Gerðir kirkjuþings - 1984, Side 60

Gerðir kirkjuþings - 1984, Side 60
52 1984 15. Kirkjuþing 10. mál Tillaga til þingsályktunar um byggingu bókhlöðu og varðveislu bókasafns í Skálholti. Flm. sr. Jón Einarsson sr. Ólafur Skúlason, vígslubiskup Kirkjuþing 1984 ályktar, að nú þegar verði hafist handa um byggingu bókhlöðu í Skálholti, þar sem varðveitt verði hið merka og dýrmæta bókasafn staðarins og fræðimönnum, innlendum sem útlendum, gert kleift að stunda visinda og fræðistörf. Kirkjuþing skorar á samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar að hafa forystu um þjóðarátak í þessu nauðsynjamáli. í greinargerð sem framsögumaður málsins flutti segir m.a.: Hér er um merkilegt og dýrmætt bóka- safn að ræða, sem kemur sennilega fáum að gagni um þessar mundir. Þess vegna er nú nauðsynlegt, að þjóðarátak verði gert til þess að koma þessu merka máli fram, svo að safnið varðveitist og unnt verði að nýta það sem best. Forystan sé Kirkjuráðs og samstarfsnefndar Alþingis. Vísað til fjárhagsnefndar. Eftir fyrri umræðu um álit nefndarinnar var málinu vísað aftur til fjárhags- nefndar, er lagði til eftirfarandi samþykkt. (Frsm. sr. Bragi Friðriksson.) „Kirkjuþing 1984 ályktar að hafist verði handa um undirbúning að byggingu bókhlöðu í Skálholti, enda falli sú bókhlaða inn í framtíðaráætlanir varðandi uppbyggingu í Skálholti. Jafnframt telur Kirkjuþing brýnt að hraðað verði skráningu bókasafnsins þar.” Samþykkt samhljóða.

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.