Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Side 2

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2008, Side 2
Leiðbeiningar til greinahöfunda Reglur ritnefndar Tímarit um menntarannsóknir er vettvangur fyrir fræðilega umræðu um menntarannsóknir a Íslandi. Þær 1. kröfur eru gerðar til greinahöfunda að þeir lúti viðteknum venjum um fræðilega framsetningu efnis og vis- indaleg vinnubrbrögð. Öllum er heimilt að senda efni ritið. Allt efni sem tengist menntun og rannsóknum á menntamálum með 2. einum eða öðrum hætti metur ritnefnd og skoðar með tilliti til útgáfu. Meginregla er að innsendar greinar hafi ekki birst annars staðar. Undantekning er gerð frá þessari reglu 3. ef ritnefnd telur greinar sem birst hafa í viðurkenndum erlendum fagtímaritum eftirsóknarverðar til birting- ar á íslensku. Fyrsti höfundur greinar er talinn aðalhöfundur hennar og ber ábyrgð á samskiptum við ritstjóra og vænt-4. anlega lesendur. Greinar geta verið hvort sem er á íslensku eða ensku. Ef grein er á íslensku er áhersla lögð á að öll 5. fræðiheiti séu á íslensku og að málfar og framsetning efnis sé samkvæmt íslenskum málvenjum. Ákvörðun um birtingu greina byggist á faglegri umsögn a.m.k. tveggja ritrýna um gæði rannsóknar eða 6. fræðilegrar greinar og viðbrögðum höfundar við athugasemdum. Allt innsent efni fær faglega umsögn og athugasemdir að minnsta kosti tveggja aðila sem ritnefnd treystir til verksins. Umsögn fylgir jafnframt ákvörðun um birtingu eða synjun. Í vissum tilvikum getur grein verið sampykkt 7. með fyrirvara um að brugðist sé við faglegum ábendingum. Eftir að greinarhöfundur hefur brugðist við athugasemdum er grein hans lesin yfir að nýju og honum sendar nýjar abendingar, fyrri ábendingar ítrek- aðar eða hann látinn vita að grein hans sé endanlega samþykkt með áorðnum breytingum. Greinum sem ekki standast kröfur um framsetningu og efnistök hafnar ritnefnd hvort sem um er að ræða 8. innsendar greinar eða greinar sem fólki hefur verið boðið að skrifa í blaðið. Ritnefnd áskilur sár rétt til að breyta orðalagi eða stafsetningu ef nauðsyn krefur við lokafrágang ritsins.9. Skilafrestur efnis í timaritið er 1. maí ár hvert. Handrit sendist ritstjóra (sjá http://www.fum.is).10. Framsetning efnis Handritum skal skila í rafrænu formi til ritstjóra. Þau skulu vera unnin í Word með leturgerð Times New 1. Roman 12 punkta. Línubil skal vera 2 og jafnað til vinstri. Fyrirsagnir skulu vera í Times New Roman 14 punkta og aðeins jafnaðar til vinstri. Lengd handrits skal vera að hámarki 9000 orð (um 25 bls.). Að öðru leiti skal fylgja útgáfureglum APA1. Nauðsynlegt er að höfundar gefi til kynna í handriti hvar þeir vilja að töflur og myndir séu staðsettar í 2. texta. Sérstök athygli er vakin á því að vitna skal til skírnar- og föðurnafns íslensks höfundar en ekki föðurnafns eingöngu eins og gildir um erlenda höfunda. Jafnframt skal raða íslenskum höfundum í heim- ildaskrá samkvæmt skírnarnafni þeirra. Í greinum á íslensku er ætlast til þess að beinar tilvitnanir úr erlendum tungumálum séu þýddar á 3. íslensku. Höfundum er bent á að geta þess í neðanmálsgrein ef greinin er byggð á prófritgerð höfundar eða ef 4. vinnan við verkefnið hefur hlotið styrki. Myndum skal skilað í sér skjali í upprunalegu formati (t.d. exel í svart/hvítu). Sá texti sem höfundur vill að 5. standi við mynd, ásamt númeri myndar, fylgi myndinni í öðru skjali. Stafabil í texta skulu að jafnaði ekki vera fleiri en eitt. Þegar þau þurfa að vera fleiri (t.d. við töflugerð) 6. skal nota dálkalykil á lyklaborði. Greinum á íslensku skal fylgja ágrip sem er um 300 orð að lengd. Þeim skal og fylgja ágrip á ensku 7. (abstract) sem er um 600 orð að lengd. Því má skipta í undirkafla. Greinum á ensku skal fylgja ágrip á ensku sem er um 300 orð að lengd og ágrip á íslensku sem er um 600 orð að lengd. Öllum greinum skal fylgja um 60 orða texti undir fyrirsögninni „Hagnýtt gildi“. Þar skulu höfundar tilgreina 8. á hvern hátt greinin gæti nýst í stefnumótun eða starfi á vettvangi menntamála. Öllum greinum skal fylgja texti um höfundana á íslensku og ensku (60-70 orð á hvoru máli). Þar skal til-9. greina menntun höfunda og núverandi starf. Einnig um rannsóknarsvið þeirra og netfang. Heiti greinar skal fylgja á ensku. Nöfnum höfunda skal fylgja heiti þeirrar stofnunar sem þeir starfa hjá á 10. íslensku og ensku. 1 Miðað er við reglur APA í framsetningu efnis, tilvitnana, tilvísana og heimildaskrár. Þær má finna t.d. í Publication Manual of the American Psychological Association, (5th ed. 2001); Handbók Sálfræðiritsins sem Sálfræðingafélag Íslands gefur út, Gagnfræðakveri handa háskólanemum sem Háskólaútgáfan gefur út og fleiri ritum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.