Gerðir kirkjuþings - 1984, Qupperneq 49

Gerðir kirkjuþings - 1984, Qupperneq 49
41 íslands hefur samráð og samstarf við hina biskupana um ákvörðun mála og getur falið þeim að koma fram fyrir hönd kirkjunnar. Biskupar fara hver með sérmál biskupsdæmis síns. Biskup íslands sker úr vafaatriðum þar að lútandi. Þeir vígja presta og kirkjur og hafa tilsjón með kristnihaldi hver í sínu biskupsdæmi, hafa yfirumsjón með öllu kirkjulegu starfi þar og setja fram tillögur, umsagnir og álitsgjörðir um mál, er varða biskups- dæmi þeirra sérstaklega. Þeir setja próföstum, prestum og sóknarnefndum erindisbréf. Þeir vísitera kirkjur, presta og söfnuði biskupsdæmis síns eigi sjaldnar en á fimm ára fresti. 42. gr. Biskupsstofa skal vera í Reykjavík. Þar hafa kirkjuþing og Kirkjuráð einnig aðsetur. Biskupsstofa annast afgreiðslu sameiginlegra mála kirkjunnar, einnig mál kirkjuþings og Kirkjuráðs svo og sérmála Reykjavíkurbiskupsdæmis. Skálholts- og Hólabiskupum er heimilt að ráða sér fulltrúa. Biskup hefur forræði á dómkirkju biskupsdæmis síns og ber ábyrgð á helgihaldi í henni. Eignir og sjóðir, sem bundnir eru ákveðnu biskupsdæmi, heyra undir biskup þess, en Biskupsstofa annast vörslu og reikningshald annarra eigna. Kirkjuþing ræður kirkjueignum þeim, sem hér um ræðir, enda mæli lög, skipulagsskrár og aðrir löggerningar því eigi í gegn. 43. gr. Þegar biskup vígir kirkju, setur hann henni máldaga, þar sem lýst er kirkjunni og getið gripa hennar, eigna og réttinda. Þar skal þess og getið, hversu mikilli þjónustu kirkjan á rétt á árlega, svo og hver sóknarmörk eru. Kirkjumáldaga skal rita í sérstaka bók, er varðveitist við biskupsembættið. Þá leggur biskup hverri kirkju til sérstaka bók, kirkjubók, sem í verði færðar allar athafnir, sem framkvæmdar eru í kirkjunni. Verði ágreiningur um fornar eignir og réttindi kirkna, skulu eftirtaldar skrár taldar áreiðanlegar og löggildar kirkjuskrár og máldagabækur: 1. Vilchins biskups frá 1397. 2. Auðunar biskups frá 1318. 3. Jóns biskups Eiríkssonar frá 1360. 4. Péturs biskups Þorsteinssonar frá 1394. 5. Ólafs biskups Rögnvaldssonar frá 1461 og síðar. 6. Sigurðarregistur frá um 1525 og síðar. 7. Gísla biskups Jónssonar frá um 1570. 44. gr. Biskupar skulu vandlega gæta þess, að eigi veljist aðrir til prestsþjónustu í þjóðkirkjunni, en þeir, sem til þess eru hæfir að framkvæma prestslegt embætti og annast sálgæslu sóknarbarna sinna. Er engum óvígðum guðfræðingi heimilt að sækja um prestsstarf í þjónustu kirkjunnar, nema hann hafi áður feng- ið vottorð biskups um, að hann fullnægi þeim kröfum, sem gjörðar eru til prestvígslu. 45. gr. Biskup íslands situr í forsæti á kirkjuþingi auk þess sem hann er oddviti Kirkjuráðs. Biskupar eiga all- ir sæti á kirkjuþingi með málfrelsi og tillögurétti. 46. gr. Biskup íslands boðar prestastefnu og leikmannastefnu. Á prestastefnu hafa atkvæðisrétt allir starfandi þjóðkirkjuprestar og fastir kennarar guðfræðideildar Háskóla Islands með guðfræðimenntun. Aðrir prestar og guðfræðingar eiga rétt til fundarsetu með mál- frelsi og tillögurétti. Á leikmannastefnu eiga sæti einn fulltrúi frá hverju prófastsdæmi en þó tveir frá Reykjavíkurprófastsdæmi, kjörnir af leikmönnum á héraðsfundi, og einn fulltrúi fyrir hver landssamtök kristilegra félaga, sem starfa á kenningargrundvelli þjóðkirkjunnar svo og kennarar Guð- fræðideildar Háskóla íslands, sem ekki eru guðfræðingar. Prestastefna og leikmannastefna geta lagt mál fyrir Kirkjuráð til flutnings á kirkjuþingi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.