.