Gerðir kirkjuþings - 1984, Side 45

Gerðir kirkjuþings - 1984, Side 45
37 öllum gögnum þess og gæðum svo sem landsvenja er til. En vegna prestssetursjarðarinnar skal honum reiknað tillegg þess er hann bætir, en álag þess er úr sér gengur, og skal kirkjustjórnin ábyrgjast, að fjár- munir þessir nýtist prestssetrinu. Allar framkvæmdir á prestssetrinu skulu háðar heimild kirkjustjórnar- innar og nánari ákvörðun í reglugerð. Skylt er sóknarpresti að hafa aðsetur og lögheimili á prestssetri, nema biskup heimili annað um stundarsakir að fenginni umsögn prófasts og viðkomandi sóknarnefnda. Sóknarprestur ber þó ávallt fulla ábyrgð á prestssetrinu og skal sjá til þess að það sé hirt og varðveitt í hvívetna. 8. gr. Nú verða prestaskipti og prestssetur losnar, og eru þá lausir allir samningar og aðrar kvaðir, er prestur hefur bundið prestssetrinu svo sem leiga á landi þess eða réttindum. Sjá að öðru leyti tilskipun frá 6. jan. 1847 og 24. júlí 1789. 9. gr. Nú er kirkja á prestssetursjörð, og skal prestur þá hafa umsjón með henni í samvinnu við sóknar- nefnd. Ef prestur situr ekki prestssetursjörð, skal ábúanda skylt, að ósk sóknarnefndarmanna að hafa eftirlit með slíkri kirkju. 10. gr. Sóknarprestur skal að jafnaði sitja sóknarnefndarfundi. Hann á sæti á héraðsfundum og er skylt að sækja þá. Þá er honum að forfallalausu skylt að sitja fundi er biskup og prófastur boða honum. 11. gr. Sóknarpresti er skylt að taka að sér þjónustu til viðbótar embætti sínu innan prófastsdæmis, ef þörf krefur, samkvæmt boði biskups, gegn launum samkvæmt 26. gr. laga nr. 38/1954. 12. gr. Sóknarprestar fá greiddan að fullu ferða- og skrifstofukostnað embætta sinna, samkvæmt ákvörðun stjórnvalda að fengnum tillögum biskups og stjórnar Prestafélags fslands, sbr. lög nr. 36/1931. Kostn- aður þessi greiðist mánaðarlega með launum prests. Sóknarprestum ber þóknun fyrir aukaverk svo sem tíðkast hefur sbr. prestastefnusamþ. í júlí 1764 og lög nr. 36/1931. Nú ákveður prestastefna íslands að breyta fyrirkomulagi þóknunar fyrir aukaverk, og skal það þá heimilt að fengnu samþykki ráðherra. Sóknarpresti skal að jafnaði gert kleift að sækja námskeið til end- urmenntunar eigi sjaldnar en á 10 ára fresti. 13. gr. Biskup leggur sóknarprestum til löggiltar embættisbækur, svo og eyðublöð undir lögboðnar skýrslur og aðrar skýrslur, sem presti er skylt að láta í té og undir embættisvottorð. Hagstofa íslands leggur sóknarprestum til eyðublöð undir skýrslur, sem senda á þangað. 14. gr. Um einstakar embættisathafnir presta fer svo sem segir í lögum um þau efni og venjur kveða á um. Biskup setur hverjum presti erindisbréf í samráði við prófast og stjórn Prestafélags íslands. II. kafli. Um aðra starfsmenn kirkjunnar og þjóðkirkjusafnaða 15. gr. Kirkjumálaráðherra skipar biskupsritara að tillögu biskups íslands. 16. gr. Um söngmálastjóra þjóðkirkjunnar fer samkvæmt lögum nr. 3/1981.

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.