Gerðir kirkjuþings - 1984, Side 50

Gerðir kirkjuþings - 1984, Side 50
42 47. gr. Biskup íslands boðar biskupafund eigi sjaldnar en einu sinni á ári. Biskupafundur getur lagt mál fyrir kirkjuþing. 48. gr. Biskupum séu lagðir til embættisbústaðir. 49. gr. Við vísitasíur skal biskup kynna-sér kirkjulegt og kristilegt starf í sóknunum, sambúð prests og sókn- arfólks, ásigkomulag kirkju og prestsseturs og annað það, er varðar hag sóknar og prests. Skal hann gjöra tillögur til úrbóta, þar sem þurfa þykir. Sóknarpresti og sóknarnefnd er skylt að koma til vísitasíu biskups og vera honum til aðstoðar og láta honum í té þær upplýsingar, sem leitað er eftir. Þeir skulu undirrita vísitasíugjörðina ásamt biskupi, en heimilt er þeim að láta bóka þar ágreining ef um slíkt er að ræða. Þyki biskupi í einhverju áfátt um búnað kirkju eða viðhald hennar, störf sóknarnefndar, fram- komu prests og embættisstörf eða það, hvernig hann situr staðinn, skal hann vanda um við hlutaðeig- endur. Ennfremur getur hann í vísitasíu bókað ákveðnar kröfur sínar í þessum efnum. Prófastur skal fylgja biskupi á vísitasíum og hlutast til um, að ákvörðun um vísitasíu sé fylgt eftir. 50. gr. Auk lögboðinna skýrslna embættismanna þjóðkirkjunnar er biskupi rétt að krefja þá skýrslna um störf þeirra og embættisrekstur í því formi, sem hann ákveður. Þá getur biskup skyldað presta til þess að sækja kirkjulega fundi. 51. gr. Biskupar setja presta og prófasta um stundarsakir þegar þörf krefur. 52. gr. Nú getur biskup ekki gegnt störfum vegna veikinda, fjarveru eða af öðrum sérstökum ástæðum, og getur hann þá með samþykki ráðherra falið öðrum, eftir því sem við á, að gegna starfinu um hríð á sína ábyrgð. Nú fellur biskup íslands frá eða lætur af embætti, og skal þá setja þann biskup, sem eldri er að biskupsvígslu, til þess að gegna embættinu, uns nýr biskup hefur verið skipaður. Nú fellur Skálholts-eða Hólabiskup frá eða lætur af embætti, og skal þá biskup íslands gegna störfum hans, uns nýr biskup hefur verið skipaður. 53. gr. Biskup íslands vígir biskupa eða sá hinna biskupanna, sem eldri er til biskupsvígslu. 54. gr. Nú losnar biskupsembætti í þjóðkirkjunni. Skal þá ráðherra láta fara fram biskupskjör. Um biskups- kjör er kveðið á í öðrum lögum. V. kafli. Stjórnvaldsreglur, gildistaka og brottfallin lög 55. gr. Kirkjumálaráðherra er rétt að setja nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara með reglugerð að fengnum tillögum biskups. 56. gr. Lög þessi taka gildi þegar í stað, sbr. þó 27. gr. í 2. málsgr. Frá sama tíma falla úr gildi þessi lög og réttarreglur:

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.