Gerðir kirkjuþings - 1984, Page 47

Gerðir kirkjuþings - 1984, Page 47
39 28. gr. Laun og annar kostnaður við embætti þau, sem upp eru talin hér að framan, greiðist úr ríkissjóði, samkv. úrskurði ráðherra. Prestvígðir menn, sem embættum þessum gegna, skulu teljast þjónandi prestar þjóðkirkjunnar. Óheimilt er þeim að vinna aukaverk sóknarpresta nema í umboði og á ábyrgð þeirra. 29. gr. Aðrir þeir sem vígslu hljóta til sérþjónustu innan félagasamtaka eða stofnana skulu þjóna á ábyrgð þeirra svo sem nánar er ákveðið í erindisbréfi, sem biskup setur. III. kafli. Um prófasta 30. gr. Kirkjumálaráðherra skipar prófasta úr hópi þjónandi presta í prófastsdæminu með ráði biskups, er leitað hefur áður álits þjónandi presta í prófastsdæminu og þriggja fulltrúa leikmanna, sem kosnir eru á héraðsfundi til fjögurra ára í senn, þó ekki fleiri en þjónandi prestar eru í prófastsdæminu. Sóknarpresti er skylt að takast á hendur prófastsembætti. Biskup getur falið presti eða nágrannaprófasti að gegna prófastsembætti um stundarsakir, ef sérstaklega stendur á, svo sem vegna fjarveru prófasts eða veikinda hans, eða vegna þess að prófasts missir við. Nú lætur prófastur af prestsembætti í prestakalli, og verður prófastsembætti þá laust. Nú telur pró- fastur sér óhægt að gegna embættinu vegna veikinda eða af öðrum sérstökum persónulegum ástæðum, og er þá heimilt að leysa hann undan því embætti, þótt hann gegni prestsembætti sínu eftirleiðis. 31. gr. Prófastur er fulltrúi biskups í prófastsdæminu og trúnaðarmaður hans og hefur í umboði hans al- menna umsjón með kirkjulegu starfi þar. Hann er í fyrirsvari fyrir prófastsdæmið að því er varðar sam- eiginleg málefni þess gagnvart stjórnvöldum, stofnunum og einstaklingum. Nú er kirkjuleg starfsstöð stofnuð í prófastsdæminu, og veitir prófastur henni jafnaðarlega forstöðu og skipuleggur starfsemi á hennar vegum. Hann er formaður stjórnar héraðssjóðs prófastsdæmis, og oddviti héraðsnefndar. Hann boðar héraðsfund í samvinnu við héraðsnefnd og stjórnar fundum henn- ar, undirbýr mál, sem sá fundur fær til meðferðar og kemur ályktunum fundarins til biskups og annarra aðila og fylgir þeim eftir. 32. gr. Prófastur hefur eftirlit með prestssetrum, kirkjum og kirknaeignum í prófastsdæmi og bókasöfnum prestakalla, sbr. lög nr. 17/1931 og tilsk. frá 24. júlí 1789. Hann skýrir biskupi frá því, sem honum þykir athugavert um þessar eignir, þ.á.m. skort á viðhaldi, og getur biskup lagt fyrir rétta aðila að bæta úr. Prófastur framkvæmir úttekt á prestssetrum (og embættisbústöðum presta) við prestaskipti og þegar prestur flytur í annað húsnæði innan prestakallsins. Hann gerir úttekt á nýjum kirkjum og kapellum. Prófastur setur nýjan prest í embætti, heimsækir presta og vísiterar kirkjur og söfnuði samkvæmt nán- ari ákvæðum í erindisbréfi. Hann fylgir biskupi á vísitasíum hans til presta og safnaða í prófastsdæm- inu. Prófastur gengur eftir því að starfsskýrslum og endurskoðuðum reikningum sé skilað á réttum tíma, og leggur fyrir héraðsfundi með athugasemdum sínum og sóknarnefnda, eftir atvikum, og tillögum um úrlausn. Þá fjallar hann um ágreining, sem kann að rísa milli sóknarprests, sóknarnefndar og safnaðar. Prófastur löggildir gerðabækur og aðrar bækur sóknarnefndar, eftir því sem við á. Prófastur veitir presti leyfi til fjarvista úr prestakalli um stundarsakir, en leyfi til lengri fjarvista veitir biskup að höfðu samráði við kirkjumálaráðherra. Prófastur skipuleggur sumarleyfi og önnur samningsbundin leyfi presta í prófastsdæminu.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.